Stjarnan - 01.03.1933, Page 12

Stjarnan - 01.03.1933, Page 12
44 STJARNAN og hann einn er frelsari mannkynsins. ÞaÖ felur í sér að vér gefum honum vald yfir lífi voru, til aÖ stjórna því fyrir sinn heilaga anda. í þessu tilliti er þaÖ gagn- ólíkt að verða kristinn og að verða Mú- hameðs- eða Búdda-trúarmaður. Að taka móti Kristi er meira en að ganga í söfnuð og sækja vissa kirkju, þótt það fylgist með. Að vera meðlimur Methodista, Baptista eða jafnvel Aðventista kirkju er ekki það sama og taka á móti Kristi. Að taka á móti Kristi krefur fram- kvæmd viljans og andlega breytingu á innra lífi mannsins, sem sýnir sig út á við í heilögu líferni. 1 sannleika að taka móti Kristi er að verða endurfæddur til að lifa Guði. Jóh. 1:12,13. 2. Kor. 5:17. (1. Jóh. 5:1). Ef vér erum ekki endur- fæddir þá höfum vér í rauninni aldrei tekið á móti Kristi. Að taka á móti Kristi hefir aigjörða breytingu í för með sér, brevtingu frá lífi í synd, til lífs í réttlæti og heilag- leika. “Endurnýist í anda hugskots yðar, og íklæðist hinum nýja manni, sem skap- aður er eftir Guði í réttlæti og heilag- leika sannleikans.” Efes. 4:23. Takið eftir hvernig sá lifir, sem hefir tekið á móti Kristi: “Hinn stelvísi hætti að stela, en leggi hart á sig að gjöra það sem gagnlegt er með höndum sínum, svo að hann hafi eitthvað að miðla þeim, sem þurfandi er.” “Ef þér reiðist þá syngdið ekki.” Látið hverskonar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli, vera fjarlægt yður og alla vonsku yfirleitt, en verið góðviljaðir hver við annan, miskunnsam- ir, fúsir til að fyrirgefa hver öðrum, eins og líka Guð hefir í Kristi fyrirgefið yð- ur.” Efes. 4:28, 26, 31, 32. Að taka móti Kristi meinar að láta hann fyrir sinn Heilaga Anda lifa sínu 'Iífi í oss dag frá degi. Jóh. 15:5, 4, 6, (Gal. 2 :20). Að taka móti Kristi felur í sér að hlýða öllum boðum hans sem vér þekkjum. “Þér eruð vinir mínir ef þér gjörið það sem eg býð yður.” Jóh. 15 :I4- “Mínir sauðir heyra raust mína, eg þekki þá og þeir fylgja mér.” Jóh. 10:27. “Og eg veit að hans Boðorð er eilíft lif, það sem eg því tala, það tala eg eins og faðir- inn hefir sagt mér.” Jóh. 12:50. “Ekki mun hver sá er við mig segir, Herra, herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá er gjörir vilja föður míns, sem er á himn- um.” Matt. 7:21. “En hvi kallið þér mig herra, herra, en gjörið ekki það sem eg segi?” Lúk. 6:46. “Og á því vitum vér að vér þekkjum hann, ef vér höldum boð- orð hans. Sá, sem segir, eg þekki hann og heldur ekki boðorð hans er lygari, og sannleikurinn er ekki í honum.” x. Jóh. 2 :3, 4. Ef vér neitum að hlýða einu ein- asta atriSi, sem hann býður, hvernig sem vér lítum á það, þá erum vér ekki að taka móti honum heldur að gjöra aðskilnað milli vor og hans. (Jóh. 13.8). Að taka móti Jesú meinar að gefa sig algjörlega á hans vald í öllum hlutum. Það meinar að gjöra alt sem hann býður, að trúa á hann, koma til hans, kannast við hann, fylgja honum, elska hann og vera stöðugur í honum. Hin mest áríðandi spurning fyrir hverja sál er þessi: “Hvað viljið þér gjöra við Jesúm, sem kallast Kristur?” HvaS hafið þér gjört við hann? Fylgt honum eftir álengdar ? Kannast við hann með vörunum, en aldrei leyft honum inn- göngu í hjartað? eða afneitað honum. Viljið þér ekki snúa yður til hans nú og taka móti honum ? Opinb. 3 :20. Þér, sem aldrei hafið viðurkent Krist, hvað ætlið þér að gjöra við hann? ÞVÍ: Ef vér veiturn honum ekki viðtöku, þá höfnum vér honum. Ef vér viðurkennum hann ekki, þá af- neitum vér honum. Ef vér ljúkum ekki upp fyrir honum, þá lokum vér hann úti. Snúið yður til hans nú, frestið því ekki. M. Y.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.