Stjarnan - 01.10.1933, Side 12

Stjarnan - 01.10.1933, Side 12
STJARNAN 156 að efna alt, sem hann hefir lofað. Vér getum glaðst af þessari fullvissu. Yfir- standandi reynsla vor og þjáningar miða aðeins til þess að sýna hvernig trú vor vinnur sigurinn, þetta gefur oss stöðugt meiri og meiri trúarstyrk, og færir með sér yfirgnæfandi fögnuð og þakkargjörð. “Guð gefur oss meira en vér höfum skilning til að biðja um. Hví skyldu börn hans vera áhyggjufull út af fjár- málum, þau þurfa aðeins lítinn hluta af fjársjóðum hans því: “Vor faðir er ríkur að húsum og lönd- um, Hann hefir auð heimsins í sínum hönd- um.” Hann segir einnig: “Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga eruð hlaðnir, og eg mun veita ySur hvíld.” Og enn aftur: “Sjá, eg er með yður alla daga.” Svo faðir minn og yðar uppfyllir daglega allar vorar þarfir og leiðir og varðveitir oss. Dýrmætast af öllu er þó þetta: “Guð elskaði svo heiminn að hann gaf sinn eingetinn son.” Vissulega getum vér treyst vorum volduga, kærleiksríka föður. Vegsömum hann í dag fyrir það hvernig hann hefir ávalt varðveitt oss og alið önn fyrir oss, felum honum óttalausir fram- tíð vora, því ef vér öruggir og hughraust- ir fylgjum honum, þá er sigurinn þegar unninn.” Presturinn var nú svo hrifinn af gleði og þakklæti, sem skein úr augum hans, að söfnuðurinn varð hrifinn af sama anda. Áður en hann hafði lokið ræðu sinni var fólkið alveg búið að gleyma þjáningum prestsins og eins sínum eigin sorgum og áhyggjum. Það var með hjörtum fyltum þakklæti og gleði að fólk- ið söng útgöngusálminn. “Hve öruggan grundvöll Guös útvalda hjörð, “Þú hefir fyr’ trúna, Guðs dýrmæta orð. Meðan verið var að syngja benti prest- urinn Baker djákna, og með hjálp hans komst hann út um dyrnar rétt hjá ræðu- pallinum, svo enginn hafði tækifæri til að hrósa honum eða að láta í ljósi með- aumkvun sína. Hetty kom á móti honum eins og hún var vön. Það voru tár í aug- um hennar er hún heilsaði honum, en það voru gleði en ekki sorgartár. “Ó, Walter, þessi ræða, það var þinn mesti sigur. Eg er svo þakklát að eg gat fengið að heyra hana.” “Eg held,” greip Baker fram í, “að það sé bezt fyrir okkur að koma manni þínum heim, svo fljótt sem unt er, svo hann geti hvílt sig.” “Svo við getum haldið þakklætishátíð fyrir að vera saman aftur,” svaraði Hetty, “og eg get búið til miðdagsmatinn fyrir Walter.” Nú hvarflaði hugur Walters að tóma matarskápnum, honum lá við að fallast hugur, en hann áttaði sig strax. “Gefur oss sigurinn,” hugsaði hann, “við höfum nóg hveiti.” Upphátt sagði hann: “Hvernig líður móður þinni? Eg fékk ekki eitt einasta bréf frá þér alla þessa viku.” “Fyrirgefðu mér, eg las milli línanna í bréfum þínum að það var eitthvað að þér, svo vegna þess móðir mín var nærri orðin frísk aftur, þá sendi eg Macey símskeyti og bað hann að mæta mér í morgun á járnbrautarstöðinni. Eg vissi þú ætlaðir að prédika. Segðu mér hvað þú hefir verið að gjöra og hvers vegna þetta leikfang,” sagði hún gletnislega og benti á hækjurnar. Þegar hann hafði sagt henni hvernig hann gaf í burtu nærfötin sín og hélt svo líkræðu áður en hann fór heim, spurði hún: ‘‘Veit Clarence Smith um þetta?v “Eg held nú ekki,” svaraði hann, “heldur þú að eg gæti breytt þannig að gleðja hann fyrst, og svo eyðileggja gleði hans á eftir. Nú er honum að batna og hann er sá hamingjusamasti maður, sem eg þekki. Ef þörf væri skyldi eg með ánægju gjöra hið sama fyrir hann aftur.” “Eg er viss um aS þú mundir gjöra það,” svaraði hún, “en nú ætla eg að vera heima til að sjá um að þú getir það ekki. Ef nokkur vissi að þú hefðir verið við

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.