Stjarnan - 01.10.1933, Page 15

Stjarnan - 01.10.1933, Page 15
STJARNAN 159 Smávegis Ef tekjur Bandaríkjanna fyrir sölu á öli verða á mánuði hverjum svipaðar og þær voru í apríl, þá munu þær nema 280 miljónum dollara á ári. í stað þess aö ferðast á bíl hefir Musso- lini nýlega tekið upp á því að ferðast á reiðhjóli. Hann hirðir heldur ekki um að vera i einkennisbúningi. Filippseyjarnar eiga ennþá langt í land með að útrýma holdsveikinni. Þar eru 8,000 holdsveikir sjúklingar einangraðir, og 1,000 manns þar að auki fá sýkina á ári hverju. Þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna í sumar kostaði 185 manns lífið. Páfinn segir að einn tilgangurinn með heilaga árið, sem hann auglýsti fyrir nokkru, væri sá að umvenda Englend- ingum. 1 ræðu, sem haldin var fyrir 450 enskum pílagrímum, sem komið höfðu til hátíðahaldsins í Róm, bætti páfinn þessum orðum við: “O'ss virðist tala þessara pílagríma staðfesta þá skoðun, að fólkið á Englandi líður af heimþrá, það langar að komast heim til föðurhúsanna og til móðurkirkjunnar. Af 13 þjóðum, sem skulduðu Banda- ríkjunum 144 miljónir dollara, er féllu í gjalddaga síðastliðinn 15. júlí, borgaði aðeins Finnland skuld sína, 148,592 doll- ara. Finnar eru framsýnir menn. Stjórn- in borgaði alla upphæðina í silfri, sem hafði kostað 36 cent lóðið á heimsmark- aðinum, en Bandaríkjastjórnin tók lóðið á 50 cent, samkvæmt ákvörðun Roosevelt stjórnarinnar, til að draga úr verðmæti gullsins. STJARNAN kemur út mánaðarlega Útgefendur: The Canadian Union Con- ference, S.D.A., 209 Birks Building, Winnipeg, Man. Stjarnan kostar $1.50 á ári i Canada, Bandaríkjunum og Is- landi. Borgist fyrirfram. Ritstjóri: DAVtÐ GUÐBRANDSSON. Afgreiðslukona: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Til athugunar Það er sorglegt að heyra hve margir missa heimili sín og bújarðir af því þeir geta ekki borgað skattana. Flestir ámæla þeim, sem heimta skattana, en gæta þess ekki hve miklum útgjöldum fylkja- og sveitastjórnir þurfa að mæta, og að þær hafa til framkvæmdarstarfs aðeins fé það, sem inn kemur frá fólkinu. Því er ekki að neita að ástandið er ískyggilegt, ef hinu sama heldur áfram, svo fleiri og fleiri missa eignir sínar. I sambandi við þessa erfiðleika kemur mér ósjálfrátt i hug samtal, er eg átti nýlega við einn af nágrönnum mínum. Hann kvaðst þekkja menn, sem reyktu tóbak upp á $3.00 á mánuði og yrði þetta yfir árið nóg upp- hæð til að borga skatt af 160 ekrum af landi. Sá sem þannig notar himr litlu tekjur sínar, hann eyðileggur framtíð sína og sóar eign sinni í reyk. Væri ekki betra að fylgja dæmi piltsins, sem eg varð samferða einu sinni í vor? Hann kvaðst vera hættur að brúka tóbak, hann hafði ekki efni á því. Ef hann gat hætt við tóbaksbrúkun eftir að hafa æft hana í mörg ár, þá geta aðrir einnig gjört það. Með öruggri trú á Guð, iðjusemi, spar- semi og sjálfsafneitun, geta menn jafn- vel nú á tímum verið sjálfstæðir og ham- ingjusamir. S. Johnson.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.