Stjarnan - 01.02.1934, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.02.1934, Blaðsíða 3
STJARNAN :9 “Hví ert þú beygð, sál mín?” “Hví ert þú beygð, sál mín, og ólgar í mér ?” Eftir að maður tekur á móti Kristi, hlýðir honum og heldur hans boðorð, þá mætir maður oft ýmiskonar óvæntri reynslu, svo hinum pýkristna verður fyr- ir að spyrja sjálfan sig, annaðhvort hátt eða í hljóði: “Hversvegna verð eg að mæta öllum þessum vandræðum og erfið- leikum nú, eftir að eg hefi alvarlega snú- ið mér til Guðs? Hversvegna er þessum óvæntu erfiðleikum beint aö mér?” Það er ástæða fyrir þessu. Erfiðleik- arnir koma sem hólmgönguboð, ekki frá Guði, heldur frá óvini hans og þínum, vegna þess sá óvinur ber dauðlegt hatur til Jesú, hans, sem þú hefir valið þér fyr- ir vin og leiðtoga. Það er hvöt fyrir þig að flýja til Drottins og reyna hann, svo þú fáir reynslu fyrir því, að það er aðeins fyrir hans hjálp, hans umönnun, hans varðveizlu, aS þú getur verið óhultur nokkursstaðar í þessum uppreisnar heimi. Fyrstu orð greinar þessarar eru í 42. Davíðs sálmi. Þrisvar sinnum eru þau endurtekin með lítilli breytingu, síðan er oss bent á meðalið við þessari þreytandi reynslu, sem vér allir verðum að mæta: “Vona á Guð, því enn mun eg fá að lofa hann, hjálpræði auglitis míns og Guð minn.” Sálm. 42 :6. Morguninn sem Jesús reis upp, meSan Jerúsalem var öll í uppnámi yfir fréttum þeim er heyrst höfðu að hin nýja gröf Jósefs væri tóm, þá slóst maður í för með tveimur af lærisveinum Krists, er voru á leið til Emaus, daprir og sorgbitnir. Aðkomumaðurinn fór að tala við þá því þeir áttu samleið, og hann spurði hvaða fréttir það væru sem þeir væru svo hug- fangnir af. Þeir aftur á móti spurðu hvort hann væri svo ókunnugur í Jerú- salem, að hann vissi ekki hvaö við hefði borið síðustu dagana, og væri á allra vör- um. “Hvað er það?” spurði hann. Þá sögðu þeir honum fréttirnar, að maður að nafni Jesús hefði verið líflátinn þá síðastliðinn föstudag, og að konur, sem liefðu heimsótt gröf hans snemma þenn- an morgun hefðu sagt að líkami hans væri horfinn, en líkklæðin ein hefðu legið samanbrotin í gröfinni. Ennfremur sögðu þeir að konurnar hefðu séð engla við gröf- ina, sem hefðu fullyrt að Jesús væri risinn upp frá dauðum og mundi mæta þeim í Galílea. Nú fór aðkomumaðurinn að gefa þeim Biblíuskýringu. Hann benti þeim á frá spádómunum að hann, sem þeir væntu að væri sá, sem ætti að endurleysa ísrael— Messías—■, að hann átti að líða og deyja og rísa upp á þriðja degi. Það virðist sem þeir hafi gleyrnt þessurn undraverða spádómi um Krist. Hann lauk máli sínu með þessum: “Átti ekki Kristur að líða þetta og innganga í dýrð sína?” Seinna, eftir að lærisveinarnir höfðu sannfærst um, að það var hinn upprisni Jesús sjálfur, sem hafði talað við þá, og þeir voru komnir til félaga sinna upp í loftsalinn í Jerúsalem, þá birtist Jesús þeim öllum, sýndi þeirn hendur sínar, fæt- ur og síðu og sagði við þá: “Þetta eru þau orð sem eg talaði við yður meðan eg enn var nteð yður, að rætast ætti alt það,

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.