Stjarnan - 01.02.1934, Síða 7

Stjarnan - 01.02.1934, Síða 7
STJARNAN 23 anum sínum. Vinnumenn hans tveir höföu boriÖ hann þangað. ÞaÖ voru 60 mílur til næsta læknis, annar maðurinn hafði farið til að sækja hann, en hinn var heima hjá sjúklingnum og gjörði alt sem í hans valdi stóð til að lina þjáningar hans. Sjúklingurinn hafði fleiri skifti talað í óráði, og nú hélt þjónn hans að hann væri vissulega ekki með sjálfum sér, því hann hafði skipað honum að taka öxi til að ná burtu borðum, sem negld höfðu verið innan á kofan til hlý- inda, En hann var samt sem áður með fullu ráði. Þegar þjónninn hafði rifið upp fjal- irnar þá fann hann lítið Nýja Testamenti alþakið hégóma og ryki. “Þarna er það, þetta er bókin,” sagði sjúklingurinn þegar hann sá hana. “Mað- ur, sem ferðaðist hér um bygðina fyrir 20 árum, þegar eg var að byggja kofann, taldi mér trú um að eg ætti að hafa Biblíu í húsinu, svo eg keypti hana. Eg lagði bókina þarna upp á silluna, en þegar eg hafði fullgert vegginn þá var bókin horf- in. Eg vissi hvar hún hefði fallið, en eg nenti aldrei að hafa fyrir því að taka upp f jalirnar til að ná henni. Eg hugsa það sé nú úti um mig, og ef þessi bók er það sem hann sagði, þá vil eg fá að heyra hana, því hann sagði að bókin talaði um Guð, og hvernig menn gætu búiS sig undir að mæta honum, og þetta er það sem eg þarf nú með. Viltu lesa fyrir mig?” Þannig atVikaðist það að hinn vin- gjarnlegi daglaunamaður fór að lesa fyrir sjúklinginn í þessari bók, sem svo lengi hafði legið ónotuð. Fyrir tilhlutan Guðs góða anda flettir maðurinn upp í þriðja kapítula í Jóhannesar guðspjalli, og þegar hann las hina guSdómlegu opinberun um kærleika Föðursins, þá lyfti sjúklíngurinn hendi sinni og hvíslaði: “Það er nóg— lestu aftur—þat — sem—það — segir— Hann elskar mig.” Sjúklingurinn öðlað- ist frið að lokum. Litla Testamentið, sem lengi hafði verið vanrækt, en aldrei gleymst, brást ekki vonum þessa manns, sem trúði því að Guðs rödd talaði til sín gegn um orðið. A. F. Ragatz. (ritari ameríska Biblíufélagsins). Treyátið Guði (Framh. frá bls. 18) svo vonaði hann, að ef hann segði fólki frá reynslu sinni þá mundi það fúslega vilja læra að biðja til Guðs og treysta honum. Eg bauð honum að koma með okkur í bifreiðinni til Rusangu en hann vildi það ekki. Hann langaði til að heimsækja 5 eða 6 fleiri þorp og prédika þar fyrir fólkinu um þann Guð sem gjörði hann heilbrigðan þegar læknirinn sagði að hann mundi deyja. Svo við snerum til baka án hans. Viku seinna kom hann á trúboðs- stöðina og hafði þá gengið meira en 100 mílur til þess allstaðar á leiðinni að geta vitnað um Guð. Eg var einmitt að hugsa um hve rnargir hefðu verið fúsir til að leggja slíkt á sig. Morguninn eftir sögðum vér nemendum vorum á skólanum frá Mudima og hvern- ig Guð hefði læknað hann, síðan spurðum vér þá: “Hvers vegna haldið þér Guð hafi svarað bænum vorum og læknað Mudima?” “Af því Guð vissi að Mudima mundi gjöra alt sem hann gæti, til að segja öðr- um frá hinum sanna Guði,” svaraði einn drengurinn. Nú hefir Mudima hætt við jarSyrkj- una og ver öllurn sínum tíma til þess að flytja sinni eigin þjóð fagnaðarerindi Krists. O. B■ Robinson.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.