Stjarnan - 01.02.1934, Page 15
STJARNAN
3i
Smávegis
ÞaÖ tekur aðeins einn sjöunda part af
sekúndu fyrir orð að fara kring um hnött-
inn, eftir því sem Marconi skýrir frá.
ÞaÖ telst svo til aÖ einn maÖur deyi úr
botnlangabólgu hverjar 29 mínútur í
Bandaríkjunum. Dauðsföll úr þessum
sjúkdómi nú, eru þriðjungi fleiri aÖ til-
tölu heldur en fyrir 15 árum síðan.
Hugsið yður bara. Áttundi hver íbúi
heimsins býr í Afríku, og íbúatalan þar
tvöfaldast á hverjum 20 árum. Það er
eins langur vegur kringum strendur henn-
ar eins og í kringum hnöttinn. Afríka er
svo stór að þar kæmust fyrir Bandaríkin,
Bretlandseyjar, Þýskaland, Frakkland,
Noregur, Svíþjóð, Italia, Argentína, Indía
fimtíu Belgíur og 6 Spánar.
William Green, forseti verkamanna-
sambandsins segir aÖ 3,600,000 atvinnu-
lausir menn hafi fengið vinnu síðan í marz
í vor sem leið. 1,700,000 þessara manna
fengu vinnu, sem árangur af styttum
vinnutíma, samkvæmt fyrirmælum Roose-
veits forseta, en þó eru ennþá 10,000,000
manna atvinnulausir, svo Mr. Green
stingur upp á að stytta vinnutímann enn
meira.
Nú er hægt að ná sambandi til að tala
við fólk gegn um 30,780,000 talsíma. Það
eru 92 hundruðustu af öllum talsímum
sem notaðir eru í heiminum. Það er
einnig hægt að tala í síma til 19 gufu-
skipa. Það kostar $49.50 að tala til
Sumatra í þrjár mínútur, til Gyðingalands
$37.50; til Manila $30.00, og frá $30.00
til $35.00 að tala til ýmsra staða í Evrópu.
Fólkið í Bandaríkj unum brúkar 910,-
000,000 eldspýtur á dag.
STJARNAN
kemur út mánaöarlega
Útgefendur: The Canadian Union Con-
ference, S.D.A., 209 Birks Building,
Winnipeg, Man. Stjarnan kostar $1.50
á ári í Canada, Bandaríkjunum og Is-
landi. Borgist fyrirfram.
Ritstjóri:
DAVÍÐ GUÐBRANDSSON.
Afgreiðslukona:
MISS S. JOHNSON,
Lundar, Man.
Almenn fagnaðarhátíð var nýlega hald-
in í Rússlandi íyrir nokkru yfir því að af-
staða landsins til Bandaríkjanna var aftur
komin í lag. William C. Bullitt hefir ver-
ið útnefndur sendiherra Bandaríkjanna
til Rússlands.
Ef verðlaun væru gefin fyrir hraða á
ferðum yfir Atlantshafið, þá sý.na skýrsl-
urnar að heiðurslaunin ættu að ganga til
“Graf Zeppelin.” Tvö síðastliðin sumur
hefir þessi risavaxni flugbátur lagt leið
sína gegn um loftið milli Friedrichsafen
á Þýskalandi og Pernambuco eöa Rio de
Janeiro í Brazilíu, það eru 5,000 mílur
vegar. Hraðinn hefir verið að meðaltali
61 míla á klukkustund. Flugbátur þessi
hefir yfir 35 sinnum farið yfir Atlants-
hafið, og fylgt ákveðnum áætlunum, far-
ið austur eða vestur hverjar þrjár vikur,
frá maí til október, flutt þúsundir far-
þega og þúsundir punda af pósti og vör-
um, og aldrei komið neitt óhapp fyrir. Til
að byrja með var fargjaldið 3,000 dollar-
ar, en nú er það komið niður í 476 dollara.
Eg fyrirverð mig ekki fyrir Krists
fagnaðarerindi, því það er kraftur Guðs
til sáluhjálpar hverjum þeim, sem trúir.
—Páll postuli.
Sælir eru þeir, sem heyra Guðs orð og
varðveita það.
—Jesús.