Stjarnan - 01.03.1936, Side 8

Stjarnan - 01.03.1936, Side 8
24 STJARNAN Hættulegur svefn Það er ekki ætíÖ hættulaust a‘ð sofa. Einu sinni snemma morguns kviknaÖi eldur í sveita- bæ í Óhio ríkinu. Bóndinn og kona hans vöktu bæði börnin og tóku þau burt úr húsinu, sern var að brenna. Eitlu seinna var barnanna sakn_ að og fundust þau þá sofandi í rúmum sinum inni í húsinu. Þau voru borin út aftur og er þau voru vöknuð til fulls kváðust þau ekki hafa vitað áður að kviknað var í húsinu, og' sögðust hafa verið svo syfjuð að þau gátu ekki um annað hugsað heldur en komast aftur inn í rúmin til að sofa. Svefn syndarinnar og andvaraleysisins er ennþá hættulegri heldur en náttúrlegur svefn í húsi, sem er að brenna, því hann leiðir til eilífs dauða, ef maður ekki vaknar í tíma og snýr sér til Jesú, hans, sem einn getur frelsað frá dauðanum. Smávegis Kvenfélaga sambandið í Egyptalandi, sem stendur fyrir jafnrétti kvenna, hefir sent beiðni til forseta stjórnarinnar um að afnema fjöl- kvæni. “Great Salt Lake” í Utah er að minka mik. ið að ummáli. Það er aðallega vegna þess, að bæði borgir og bændur eru farnir að nota svo mikið af vatninu úr ám og lækjum, sem áður runnu óhindrað í vatnið. Þegar reglugjörðin kom út í Bandaríkjun- um, sem ákvað verð á kartöflum, þá stofnuðu menn félag með konu í Philadelphia í broddi fylkingar, til að nota lóðirnar bak við húsin til kartöfluræktunar. Þetta á að vera sem mót- mæli gegn því að stjórnin ákveði söluverðið. Cherokee Indíánar í Oklahoma hafa sitt eigið fréttablað, prentað með þeirra eigin bók- stöfum. Bandaríkin framleiða miklu meiri olíu held. ur en nokkurt annað land í heimi. Auðugustu olíubrunnarir eru í Texas, Oklahoma og Cali- forníu. Rússland er annað i röðinni með oliu- framleiðslu. STJARNAN kemur út einu sinni á mán- uði. Verð: $1.00 á ári. Borgist fyrirfram. Útgeferidur: The Canadian Union Con- ference of S.D.A., 209 Birks Bldg. Wpeg. Ritstjórn og afgreiðslu annast MISS S. JOHNSON, Lundar, Man., Can. Sagt er að Rússland ætli að nota 15-20 biljónir dollara til bygginga á yfirstandandi ári. Mölur getur étið af fatnaði 12 sinnum sína eigin þyngd. Glæpamálakostnaður í Bandaríkjunum nem_ ur um 125 dollurum á mann að meðtöldum konum og börnum. Líka er sagt að einn af hverjum 25 innbyggjendum hafi einhvern tíma á æfinni haft nafn sitt innritað á glæpamanna- listann. Venezuela var eitt af þeim fáu löndum í heiminum, sem hafði meiri tekjur en útgjöld, og átti því fé í sjóði þegar einveldisforsetinn Juan Vicente Gomez dó, fyrir skömmu síðan. Engin verðbréf stjórnarinnar eru i höndum útlendinga, og peningamarkaður landsins er á- litinn hinn áreiðanlegasti í heimi. Stjórnir 12 ríkja áttu að borga niður skuld- ir sínar til Bandaríkjanna 15. des. síðastliðinn. Finnland var hið eina ríki, sem stóð í skilum. Menn ætla að um ein miljón Indíána hafi verið í Norður-Ameríku þegar Columbus lenti þar fyrst. Nú er tala þeirra aðeins um einn þriðji af miljón. Aðeins einn þriðji af íbúum heimsins borð- ar með hníf og gafli. Annar þriðji hlutinn not. ar smáspýtur, en hinir nota ennþá aðeins fing- urna. Henry Ford hefir keypt vindmyllu í Vestur- Yarmouth, Massachusetts, hún kvað vera sú elzta, sem til er í Ameríku; hafði verið bygð af pílagrímunum fyrir 300 árum síðan. Mr. Ford ætlar að láta flytja hana á forngripa- safn sitt í Dearborn, Michigan.

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.