Stjarnan - 01.01.1940, Page 7

Stjarnan - 01.01.1940, Page 7
STJARNAM 7 “Hann ber umhyggja fyrir þér’’ AlstaÖar, sem eg ferðast meðal safnaÖa vorra heyri eg sögur um GuÖs nákvsemu um- hyggju fyrir börnum sínum þegar þau eru í neyð eða vanda stödd. Menn hafa gleði af að segja, frá þessu, því það sannfærir þá um að englar Guðs eru með þeirn nú eins og þeir ^oru með Guðs börnum á fyrri tímum. Það er mjög sjaldan að fólk segir mér frá sinni eigin reynslu, heldur frétti eg það frá þeirn, sem eru vinir eða kunningjar þeirra. Þeir, sem hafa fengið sérstaka reynslu finst Þeir leiði athygli að sjálfum sér mieð því að segja apinberlega frá hvernig Guð hefir svar- að bænum þeirra. En ættum vér ekki að segja ,frá bænheyrslu Guðs og gæðsku hans við oss öðrum til uppörfunar og trúarstyrk- Ingar. Hér er frásaga um eina trúsystur vora, sem eg heyrði í Norður Evrópu í sumar sem leið. Það var fyrir fleiri árum síðan í strjál- bygðu héraði, það var vetur og mikill snjór á jörðu. Ung stúlka, sem var að selja bækur viltist í skóginum, það var farið að dimima. Hún var orðin þreytt óg hætta á að hún frysi í hel. Það var talsvert kafald og óhugsandi fyrir hana að brjótast lengra áfram í myrkr- inu. Hún féll á kné þarna milli trjánna og fól Guði sálu sína, ef hún skyldi deyja þarna 1 kuldanum, eins og hún bjóst við. Meðan hún baðst fyrir fann hún eitthvað mjúkt snerta hálsinn á sér. Hún áttaði sig strax á að það var flipi á hesti, og rétt á eftir heyrir hún mann tala til hestsins. Þetta var þá maðurinn, sem fór með póstinn út um landið. Hann hafði líka vilst út af braut- inni. Þegar maðurinn talaði til hestsins, þá kallaði stúlkan: “Hver er þar? “Hvað ert þú að gjöra hér?” svaraði hann. “Eg er Miss—,” sagði hún, “eg hefi vilst og get ekki fundið veginn.” Þá svaraði imaðurinn: “Eg hefi líka vilst, og það er í fyrsta sinni að eg hefi vilst út af vegi hér. Kom þú inn í vagninn. Hesturinn getur fundið veginn fyrir okkur.” Maðurinn gaf hestinum lausan tauminn og lét hann ráða f erðinni, og ekki leið á löngu þar til hann var kominn á brautina, sem lá inn til þorpsins. Það var ekkert einkennilegt þó hesturinn fyndi veginn, það er náttúrueðli gefið skepn- unni að rata. Hið dásamlega var að hestur- inn, sem gat fundið veginn skyldi hafa farið burt af veginum þangað sem stúlkan var í snjónum að biðja til Guðs. Hér er það sem vér sjáum gæðsku og um- önnun Guðs. “Hann ber umihyggju fyrir þér.” W. A. Spicer. Draumur hennar rættiál Fyrir skömmu síðan voru tvær ungar stúlkur að selja Biblíulestra bók út um landið í Colorado. Einu sinni þegar þær voru á gangi eftir þjóðveginum sáu þær lítið hús kippkorn í burtu uppi í fjallshlíð. Báðar héldu þær að engin líkindi væru til að þær gætu selt neitt þar, svo þær ætluðu að fara fram hjá Iþv.í og þangað sem meiri líkindi væru til að þær gætu selt eitthvað. Þær höfðu aðeins gengið stuttan spöl þegar önnur stúlk- an staðnæmdist og sagði að þær vanræktu skyldu sina ef þær færu fram hjá húsinu, svo þær báðar sneru til baka til að heimsækja þá, sem þar kynnu að búa. Þegar þær börðu að dyrum kom kona út og sagði við þær; “Þið stúlkur hafið bók handa tnér.” Þær spurðu hvað hún meinti. Þá sagði konan: “Maðurinn minn dó fyrir þremur vikum síðan. Eg varð svo þunglynd og leið á lífinu að eg ásetti mér að gjöra enda á tilveru minni, en ætlaði þó að bíða með það til morguns. Þá um nóttina dreymdi mig að tvær stúlkur komu upp að hújsinu, og eg heyrði rödd sem sagði: “Þess- ar stúlkur kama að heimsækja þig, og þær hafa bóik, sem mun færa þér boðskap vonar og huggunar.” Þessi draumur var svo ein- kennilegur og hafði svo mikil áhrif á mig, að eg hætti við áform mitt. Nú eruð þið komnar. Hvar er bókin?” Stúlkurnar sýndu henni nú bókina og kon- an sagði: “Svo þetta er bókin, sem á að gefa mér von?” Hún keypti bókina, og þessi reynsla styrkti mjög trú hennar, og einnig trú ungu stúlknanna, sem nú ásettu sér að fara aldrei framhjá neinu heiimiili. Guð gefur

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.