Stjarnan - 01.08.1941, Qupperneq 2
66
'"»
I :íí
STJARNAN
hver annan með þessum orðum.” I. Þess.
4:13-18.
ó hvílík fagnaðarstund það verður fyr-
ir þá, sem hafa liðið ofsóknir, skort, hung-
ur og harðrétti að fá að fara heim með
honum, sem veitir þeim fyllingu fagnaðar
og gleði, og gefur þeim inngöngu í ríkið
þar sem réttlætið mun búa.
En hvað verður um þá, sem hafa lokað
hjörtum sínum fyrir kærleika Guðs, sem
hafa snúið baki við honum sem gaf líf sitt
til að frelsa synduga menn? Hvað þýðir
endurkoma Krists fyrir þá?
Hann kemur ekki til þeirra sem frels-
ari. Þeir höfðu hafnað boðskapnum um
hans frelsandi kærleika meðan ennþá var
tími til að veita honum viðtöku. Það
verður ekkert fagnaðarefni fyrir þá, að
sjá hann koma í skýjunum. Þeir skelfast
af hugsuninni um komu hans. Jóhannes
postuli segir: “Þegar Lambið opnaði sjötta
innsiglið sá eg að mikill jarðskjálfti varð,
sólin sortnaði eins og hærusekkur og tungl-
ið varð eins og blóð. Stjörnur himinsins
hröpuðu niður á jörðina, eins og þá fíkju-
tré skekið af stormvindi kastar niður
fíkjum sínum. Himininn hvarf eins og
samanvafið bókfell og hvert fjall og ey
færðist úr stöðvum sínum. Konungar jarð-
arinnar, höfðingjar og herforingjar, auð-
menn og ríkismenn, þegn og þræll, fólu
sig í hellum og hömrum fjalla og sögðu til
fjallanna og hamranna, hrynjið yfir oss og
felið oss fyrir ásjónu þess, sem í hásætinu
situr og fyrir reiði lambsins, því nú er
kominn sá mikli dagur hans reiði, hver
fær nú staðist? Op. 6:12-17.
í einni af dæmisögum sínum bendir
Jesús á hinn síðasta aðskilnað milli þeirra,
sem munu eignast ríkið með honum og
hinum sem verða eilíflega útilokaðir.
“En þegar mannsins sonur kemur í
dýrð sinni og allir englar með honum, þá
mun hann sitja í sínu dýrðarhásæti og
allar þjóðir munu safnast til hans; hann
mun aðskilja þá eins og þegar hirðir skii-
ur sauði frá höfrum, og skipa sauðunum
sér til hægri, en höfrunum til vinstri
hliðar.
“Þá mun konungurinn segja við þá,
sem eru honum til hægri hliðar: Komið
þér ástvinir míns föðurs, og eignist það
ríki, sem yður var fyrirbúið frá upphafi
veraldar. Hungraður var eg, og þér gáfuð
mér að «ta;'þyrstur var eg, og þér gáfuð
mér að drekka; gestur var eg, og þér
hýstuð mig; nakinn var eg, og þér klædd-
uð mig, sjúkur, og þér vitjuðuð mín; i
myrkvastofu, og þér komuð til mín.
Þá munu hinir réttlátu svafa honum og
segja: Herra, hvenær sáum vér þig hungr-
aðan og söddum þig, eða þyrstan og gáf-
um þér að drekka. Hvenær sáum vér þig
gest og hýsfum þig, nakinn og klæddum
þig? Nær sáum vér þig sjúkan eður í
myrkvastofu og vitjuðum þín? Þá mun
konungurinn svara og segja við þá: Sann-
lega segi eg yður, að hvað sem þér gjörðuð
við einn af þessum minstu bræðrum mín-
um, það hafið þér mér gjört.
Síðan mun hann segja við þá sem eru
honum til vinstri hliðar: farið frá mér
bölvaðir í þann eilífa eld, sem búinn er
djöflinum og árum hans. Því hungraður
var eg og þér gáfuð mér ekki að eta;
þyrstur var eg og þér gáfuð mér ekki að
drekka; gestur var eg og þér hýstuð mig
ekki, nakinn var eg og þér klædduð mig
ekki; sjúkur var eg og í myrkvastofu og
þér vitjuðuð mín ekki.
Þá munu þeir svara: Herra, nær sáum
vér þig hungraðan eður þyrstan gest eða
nakinn, sjúkan eður í myrkvastofu, að vér
ekki þjónuðum þér? En hann mun svara
Sannlega segi eg yður, það sem þér ekki
gjörðuð einum af þessum mínum minstu
bræðrum, það gjörðuð þér eklci heldur mér.
Þá munu þessir fara til ævarandi refsing-
ar en hinir réttlátu til eilífrar sælu.”
Matt. 25:31-46.
Reikningsskapardagurinn nálgast skjótt.
Jesús kemur bráðum til að gefa sérhverj-
um eftir því sem hans verk verða. Endur-
koma Krists er sá vonargeisli sem lýst
getur hinum undirokuðu, þjáðu Guðs
börnum. Það er heiðursvert alt, sem menn
leitast við að gjöra til að létta neyð og
bæta kjör hinna bágstöddu, en þegar alt
kemur til alls þá getur enginn maður
læknað það mein, sem á rót sína í guðleysi,
eigingirni, hroka, valdafíkn, grimd og
spillingu af öllu tagi, sem að meira eða
minna leyti ræður í hjörtum þeirra, sem
ekki hafa gefið Kristi líf sitt. Eina lækn-
ingin við böli heimsins er endurkoma
Krists í dýrð og veldi.
Þetta er eina vonin fyrir hið þjáða
mannkyn. En það er meir en von. Vonir