Stjarnan - 01.11.1941, Page 5
stjarnan
Dr. W. B. Riley, mjög þektur baptista-
presur kemst svo að orði:
Það er víst mótmælalaust satt, að það
eru ekki þrír enskumælandi skólar í öllum
norðurhluta Bandaríkjanna, er tilheyra
þessum stærri kirkjudeildum svo sem
baptistum, methodistum, presbyteriönum
og congregationalistum, sem eru lausir við
áhrif þeirrar vantrúar, sem gengur undir
nafninu nútíðarþekking (modernism). Hið
stærsta University sem i Ameríku bar
baptistanafnið, hefir í mörg ár haldið
menn, sem eru þektir sem vorra tíma mest
áberandi trúleysingjar. Skólastjóri næst
stærsta baptista skólans í Ameríku sagði
í áheyrn minni: “Jesús Kristur var ekkert
fremur algildur dómari um núíðar skoðan-
ir á ýmsum biblíukenningum heldur en
Thomas Aquinas var um nútíðar þekkingu
á rafljósi.”
“The Menace of Modernism,” pp. 115,
117. Tekið upp í blaðinu “Review and
Herald,” 17. jan. 1924.
Véfenginga kenningarnar eru fyrsta
stig hættunnar, sá guðsafneitunarandi,'sem
birtist í blaðinu O.B.U. í Winnipeg í vetur,
þar sem kristindómurinn er kallaður
“eiturlyf” og hin stærsta bölvun verkalýðs-
ins, er annað stig hættunnar. Þriðja stig
hættunnar er byltingarinnar blóðuga hönd.
Þö er bikarinn fullur. Þessi þrjú stig eru
93
ávalt tröppugangurinn á glötunarvegi þjóð-
anna.
Fyrsta hreyfingin og partur af nr. 2,
hefir þegar brotist eins og skógareldur inn
yfir landamæri íslenzku þjóðarinnar. Eig-
um vér ekki að hrópa til drottins himn-
anna og biðja hann að opna flóðgáttir him-
insins og hella kæfandi straumum niður
yfir þenna andlega eldvarg. Drottinn er
máttugur, hann hefir oft kipt í burt mönn-
um og jafnvel heilum þjóðum, sem í frek-
um guðsafneitunaranda hafa sótt gegn hin-
um “heilaga ísrael. Einstakir menn hafa
stundum fallið svo snögglega, að þeir hafa
ekki getað endað við guðlöstunarsetningar
sínar. Drottinn gerir undur og stórmerki
ennþá.
Mikill hluti kristna heimsins hrópar:
“Burt með hinn heilaga úr ísrael.” Hinn
heilagi lítur yfir hinn sundurflakandi, sið-
spilta og guðsafneitandi forherta heim,
grætur og segir:
“Ef einnig þá hefðir á þessum degi
(tíma) vitað, hvað til friðar heyrir.” Heim-
urinn leitar að frið, reynir að semja frið,
talar um frið, en er friðlaus og afneitar
því, sem til friðar heyrir. Þess vegna mun
honum verða “þröngvað á alla vegu.” Það
er dómur hins rét-tláta. “ó land, land, heyr
orð Drottins.” Jer. 22,29.
Pétur Sigurðsson.
“Veldu þá lífið”
Guð neyðir engan til hlýðni móti hans
eigin vilja. Hann óskar ekki eftir þræla
þjónustu. Hann vill menn elski hann af
því hann er elskuverður, og hlýði honum
af þvi þeir skilja og meta elsku hans, rétt-
læti og kærleka. Allir, sem í sannleika
þekkja Guð og eiginlegleika hans munu
elska hann, laðast að honum og dást að
eiginlegleikum hans.
Sú gæðska, miskunnsemi og kærleikur,
sem lýsti sér í lífi og kenningum Krists
birtir oss eiginlegleika föðursins. Jesús
sagði sjálfur að hann kendi ekkert nema
það sem hann lærði hjá föðurnum, og
stjórn Guðs er í fullkomnu samræmi við
áminningu Krists er hann segir: “Elskið
óvini yðar.” Það er íbúum alheimsins til
góðs að Guð ihegnir hinum óguðlegu, það
er einnig bezt fyrir þá, sem Hða hegning-
una. “Guð vill að allir verði hólpnir.”
Hann umkringir þá með kærleika sínum,
veitir þeim þekking á vilja sínum, og býð-
ur þeim náð sína og miskunn, og það aftur
og aftur. En margir fyrirlíla kærleika
hans, fótum troða lögmál hans og hafna
nöð hans. Þeir njóta gjafa hans en hafna
gjafaranum. Þeir hata Guð af því orð
hans ávítar þá fyrir syndir þeirra.
Guð er langlyndur og þolinmóður við
þá, en reikningsdagurinn rennur upp að
lokum, sem ákveður afdrif þeirra. Ætti
hann þá að taka þá til sín sem uppreisnar-
menn og neyða þá til að gjöra vilja sinn?
Nei, það er óhugsandi. Þeir gætu ekki
orðið hamingjusamir með það.
Það er val hinna óguðlegu sjálfra sem
ákveður forlög þeirra. Þeir hafa sjálfir
útilokað sig frá himni með því að mis-