Stjarnan - 01.07.1942, Qupperneq 6

Stjarnan - 01.07.1942, Qupperneq 6
54 STJARNAN Sá er vinur sem í raun reyniál Félagsskapur sá, sem gefur út skýrslu þessa kannast við þá skyldu að ellska Guð af öllu ihjarta og náungan eins og sjálfan sig, og vinnur því að líknarstörfum á heim. ilunum og í 'bygðinni. Félagsskapur þessi samanstendur af fjölda smærri líknar- félaga Oíg nefnast Dorcas líknarfélög,” og Sameinuð Dorcas félög, þau standa í sam- bandi við Heimilis-hjúkrunarfélag, og eru dreifð út um allan heim, en öflugustu stöðvar þeirra eru í Norður-Ameríku. Félög þessi ileitast við að hjálpa þar sem þörf gjörist, og sýna samhygð og hlut- tekningu, þeim sem bágt eiga að einhverju leyti. Meðlimir þeirra eru reiðubúnir að hughreysta og biðja með þeim, sem mist hafa ástvini sína, eða styrkja þá, sem eru niðurbeygðir af ótta og kvíða, svo hræðsla þeirra og áhyggjur megi víkja úr vegi fyr- ir von og trausti til Guðs. Stundum hjálpa þessi félög til að finna týndan son eða dóttur, útvega föðurnum vinnu, eða þá móðurinni, ef hún er tilneydd að fara út að vinna, og þá sjá um að litið sé eftir börnunum meðan móðirin er heimanað. Stundum Ihefir sjúkdómur orsakað erfið- leika á heimilinu, svo þörf er á hjálp til að vinna með lækninum eða hjúkrunar- konunni til þess sjúklingurinn geti náð heilsu. Má vera engin matvæli séu i skápnum, eða enginn eldiviður á heimilinu eða skort- / ur sé á fatnaði til dags eða nætur. Heim- ilis áhöld vantar eða þakið lekur. Skeð getur þörf sé á að skúra gólfið eða hreinsa til í húsinu. Alt þetta smávegis, sem er svo nauðsynlegt á heimilinu hefir fyrstu réttar kröfu til líknarfélaga vorra. Öll félögin verja miklum tima til að laga föt og sauma þau upp og hafa til bæði fatnað og skó fyrir menn, konur og börn ætíð á reiðum höndum, og jafnvel hús- gögn til að hjálpa þeim, sem ekkert hafa. Einnig er lagt upp nokkuð af matvælum, niðursoðnum og þurkuðum ávöxtum og fleira, svo ihægt sé að taka til þess þegar á liggur. Þau starfa einnig í sambandi við landvarnarfélög með þvi að sauina, prjóna og undirbúa sáraumbúðir. Skýrsla um starf þessara félaga stendur annarsstaðar i blaðinu. Starf vort er ekki alt innan takmarka Norður-Ameriku. Þau hafa sent svo skip- pundum skiftir til trúboðsstöðva og lækna- trúboða í 'stríðslöndunum, bæði til Evrópu og Asíu. Amerísk hjúkrunarkona, sem fór aftur til Tianganyika í Austur-Afríku tók með sér mikið af aillskonar nauðsynj- um til hjúkrunar og súraumhúða, sem líknarfélögin lögðu ti). Þetta er aðeins eitt atvik þar sem slik hjálp reynist svo mikils virði, af því það er svo erfitt að draga að sér slíkar nauðsynjar nú á dögum. Nokkrar líknarfélagskonur í Halifax.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.