Stjarnan - 01.08.1945, Side 1
.-^=r
STJARN [ AN
ÁGÚST 1945 LUNDAR, MAN.
Hið eilífa og œvarandi
Til er það, sem er eilíft í eðli sínu og
til er það, sem er aðeins stundlegt. Sumt
helst við eins og hinar eilífu hæðir, en
sumt er eins og hverfandi skuggi, eins og
fegurð hinnar hnígandi sólar, eða morgun-
döggin. Guð er eilífur, svo eru eiginleik-
ar hans, réttlæti og kærleikur. Eiginleg-
leikar Guðs eru óumbreytanlegir, um
menn er öðru máli að gegna. Enginn mað-
ur er fullkominn, enginn óumbreytanleg-
ur.
Eins og Guð er óumbreytanlegur og
eiginlegleikar hans, þannig er einnig lög-
mál hans óumbreytanlegt. Lögmál Guðs
er endurskin eiginlegleika hans, og er því
ævarandi eins og hann er sjálfur. Guð er
fullkominn, sama má segja um lögmál
hans. Fullkomið lögmál getur ekki orðið
breytt, nema með því að setja ófullkomið
í stað hins fullkomna. Menn breyta sínum
lögum endalaust, af því þau eru ófullkom-
in, og eru bygð á þeirri sönnu grundvallar-
reglu réttlætisins. Ef breyta skyldi lög-
máli Guðs eða afnema það, hver mundi
þá hafa rétt til að gjöra slíkt nema Guð
sjálfur. Það var Guð, sem gaf lögmálið,
Guð, sem skrifaði það, og Guð, sem heimt-
aði hlýðni við það. “Og Drottinn talaði við
yður út úr eldinum, hljóm orðanna heyrð-
uð þér, en mynd sáuð þér enga. Þér heyrð-
uð aðeins hljóminn, þá birti hann yður sátt
mála sinn, sem hann bauð yður að halda,
tíu boðorðin, og hann reit þau á tvær stein-
töflur.” 5Mós. 4:12.13.
Maðurinn hefir als ekkert vald yfir þessu
lögmáli Guðs. Það er Guðs lögmál, og
enginn nema hann gæti afnumið það eða
brreytt því á nokkurn hátt. Hvergi höf-
um vér heyrt að Guð hafi afnumið lög-
málið, eða að hann hafi sagt mönnum að
þeir þyrftu ekki lengur að hlýða því. Jesús
nam það ekki úr gildi og lét aldrei á sér
heyra að menn þyrftu ekki lengur að gefa
gaum að því. Þvert á móti. Hann tók því
fram að hann væri ekki kominn til að
breyta hinu minsta atriði þess. “Ætliö
ekki að eg sé kominn til að niðurbrjóta
lögmálið eða spámennina, eg er ekki kom-
inn til þess að niðurbrjóta, heldur til þess
að uppfylla, því sannlega segi eg yður,
þangað til himin og jörð líða undir lok
mun ekki einn smástafur eða stafkrókur
lögmálsins undir lok líða, unz alt er komið
fram.” Matt. 5:17.18.
í stað þess að kenna að Guðs lögmál
væri afnumið benti Jesús á að það stæði
í nánu sambandi við eftirsókn manna eft-
ir eilífu lífi. Einu sinni kom ungur mað-
ur til Jesú og spurði hvað hann ætti að
gjöra til að öðlast eilíft líf. Jesús svaraði
honum: “Ef þú vilt innganga til lífsins þá
haltu boðorðin.” Matt. 19:17. Það var ekk-
ert efamál í huga unga mannsins hvaða
lögmál Jesús talaði um, því hann sagði:
“Þú skalt ekki morð fremja, þú skalt ekki
drýja hór, þú skalt ekki stela, þú saklt
ekki ljúgvitni bera, heiðra föður þinn og
móður.” 18 19. vers. Það voru tíu boðorðin
er Guð talaði í Sínaí fjalli, sem Jesús átti
við, því hann nefndi fimm þeirra. Það var
þetta lögmál, sem Jesús benti honum á að
halda ef hann óskaði að öðlast eilíft líf.
Jesús sýndi að Guðs boðorð voru kær-
leiks lögmál, því eftir að hafa minst á
boðorðin, sem viðvíkja afstöðu manna
hvers til annars gaf hann í fáum orðum
aðal atriðið í öllum boðorðunum: “Elska
skaltu náunga þinn, sem sjálfan þig ” Enn-