Stjarnan - 01.06.1947, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.06.1947, Blaðsíða 5
STJARNAN 53 trú og trausti til mín; því eg mun aldrei y&gefa yður. Þetta umboð, sem frelsarinn gaf postul- Urn sínum, nær til allra trúaðra. Það til- úeyrir öllum þeim, sem trúa á Krist, alt iú enda veraldarinnar. Allir þeir, sem fá hlutdeild í lífi Krists, verða að vinna að frelsun meðbræðra sinna. Það eru ekki allir, sem geta prédikað fyrir fjölda áheyrenda, en allir geta hjálp- einstaklingnum. Allir þeir, sem hjálpa hinum nauðstöddu, hugga hina harm- þrungnu og fræða syndarana um hinn ó- endanlega kærleika Krists, eru þjónar Krists. Þessir eru vottar Krists. •f ♦ ♦ Lánsfé þitt Stundum þegar vér heyrum ræðu um Pundin, sem þjónunum voru fengin til að uvaxta meðan herra þeirra var í burtu, þá kemur oss til hugar hvort vér höfum nokk- u<5, sem vér getum ávaxtað. Allir hafa náð- argjafir, sem þeir geta notað sjálfum sér °g öðrum til blessunar, og ef vér verjum þeim vel, getum vér ef til vill hjálpað öðr- Uur til að framkvæma það, sem vér gætum aldrei gjört sjálfir. Tökum til dæmis hluttekningu og vin- Ejarnleika, glaðlyndi og gjafmildi. Ef vér þroskum þessar dygðir geta þær veitt bæði sjálfum oss og öðrum ómetanlega ham- iugju. Fyrir mörgum árum síðan var hópur af drengjum í litlum skóla í ríkinu Indiana, sem voru svo óviðráðanlegir, að enginn kennari fékkst til að kenna.þar nema fáein- ar vikur. í vandræðum sínum fékk skóla- nefndin stærsta og sterkasta manninn, sem þeir fundu fyrir kennara én árangurslaust. Hver kennarinn eftir annan sagði upp skól- anum og drengirnir urðu því óviðráðan- legri. Einn dag fékk svo skólanefndin bréf frá stúlku, sem bauðst til að kenna á skólan- um. Nefndin hélt það væri gagnslaust fyrir hana að reyna, en það var þó eitthvað við hféfið, sem hafði þau áhrif á formanninn, að hann ásetti sér að tala við stúlkuna. En honum leizt ekki á blikuna, þegar hann sá hana. Þetta var lítil unglingsstúlka. En alvörugefni hennar og vingjarnleiki réðu þó úrslitunum, svo hann hálf hikandi sam- þykti, að hún gjörði tilraun með að kenna. Þegar drengirnir fréttu að ung stúlka kæmi til að kenna þeim, hlóu þeir og tóku ráð sín saman, hvernig þeir gætu hrætt hana fyrsta daginn, svo hún færi burt. Daginn, sem skólinn byrjaði, komu þeir allir í hóp með hávaða miklum, duttu hver um annan og notuðu gróf spaugsyrði um leið og þeir settust niður. Eftir að skólinn var byrjaður, tók James, sem var formaður drengjanna stórt spjald út úr skrifborði sínu, leit gletnislega á kennarann við og við. og dróg mynd af henni á spjaldið. Þegar því var lokið, rétti hann spjaldið þeim sem næstur sat, og svo réttu þeir það hver að öðrum Kenslukonan lét eins og hún veitti þessu enga eftirtekt. En þegar skólatíminn var úti sagði hún hátt og skýrt: “James, kom þú til mín augnablik þegar hinir nemend- urnir eru farnir.” Drengirnir undruðust hvað James mundi gjöra. Þegar hann með mótþróa svip gekk upp að skrifborði kenn- ararns fóru þeir út og ætluðu að bíða til að vita hvað fram færi. Kenslukonan tók með hægð bók út úr skrifborði sínu, fékk James hana og sagði með vingjarnlegu brosi: “Jam.es viltu taka þessa bók heim með þér, lesa hana, og draga svo myndir af persónum þeim sem þar koma fyrir eins og þú ímyndar þér fólkið mundi líta út, og koma með þær á morgun.” James varð heldur sneypulegur þegar hann tók á móti bókinni og fór hálf feiminn út til drengjanna, en hann var ósköp þögull. Þegar heim kom flýtti hann sér með það sem hann átti að gjöra tók svo bókina og dróg myndir af þeim, sem komu við söguna. Hann vann við þetta langt fram á nótt. í byrjun skólans næsta morgun fékk hann kennaranum myndirnar. Hún bað hann festa þær á skólatöfluna svo hinir nemendurnir gætu séð þær, svo stóð hún til hliðar og benti á hvað vel var gjört við hverja mynd, og endaði með því að dást að hve Jarnes væri náttúraður fyrir drátt- list. Upp frá þessu stóð James með kennar- anum, og hinir drengirnir fylgdu dæmi hans, svo eftir þetta var ágæt regla í skól- anum. Sú varð reynslan á, að James var ekki

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.