Stjarnan - 01.06.1947, Blaðsíða 8
56
STJARNAN
i
STJARNAN Authorized as second class
mail, Po'st Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjórn og afgrei!5slu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can.
Hvers vegna?
Hvers vegna þarf ég að gjöra það,
mamma? Hvað, sem Joe var sagt að gjöra,
þá spurði hann ætíð: “Hvers vegna?” —
Systir hans stríddi honum oft með þessu.
“Eg vildi þú hlýddir, Joe, án þess altaf
að spyrja hvers vegna,” sagði móðir hans
og andvarpaði.
Nú lagði afi frá sér blaðið, leit á Jóe og
sagði: “Þú líkist aldrei Jóe frænda þínum,
ef þú heldur áfram að spyrja: hvers vegna.”
“Hv,” var Jóe að því kominn að segja,
en hann áttaði sig fljótt og spurði: “Hvað
meinar þú, afi?”
“Eg skal segja þér sögu um hann,” sagði
afi. “Það var fyrsta sumarið sem við vor-
um niðri á eynni. Jói frændi þinn var á
líkum aldri og þú ert nú. Hann var rétt
að læra að synda. Hann gat haldið sér
á íloti, en ekki synt ennþá neitt sem telj-
andi væri. Einn dag tók ég hann út á djúpt
vatn. Eg var góður sundmaður, svo ég hélt
það væri engin hætta. En rétt þegar við
vorum komnir út á dýpið, varð mér litið
til lands. Eg vona ég komist aldrei í önnur
eins vandræði. Það eina sem ég gat gjört
var að láta Jóe halda sér á floti. Að synda
til baka með hann tók of langan tíma, hann
gat ekki synt til lands sjálfur. svo alt var
undir 'því komið að hann hlýddi skilyrðis-
laust.
“Jóe, ég verð að fara frá þér, spurðu
mig.ekki hvers vegna. Eg kem aftur svo
fljótt sem ég get. Vertú rólegur. Reyndu
ekki að synda. Haltu þér á floti, þangað
til ég kem aftur. Geturðu gjört þetta?”
Honum brá lítið eitt, svo sagði hann: “Eg
held ég geti gert það, pabbi.” Svo synti
ég burt frá honum svo fljótt sem ég hefi
aldrei synt fyrr né síðar.
“Afi, hvað kom fyrir?” spurði Jóe með
öndina í hálsinum.
„Móðir þín var þá svo lítil ögn, hún
hafði hlaupið frá fóstru sinni og datt í
vatnjð. Eg náði henni rétt í tíma, en það
var Jóe frænda þínum að þakka að ég gat
náð henni.”
„Ó, afi, hvað sagði hann, þegar þú komst
til hans aftur?” spurði Mary.
“Hann aðeins saup kveljur og sagði:
Halló pabbi. Hann vissi ekki hvers vegna
ég hafði yfirgefið hann Hefði hann ekki
hlýtt mér strax, hefði hann barist um eða
ihaldið í mig, þá hefði anað hvort mamma
þín eða hann drukknað.”
Jóe flýtti sér nú í rúmið án þess að
spyrja hvers vegna.
O. L. F.
Smávegis
Seytjándi hver maður í Bandaríkjunum
er drykkjumaður, segir bindindisfélag i
Connecticut. Annað félag segir að þjóð-
in hafi 2,508,000 ofdrykkjumenn, og af
þeirri tölu séu 600 þúsund konur. Ljót er
sagan.
+ ♦ +
Ungur maður frá Joplin í Missouri, —■
Robert Kelley — að nafni hafði sáran háls
í 8 ár. Loks fór hann til læknis og X-geisl-
ar sýndu að orsökin var að hann hafði
fiskiöngul í hálsinum, sem var þrír og hálf-
ur þuml. á lengd.
♦ ♦ +
Fleiri konur læra læknisfræði nú i
BandaTÍkjunum heldur en nokkru sinni
fyrr. Fyrir tveim árum síðan hækkaði tala
kvennnemenda um 6 af hundraði. —
fréttist frá helstu læknaskólunum, að síð-
an hafi þeim fjölgað um 10 til 16 af hundr-
aði.
*■ *■ ♦
Leitið Drottins meðan hann er að finna.
Leitið hans af öllu hjarta svo þegar skelf-
ingarnar dynja yfir, að þér megið hafa
örugt vígi, og getið rólegir tekið undir með
Davíð og sagt: “Guð er vort athvarf og
styrkur, hjálp í þrengingum margreynd,
því hræðumst vér ekkert þó að jörðin fan
úr lagi og fjöllin flytjist mitt í hafið. Þ°
að sjórinn ólgi og æsist svo að fjöllin hrist-
ist af hans ofsa. . . . Drottinn allsherjar
er með oss, Jakobs Guð er vori vígi." Sálm-
46:1-3. 7.