Stjarnan - 01.06.1947, Page 7
STJARNAN
55
°g hlýðin börn hans eins og hans eigin
sonur.
Guð lætur ekki setja sér kosti. Hann
borgaði hæðsta verð, hann keypti endur-
l^usn mannsins fyrir blóð hins flekklausa
°§ lýtalausa lambsins Krists. Þetta var
hann fús að gjöra, þó ekki væri nema einn
sem vildi þiggja frelsi.
Guð vill fá skynsamlega þjónustu vora.
Svo áminni ég yður, bræður, í Guðs náðar
nafni, að þér framseljið líkama yðar eins
°S fórn, lifandi helga, Guði þóknanlega,
sem er skynsamleg guðsdýrkun yðar.” —
Róm. 12:1.
Þannig hefur kristinn maður það ávalt
hugfast í allri reynslu sinni að Guðs náð
bænheyrsla verður ekki keypt, en kær-
feikur hans stöðugt umkringir, annast og
verndar börn hans. Undrandi yfir hinum
fakmarkalausa kærleika skapara síns og
h'elsara, hvílir hann öruggur og laus við
hræðslu og kvíða.
M. E. Loewen.
♦ ♦ ♦
Hvernig munt þú reynaát ?
Rétt hjá Bracelet-flóanum er bjalla til
að vara við hættulegu skeri undir yfir-
horði vatnsins. Þegar veður er kyrt heyr-
ekki í bjöllunni, en þegar vindur er og
hylgjur berast að klettinum, þá hringir hún,
Pvi ákafari sem stormurinn er því meira
heyrist til hennar. Það er velkomin aðvör-
un fyrir þá sem eru í háska staddir. Hversu
ikt er þetta lífi sumra manna. Bylgjur
SOrga og mótlætis framleiða bænar- og
Pukklætisljóð hjá Guðs börnum. Erfið
reynsla leiðir í ljós trúarstyrk, og myrkur
v°nbrigðanna lætur stjörnu vonarinnar
skína því skærara.
Aftur á móti er miklu að tapa á tíma
erfiðleikanna, ef menn skortir staðfestu,
rú og hugrekki. Vér þekkjum ekki veik-
eika vorn fyr en vér mætum reynslunni.
egar þungar raunir bera að höndum, þá
er freisting til að gefast upp.
Menn vita ekki, hvað keðjurnar eru
sterkar meðan þær liggja í hrúgu á þilfar-
mu. Það er þegar hættulegir stormar geysa
Sern menn sjá, hvort keðjurnar eru nógu
sterkar til að halda skipinu. Það kemur
'ka °ft fyrir í lífi manna, þegar ákaflegum
erfiðleikum er að mæta, þá reynast þeir
veikir sem menn héldu sterka vera, en
hinir sem álitnir voru veikir reynast
sterkir.
Þetta kom í ljós í reynslu lærisveina
Krists þegar hann var handtekinn. “Þá
yfirgáfu hann allir lærisveinar hans og
flýðu”. Matt. 26:56. En Jósep frá Arematea
“dirfðist að fara inn til Pílatusar og bað
hann um líkama Jesú” Áður hafði hann
haldið sér til baka, en nú var hann djarfur
þegar hinir voru huglausir. Slagið sem
hafði tvístrað lærisveinunum hrygði og
særði Jósep, og leiddi hann til að kannast
opinberlega við Drottinn sinn.
Hugleysi lærisveinanna sýndi sorglegt
vanþakklæti til hans sem hafði gjört svo
mikið fyrir þá. Hann hefir eflaust fundið
sárt til þess, þegar þeir yfirgáfu hann
allir, það hefir aukið á þjáningar hans en
það kældi ekki kærleika hans til þeirra.
Hann sneri ekki baki við þeim fyrir það.
“Hann hafði elskað sína sem voru í heim-
inum. Hann elskaði þá alt til enda.” Jóh.
13:1. Hann var aðdáanlega þolinmóður við
þá og upprisumorguninn sendi hann þeim
boð að mæta sér.
Framkoma Jóseps var göfug og góð,
en sorglegt var það, að hann beið þar til
besti vinur hans var dáinn, með að kannast
við hann. Hann hlýtur að hafa fundið sárt
til þess þegar hann bar líkama Krists 1
burtu. — Kæri lesari, bíddu ekki þangað
til ástvinir þínir eru dánir. Talaðu vin-
gjarnleg og hughreystandi orð til þeirra
meðan þeir eru lifandi. Eitt blóm sem þú
gefur þeim nú, meðan þeir lifa er margfalt
meira virði og veitir þeim meiri gleði held-
ur en þúsundir fegurstu rósa sem lagðar
eru á líkkistu vinarins.
Athugum vel þessa lexíu. Margir kristnir
menn bergja þann beiska bikar að sjá
•vini sína snúa baki við þeim. Einhver
þyngsta sorg sem vér getum mætt, er að
verða fyrir vonbrlgðum frá þeim sem vér
elskum. Jesús mætti þessari sorg svo hann
hefir samhygð með oss þegar vér mætum
líkum kringumstæðum. Minstu þess að
hann bregst þér aldrei. Treystu Jesú, besta
vini þínum. Innilyk hann í hjarta þínu eins
*og Jósep lagði hann í gröf sína og þú munt
reyna upprisufögnuðinn í lífi þínu.
C. G. Bellah.