Stjarnan - 01.12.1947, Qupperneq 2
STJARNAN
ð8
há, að hún nær til Guðs hásætis þar sem
Jesús er og biður fyrir oss. Hann fjar-
lægir vorar syndir frá oss svo langt sem
austrið er frá vestrinu.
Sumir ímynda sér að dauði Krists sé
einungis þeim til forlíkunar, sem lifað
hafa síðan Jesús tók á sig mannlegt hold.
En Heilög Ritning heldur því skýrt fram,
að Jesús er það Guðs lamb, slátrað alt í
frá sköpun heimsins. Op. 13:8. Strax eftir
að Adam syndgaði var honum boðuð
Guðs náð í Jesú Kristi. Annars hefði hann
ekki getað frelsast. “Laun syndarinnar er
dauði”. Róm. 6:23. Hver maður, sem drýgir
eina einustu synd, er dæmdur til eilífs
dauða, nema hann sé frelsaður af Guðs
náð fyrir Jesúm Krist.
Guðs náð var þegar til reiðu fyrst ér
syndin kom inn í heiminn, ef syndarinn
aðeins vildi meðtaka dauða Krists í sinn
stað. Maðurinn var dauðadæmdur fyrir
yfirtroðslu Guðs boðorða, en fyrir trúna
á Jesúm sem staðgöngumann sinn öðlað-
ist hann fyrirgefning og frelsi. Guð út-
valdi oss í Kristi áður en veröldin var
grundvölluð. Efes. 1:4. Svo strax er synd-
in kom í heiminn var mönnum trygð fyrir
gefning og frelsun fyrir trúna & hinn fyrir-
heitna frelsara, þó hann léti ekki líf sitt
fyr en um 4000 árum seinna. Þeir litu
fram til krossins sér til frelsunar, og fóm-
uðu lömbum til að sýna trú sína á hinn
komandi frelsara. Vér lítum til baka til
krossins, oss til frelsunar og höldum
kvöldmáltíðina til að sýna trú vora á
Frelsarann sem kom og lét líf sitt á kross-
inum.
Vér vitum að náð Guðs var mönnum
veitt á dögum Gamla Testamentisins, því
vér lesum í I. Mós. 6:8, að “Nói fann náð
fyrir augum Guðs”. Og í Títus 2:11 lesum
vér að “Guðs náð hefir birzt sáluhjálp-
leg öllum mönnum”. Svo Guðs náð nær
yfir allan heim til allra tíma og kynslóða,
Móses fann líka náð fyrir Guðs augliti.
Mós. 34:6. •*—
Enginn maður mun inn ganga í Guðs
ríki sem ekki hefir verið frelsaður af náð.
Páll postuli segir: “Af náð eruð þér hólpn-
ir orðnir fyrir trúna, og það er ekki yður
að þakka heldur er það Guðs gjöf”.
Vér getum ekki áunnið oss frelsun. Vér
getum öðlast hana aðeins sem gjöf frá
Guði fyrir trú. Og trúin er líka gjöf frá
Guði. Fólkið á dögum Gamla Testamentis-
ins var ekki frelsað með því að halda lög-
málið. Á öllum öldum og á öllum tím-
um hefir fólkið verið frelsað af náð, og
einungis af náð fyrir trúna á Guðs' Orð.
Róm. 8:15. Svo vér sjáum að eini vegur-
inn fyrir alla menn frá byrjun heims til
að öðlast frelsun og eilíft líf, er að með-
taka það sem náðargjöf frá Guði fyrir
trú á Jesúm Krist. “Fyrir fall hins eina
kom dauðinn til allra manna”. Ein ein-
asta synd veldur dauða.
Lifði nokkur maður á undan Kristi án
þess að syndga? Vér lesum í Róm. 3:23:
“Því allir hafa syndgað og hafa skort á
Guðs dýrð”. Af þessu sjáum vér að eng-
inn jarðneskur maður frá byrjun tímans
hefir lifað syndlausu, fullkomnu lífi. Allir
hafa þess vegna komið undir dauðadóm-
inn. Eini vegurinn að komast hjá fordæm-
ingu var að meðtaka framboðna náðar-
gjöf Guðs fyrir Jesúm Krist. Hversu stór
sem syndin er, þá er Guðs náð ennþá
stærri. “Þar sem syndin yfirgnæfði, þar
yfirgnæfði náðin enn meir.” Róm. 5:20.
Hefðu menn fyrir Krist getað frelsast
fyrif sín eigin verk, þá hefðu þeir gjört
nokkuð sem enginn nú getur gjört. — Um
þá endurleystu á himni er sagt: “Þá sungu
þeir nýjan lofsöng svo mælandi: Verðug-
ur ert þú að taka við bókinni og opna
hennar innsigli, því þér hefir verið slátrað
og þú hefir keypt oss Guði til handa af öll-
um kynkvíslum, tungumálum, þjóðum og
ættum með þínu blóði”.
Abraham var ekki frelsaður fyrir eigin
verðskuldun heldur fyrir trú á Guði.
“Abraham trúði Guði og það var reiknað
honum til réttlætis”. Róm. 4:3. Og Davíð
var frelsaður af náð fyrir trúna, 6. vers.
Vér getum því öruggir sagt og byggjum
það á Guðs orði, að á öllum öldum gegn-
um allar kynslóðir, hafa menn verið frels-
aðir, ekki fyrir verk lögmálsins, heldur
af Guðs náð fyrir trúna á Krist. —
Post. 4:12.
En nú kemur þessi spurning fram: Ef
vér erum frelsaðir einungis af náð, hvað
verður þá um lögmálið? Hvaða gagn er
að því, hvaða- þörf fyrir það? “Ónýtum
vér þá lögmálið sem trúnni? Fjarri fer
því, heldur staðfestum við lögmálið”.