Stjarnan - 01.12.1947, Síða 3
STJARNAN
99
Róm. 3:31. 5>að, að vér erum frelsaðir af
náð, nemur ekki lögmálið úr gildi. Meira
að segja, náð er þarflaus ef lögmál-
ið er fallið úr gildi, því “Syndin
er lagabrot”. — Jóh. 3:4. — “Allir hafa
syndgað” og eru því dauðadæmdir, því að
“laun syndarinnar er dauði”. Róm. 3:23
og 6:23. En Guðs náð veitir oss fyrirgefn-
ingu syndanna, ef vér viljum meðtaka
gjöfina, því Jesús leið fyrir oss hegningu
þá sem lögmálið 'heimtaði fyrir syndina,
svo að vér frelsuðumst frá henni.
Sá maður sem í sannleika er frelsaður
af Guðs náð, mun aldrei setja sig upp á
móti Guðs lögmáli, því fyrir trúna á Krist
eru Guðs boðorð enn betur staðfest. Það
er eitthvað rangt við þann sem setur sig
upp á móti Guðs borðorðum. Þetta er
skýrt tekið fram í Róm. 8:7. Hyggja holds-
ins er fjandskapur gegn Guði, með því
hún hlýðnast ekki Guðs lögmáli af því hún
getur það ekki. “Að vera holdlega sinnað-
ur er dauði. Róm. 8:6. Jesús segir: “Yður
byrjar að endurfæðast.” Jóh. 3:7. Eg veit
að til eru miljónir manna, sem segjast hafa
verið endurfæddir og frelsaðir af náð og
að þeir þekki Guð, en bæta svo við að þeir
trúi ekki að þeir þurfi að halda Guðs boð-
orð, og meira að segja, þeir fótumtroða
opinberlega eitt þeirra og verðá þeir þann-
ig sekir við öll boðorðin. “Þó einhver héldi
alt lögmálið, ef hann verður brotlegur í
einu boðorði, þá er hann orðinn sekur við
þau öll”. Jak. 2:10.
Hér er alvarlega um talað. Eg hefði ekki
vogað að staðhæfa þetta, en Guð talar og
vér skulum heyra hvað hann segir um það.
“Og því vitum vér, að vér þekkjum hann,
ef vér varðveitum hans orð. Hver sem
segir: Eg þekki hann, og varðveitir ekki
hans boðorð, er lygari og í slíkum er ekki
sannleikur”. I. Jóh. 2:3. 4. Annan texta
finnum vér, sem bendir á, hvers vegna
sumum bænum er ekki svarað. “Hver sem
frá snýr sínu eyra, svo það heyri ekki
lögin, þess bæn er og viðurstyggð”. —
Orðskv. 28:9.
Þúsundir manna, sem ímynda sér að þeir
; éu á leið til himins, eru á glötunarvegi, af
því þeir neita að hlýða einu\ af Guðs boð-
orðum. Eg meina boðorðið í 2. Mós 20:8-11.
Fagnaðarerindið er ekki gagnstætt lög-
máli Guðs. Páll postuli segir: “Þess vegna
er að vísu lögmálið heilagt, og boðorðið
heilagt og réttvíst og gott”. Róm. 7:12. —
Hví skyldi nokkur kristinn maður setja
sig á móti því sem Guð kallar heilagt, rétt-
víst og gott? Það er auðvitað hið gamla
holdlega hugarfar, sem ekki vill vera und-
irgefið og hlýða Guðs heilaga lögmáli. At-
hugið boðorðin hvert fyrir sig. ]þau eru
grundvöllurinn undir öllum réttlátum
lögum í öllum löndum siðmenningarinn-
ar. Enginn meðal hinna beztu og vitrustu
manna heimsins hefir getað samið betri
lög. Þeir blátt áfram benda á tíu boð-
orðin, sem hið fullkomna lögmál. Jesús
ætlaðist aldrei til að siðferðislögmálið yrði
úr gildi numið, það er 10 boðorðin. Fórn-
færingarlögmálið var annar lagabálkur,
sem náði aðeins til krossins. Jesús segir:
“Ætlið ekki að ég sé kominn til að afnema
lögmálið og spámennina. Eg kom ekki til
þess heldur að framfylgja því. Eg segi yð-
ur að meðan himin og jörð haldast við
mun ekki punktur yfir í, eða stryk yfir
t verða tekið í burtu úr lögmálinu, þar til
því er öllu hlýtt! Matt. 5:17. 18. Good-
speed’s þýðing. — Meðan stjörnurnar eru
yfir höfði þínu og jörðin undir fótum þín-
um, eru einnig 10 boðorðin í gildi fyrir
hvern einasta mann.
Náðarinnar var þörf vegna þess aö lög-
málið var óumbreyianlegi og gai ekki
orðið afnumið.
Hefir þú nokkurn tíma athugað að
glæpamaður biður aldrei vægðar meðan
hann heldur hann geti sýnt að lögin nái
ekki til hans. Þegar hinn mikli glæpamað-
ur Chapman sá að hann gat ekki umflú-
ið dóm laganna, hvað gjörði hann þá?
Það er sagt hann hafi farið inn á skrifstofu
landstjórans og knéfallandi beðið hann um
náð. Hyers vegna gjörði hann það? Hann
hafði eytt þúsundum dollara og leigt hina
beztu lögmenn sér til varnar, en þrátt fyr-
ir allar tilrauyiir umkringdu lögin hann
eins og veggur úr stáli. Hann gat ekkert
forsvar og enga afsökun fundið, lögin voru
ósveigjanleg og hann nálgaðist gálgann
dag hvern, svo hann bað landstjórann um
fyrirgefningu og náð.
I sumum ríkjunum skrifar landstjórinn
þvert yfir fyrirgefningarskjalið: “Frelsað-
ur af náð”. Ef lögunum hefði orðið breytt
hefði Chapman getað komist hjá heng-