Stjarnan - 01.12.1947, Side 4
100
STJARNAN
ingu án þess að biðja um náð. Svo lengi
sem ekki er að hægt að breyta lögunum
eða afnema þau, getur sá, sem hefir brot-
ið þau, ekki umflúið hegninguna á nokk-
urn hátt, nema með því að fá náð og fyrir-
gefningu. Þess vegna segi ég: Ef Guðs lög-
mál væri ekki eilíft, óumbreytanlegt og
sterkara en Gibraltar, þá þyrftu menn
ekki náð. Ef menn ennþá þurfa að frelsast
af náð, þá sýnir það að Guðs lögmál
er enn í gildi. Náðin og lögmálið geta
ekki orðið aðskilin. “Þar sem ekkert lög-
mál er, þar er engin yfirtroðsla”. —
Róm. 4:15, og þá er engin þörf á náð.
Syndin er lagabrot”, I. Jóh. 3:4. Syndin
er í heiminum. Náð er það, þegar Guð
fyrirgefur syndina. Ef Guðs lögmál væri
afnumið, þá gæti enginn syndgað, því án
lögmáls er engin yfirtroðsla. Ef ekkert
lögmál væri, þá frelsuðust allir, hvort sem
þeir tryðu á Krist eða ekki, því Guð gæti
ekki dæmt þá seka sem ekki hefðu syndg-
að. Ef lögmálið væri afnumið þá væri eng-
in þörf fyrir trú á Jesúm, eða endurfæð-
ingu. Engin hætta með að glatast.
Mr. R. A. Anderson segir frá atviki sem
skýrir þetta mál. Hann segir svo frá: —
“Fyrir mörgum árum síðan, þegar ég var
í borginni Melbourne í Astralíu, kom fryir
atvik sem sýndi, hvað lög eru nauðsynleg.
Kona ein lét keyra sig og dóttur sína í
Rolls Royce bíl, niður í borgina. Þær fóru
út úr bílnum fyrir framan stóra verslunar-
búð. Þetta var áður en bílar voru lokaðir
og svo útbúnir, að ekki var hægt að taka
þá í fjarveru eigandans. Mæðgurnar fóru
inn í búðina en keyrslumaðurinn gekk
áfram til að líta á það sem auglýst var í
búðargluggunum. Eftir eina klukkustund
komu þau öll þangað sem bíllinn hafði
verið skilinn eftir, en hann var horfinn.
Rolls Royce bíll í þá daga kostaði um 20
þúsund dollara. Meðan þau stóðu þama
í mestu vandræðum, keyrir vel búinn
maður bílnum þangað sem þau stóðu og
kom út úr honum. Lögregluþjónn var þar
fyrir og tók hann fastan.
“Eg bið afsökunar, herra lögregluþjónn,
sleptu mér”, sagði maðurinn, sem stigið
hafði út úr bílnum.
“Nei, þú ert fangi minn”, svaraði lög-
regluþjónninn.
“Hvers vegna?”
“Fyrir að stela bílnum”.
“Eg stal honum ekki. J>að eru engin lög,
sem banna mér að taka bíl að láni. Ef þú
sleppir mér ekki skal ég höfða mál á móti
þér fyrir að ráðast á mig”. Svo sýndi hann
lögregluþjóninum nafnspjald sitt.
Lögreglumaðurinn vissi ekki hvaðan. á
sig stóð veðrið er hann sá að þetta var
æðsti lögmaður borgarinnar og konungs
ráðgjafi. Hvernig stóð á.þessu? Það var þó
einkenmlegur þjófur.
Lögfræðingurinn sagði nú að hann
skyldi höfða mál á móti sér fyrir
að taka bílinn og hann ætlaði að verja
sig sjálfur. Svo sneri hann sér til
mæðgnanna sem hann hafði valdið slíkum
óþægindum, afsakaði sig kurteislega og
sagði þeim ástæðuna fyrir þessari fram-
komu sinni. Hann hafði lengi beðið um að
lög væru gefin út sem vernduðu bílaeig-
endur. Hann átti sjálfur samskonar bíl, en
í Victoría voru engin lög sem ákvæðu sekt
fyrir að stela bílum. Það voru lög móti
stuldi á sauðfé og nautgripum, en engin
sem vernduðu bílaeigendur. Hann var
orðinn svo þreyttur á að heimta slík lög,
svo hann gjörði þetta til að sýna að lög
um það væru nauðsynleg.
Næstu viku var hann ákærður fyrir bíl-
þjófnað, en það voru engin lög er sektuðu
mann fyrir slíkt, svo lögsóknin féll niður
af sjálfu sér, en innan þriggja vikna voru
komin í gildi lög sem vernduðu bílaeigend-
ur. —
Þar sem ekkert lögmál er, þar er eng-
in synd. Ef vér viðurkennum að synd sé
til í heim,inum, þá viðurkennum vér að
lögmál sé í gildi. “Eg hefði ekki vitað af
girndinni hefði ekki lögmálið sagt: Þú
skalt ekki girnast”, segir Páll postuli
Róm. 7:7. — \
Guðs lögmál getur ekki orðið afnumið,
það er eilíft eins og Guð sjálfur og sönnun
fyrir þessu er kross Krists. Af því Guðs
lögmál var óumbreytanlegt, þá var það
eina sem Jesús gat gjört til að frelsa
mennina var að korna hingað til vor, gjör-
ast maður og deyja fyrir syndarann sem
braut Guðs boðorð. Róm. 5:20. Hver ein-
asti syndari hefir því tækifæri til að öðl-
ast fyrirgefningu og náð. Jesús dó í stað
syndarans, og meir en það, hann veitir
iðrandi syndara náð og kraft til að sigra