Stjarnan - 01.12.1947, Blaðsíða 8
104
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjðrn og afgreiCslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundax, Man., Can.
nauðsynlegust er í þessum heimi. Það er
þekking á honum sjálfum, og þekking á
honum er eilíft líf.
Það er nærri ómögulegt í þessum hávaða-
sama hringlandi heimi að finna kyrlátt
pláss eða kyrláta stund. Ef til vill er erfitt
fyrir þig að finna tíma til að vera kyrlátur
og einn með Guði. En það er besta aðferðin
til að nota tíma þinn. Ef þú getur sest niður
þar sem alt er kyrt og rólegt, hvílt þig,
hugsað og beðið svo sem hálfa klukkustund
þá muntu finna endurnæringu og hressingu
bæði fyrir sál og líkama, sem þú getur
varla öðlast á annan hátt. Reyndu það.
Jesús gaf okkur fyrirmynd. Hann fann
þörf á því að nota nokkurn tíma aleinn með
föðurnum. Eftir að hafa starfað allan dag-
inn, skildi hann sig við mannfjöldann og
fór upp á fjall þar sem hann gat verið einn
á bæn í næturkyrðinni. Þeir sem óska að
mæta Guði finna hann í kyrðinni, þar sem
heimurinn er útilokaður og skyldur dag-
sins lagðar niður.
Ehginn þarf að fara í klaustur eða til
fjarlægra staða til að vera einn með Guði,
þú getur notið þeirrar blessunar heima hjá
þér. Fyrsta morgunstundin er vel til þess
fallin, áður en menn taka upp skyldur
dagsins, hálftími sem þannig er notaður er
tími sem er vel varið. Erfiði dagsins verður
léttara og ánægjulegra, og meira verður
framkvæmt en orðið hefði, ef menn hefði
gleymt Guði.
í kyrð bænastundarinnar getum vér best
komist í samfélag við Guð eða endurnýjað
samfélag vort við hann. Þar stendur kraft-
ur Guðs oss til boða. Mikilmenni heimsins
hafa fyrir löngu kannast við þetta. Þegar
Marteinn Luther hafði erfiðan dag fyrir
framan sig tók hann lengri tíma til bæna.
Hann þekti uppsprettu h i n s andlega
kraftar.
Helsta þörf hvers kristins manns er að
þekkja Guð. Að þekkja hann er eiflíft líf.
Allir ættu að nota hvert tækifæri sem
býðst til að þekkja hann betur. Ekkert
annað er jafn áríðandi. “Að hverju gagni
kæmi það manninum þó hann eignaðist
allan heiminn ef hann liði tjón á sálu
sinni.” Mark. 8:36.
Guð elskar oss. Hann er reiðubúinn og
þráir að opinbera sjálfan sig fyrir oss.
Hann vill að þú komist í samband og sam-
félag við hann. Reyndu að nota hálfan
klukkutíma á hverjum degi í einveru með
Guði. Ef þú gjörir það þá muntu öðlast þá
reynslu sem þeir einir geta skilið sem hafa
notið hennar.
M. L. Rice
Smávégis *
Filippseyj arnar eru yfir 7000 að tölu.
Allar eyjar heimsins hafa lítið stærra flat-
armál heldur en Ástralía, hið minsta meg-
inland. Grænland er stærsta eyjan, 840
þúsund ferhyrningsmílur að stærð.
Kæru vinir mínir, lesendur Stjörnunnar,
minnist þess að alt sem Stjarnan hefir til
að lifa á, er það, sem þið sendið henni. —
Drottinn blessi og varðveiti ykkur öll og
gefi ykkur gleðilegar komandi hátíðir.
S. Johnson.
Árið 1946 voru fleiri viðvarptæki búin
til heldur en nokkru sinni fyr. 15 miljónir
þeirra voru látin á markaðinn í Ameríku.
Hæðsta framleiðsla þeirra fyrir stríðið
var árið 1941, þá voru búin til yfir þrettán
og hálf miljón viðvarpstæki.
Tvenn af hverjum fimm hjónum sem
giftast í Bandaríkjunum leita skilnaðar.
Mrs. Charles Kyte í Virginia Minnesota
var í mestu vandræðum af því reykháfur-
inn vann ekki svo hún tók niður allar píp-
ur og varð að verja þremur klukkustund-
um til að hreinsa burtu 574 svöluhreiður.
Húsið hlýtur að hafa verið stórt fyrst svo
margar svölur gátu byggt hreiður sitt í
pípurtum.
E. J. Schmuecher í Iowa hefir góða
lukku með hænsnaræktina. Árið 1943
lögðu hænur hans að meðaltali 176 egg
hver, 1944 197 egg og 1946 244 egg hver.