Stjarnan - 01.12.1949, Page 8

Stjarnan - 01.12.1949, Page 8
96 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Oífice Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price.$1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjðrn og afgreiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar. Man., Can. um brauðið sitt og annar bætti við skorpu- steikarbitanum. Var ekki ósýnilegur gestur viðstaddur þessa máltíð? Það var Krists brauð, sem hungraði drengurinn át, en hann át það ekki, alt. „Hérna Jack“, kallaði hann til hungr- aða hundsins bak við lhús hornið, „þú mátt hafa helminginn.11 Nú var drengurinn glað- ur í bragði og seldi þrjú blöð meðan menn- irnir stóðu þar. „Við höfum étið Krists brauð“, sagði maðurinn um leið og hann kvaddi. „Já,“ svaraði gestur hans. „Eg var að hugsa um pláss þar sem ég held þá vanti eftirlitsmann að nóttunni.11 Fátæki maðurinn gekk nú leiðar sinnar og hundurinn fylgdi honum. , Hann talaði vingjarnlega til hundsins og klappaði honum þá fann hann að hund- urinn hafði hálsband hann rannsakaði það og fann þá hvar hundurinn átti heima. „Einhver saknar þín, kom með mér, ég skal taka þig heim,“ sagði hann við hund- inn. Eigandi hundsins var þakklátur og þrýsti 10 dollara seðli í hönd fátæka mannsins og sagði honum að koma upp á skrifstofu sína daginn eftir. Sjá hvað hann gæti fengið að vinna. Krists brauð. Hefir nokkur þurft að ganga hungraður, sem einu sinni hefir ét- ið það? Menn hafa flestir einhvern tíma á æfinni kastað steini á vatnsflötinn og séð hvernig bárurnar sem myndast stækka svo langt sem augað eygir. Þú vinnur fyrir einhvern, vera má það sé lítilfjörlegt starf að heimsins áliti til dæmis, hreingjörning á húsi, en þú gjörir það vel og með glöðu geði af því þú ert Guðs barn, Jesús vann líka algenga vinnu, þá er það ekki lengur lítilsvert heldur heilög þjónusta. Það gleður húsmóðurina að sjá hvem- ig þú gengur að þessu erfiða og óhreinlega verki, svo hún vinnur eldhússtörfin með glöðu geði og býr nú út þann miðdagsmat, sem manni hennar líkar best, svo hann lifnar við og gleymir þreytu sinni er hann borðar matinn. Heilög þjónusta altsaman, unnið með gleði eins og það væri fyrir Guð en ekki menn. Það sem er aðalkjarninn í allri þjónustunni er kærleikur. Þeir sem njóta hans láta hann í ljósi til annara, svo það verður eins og fljótandi uppspretta, sem flytur gleði og kærleika öllum sem hún nær til. Ef þú hefir notið kærleika þá láttu aðra njóta hans með þér. E. A. Pepper ______________ Smávegis Fyrsta almanakið í Bandaríkjunum var prentað í Bradford prentsmiðju í Philadel- phíu árið 1687. ♦ + + Áætlað er að um 2,300,000,000 ekru’" af landi í heiminum, sem vel mætti rækta, liggi ónotaðar. ♦ ♦ ♦ Eitt þúsund skólabörn í Tokyo skrifuðu Nehru, forseta Indlands og beiddu hann að senda fíl til dýragarðsins í Tokyo. Hann sendi börnunum skeyti aftur þess efnis að hann vonaði eftir að geta sent fíl til Japan, svo fljótt sem hægt væri að fá flutning fyr- ir hann. ♦ ♦ ♦ Árið 1948 voru sjö og hálf miljón flutn- ingsvagnar (Trucks) notaðir í Bandaríkj- unum. Þeir keyrðu hér um bil 73 biljón mílur. Það voru hálfri þriðju miljón fleiri heldur en notaðir voru árið 1941, þá keyrðu þeir als 55 biljón mílur. ♦ ♦ ♦ Kæru vinir mínir. Hjartans þakklæti fyrir alla hjálpina bæði með keyrslu og annað síðastliðið sumar. Einnig bið ég Guð ríkulega að blessa ykkur fyrir að senda andvirði Stjörnunnar og oft gjafir til líkn- arstarfs vors um leið. Þetta verður aldrei þakkað eins og það er vert, en ég fulltreysti því, að Guð muni í upprisu réttlátra endur- gjalda þúsundfalt alt, sem gjört hefir verið af kærleika til hans og barna hans. Guð gefi ykkur öllum gleðilegar kom- andi hátíðar. S. Johnson

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.