Stjarnan - 01.08.1952, Page 1

Stjarnan - 01.08.1952, Page 1
STJARNAN ÁGÚST, 1952 LUNDAR, MANITOBA Kærleikurinn og lögmálið Tíu boðorðin eru hin konunglegu lög, grundvallarlög Guðs ríkis, hinn réttláti ^nælikvarði Guðs í hinum komandi dómi. Sönn hlýðni við þessi boðorð sprettur af kærleika. Jesús benti á þetta er hann sagði: »Ef þér elskið mig þá munuð þér halda boðorð mín.“ Jóh. 14:15. Þessi kærleikur sem leiðir til hlýðni er aðeins mögulegur fyrir íbúð heilags snda í hjarta mannsins. „Guð gefur sinn heilaga anda þeim, sem hlýðnast honum.“ Post. 5:32. Jesús sagði: „Á þeim degi mun- uð þér komast að raun um að ég er í föður rnínum og þér í mér og ég í yður. Sá, sem hefir mín boðorð og heldur þau, hann er sa sem elskar mig, en sá sem elskar mig rnun verða elskaður af föður mínum og ég mun elska hann og sjálfur birtast hon- um.“ Jóh. 14:20.-21. Spurning sem lærisveinarnir lögðu fyr- ú Jesúm leiddi til þess að hann lagði enn sterkari áherzlu á hið óslítandi samband milli kærleika og hlýðni: „Hver sem elsk- ar mig mun varðveita mitt orð, og faðir rninn mun elska hann, og til hans munum við koma ög gjöra okkur bústað hjá hon- um. Sá, sem ekki elskar mig hann varð- veitir ekki mín orð.“ Jóh. 14:23.—24. Faðirinn elskar þá sem elska son hans, sá sem elskar Jesúm elskar líka föðurinn. Heilög þrenning býr í hjarta þess sem &f elsku til Guðs hlýðir boðum hans. Kristur, þó ósýnilegur augum vorum, er hjá þeim sem af kærleika hlýða honum °g þjóna. Kærleikurinn er sá lykill sem opnar hið allra helgasta fyrir hinum trú- aða, svo1 hann getur notið nálægðar föðurs, sonar og heilags anda. Játningin um að maður elski Jesúm er einkis virði án hlýðni við boð hans. Jesús sagði: „Ekki mun hver sá er við mig segir: Herra, herra, ganga inn í himnaríki, held- ur sá er gjörir vilja föður míns, sem er í himnunum." Sumir munu telja sér til gildis það sem þeir hafa starfað fyrir Krist, en af því þeir voru óhlýðnir, mun hann á endurgjaldsdeginum segja við þá: „Aldrei þekti ég yður, farið frá mér þér sem fremjið lögmálsbrot.“ Les. Matt. 7:21.—-23. Þar sem innilegur kærleiki til Krists ríkir í hjarta mannsins, þar er ekki þörf að leggja sérstaka áherzlu á hlýðni við boð hans, því kærleikurinn eðlilega keppir eftir að gjöra vilja skaparans. Kærleikur sá er sameinar Krist og söfnuð hans er fyrirmyndaður í Ritningunni með giftingu manns og konu. Þau leitast við í öllu að þóknast hvort öðru af því þau elskast svo innilega. Hlýðni og þjónusta er þeim á- nægjuefni. Tíu boðorðin eru endurskin af eiginleg- leikum Guðs. í honum er kærleikur og lögmál sameinað. Hann er fullkominn kær- leikur en einnig fullkomlega réttlátur. Hjarta hans og vilji er aldrei gagnstætt hvað öðru. Hjá honum elska og trúfesti mætast, réttlæti og friður kyssast.“ Sálm. 85:11. „Hlýðni sem ekki á rót sína í kær- leikanum er reglubundin, köld og dauð. Getur hún verið Guði þóknanleg? Hann segir: ?,Gef mér hjarta þitt.“ Gyðingarnir, sérstaklega fræðimenn- ir og Farísearnir lögðu mikla áherzlu á hlýðni við lögmálið, en þeir mistu sjónar á löggjafanum og elskuðu hann ekki, svo hlýðni þeirra var ekki Guði þóknanleg. Páll postuli sagði að þegar hann tilheyrði strangasta flokki Farísea, þá var hann svo nákvæmlega hlýðinn öllum reglum lög- málsins, svo hefði réttlætið fengist með lögmálinu, þá hefði hann verið óásakan- legur. Les Filippíans 3:4.—7. Jesús sagði:

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.