Stjarnan - 01.04.1954, Side 4

Stjarnan - 01.04.1954, Side 4
28 STJARNAN munum vér þurfa að breyta ýmsu í bæn vorri. Vér þurfum að biðja hver fyrir öðrum. Hversu hughreystandi það er að vita að Guðelskandi hjörtu biðja fyrir oss. Ég er viss um, að margir, sem lesa þetta, hafa reynt erfiðleika af ýmsu tagi, en svo greiddist til í loftinu, sólin náði að skína og himneskur friður fylti sál vora. Guð hefir mint einhvern á að biðja fyrir oss. Þegar Guðs andi hvetur þig til að biðja fyrir einhverjum stríðsmanni Krists, jafnvel þó lönd og höf séu á millí ykkar, þá vertu viss um að hann þarfnast fyrirbæna. Bið fyrir honum og það tafar- laust. Hve sorglegt væri það, ef einhver stríðsmaður Krists biði ósigur á tíma reynslu og freistinga af því vér hefðum vanrækt að biðja. Samúel spámaður áleit vanrækslu á bæn fyrir Guðs fólki væri synd. „Fjarri sé það mér að syndga móti Drotni með því að hætta að biðja fyrir yður“. 1 Sam. 12:23. —J. L. TUCKER ---------*---------- Hvað bæn getur gjört fyrir þig Þegar nafnkunnur vísindamaður eins og Dr. Alexis Carrell talar um bæn í sinni eigin reynslu þá veita menn því ná- kvæma eftirtekt. Skömmu fyrir andlát sitt skrifaði þessi nafnfrægi læknir í tíma- ritið „Readers Digest“ grein með fyrir- sögninni: „Bænin er kraftur“. Hann sagði meðal annars: „Bæn er voldugasta aflið, sem hægt er að framleiða. Ef þú venur þig á að biðja stöðugt og einlæglega, þá mun verða sjáanleg breyting á lífi þínu. Bænin setur innsigli sitt á störf vor og áform“. Þeir sem sjálfir hafa iðkað stöðuga bæn eru alveg á sömu skoðun og Dr. Carrell. Einhver dýpsti og innilegasti fögnuður lífsins er iðkun bænarinnar og árangur hennar. „Hvað sem vér biðjum um fáum vér hjá honum“. Bænin sam- einar oss honum sem er uppspretta allrar blessunar og krafta, vorum himneska föður, sem einn getur fullnægt öllum þörf- um hjartans. Bænin er hið þýðingarmesta starf, sem maður getur unnið, hún veitir manni frið og þá hjálp, sem maður biður um. Það er alveg óskiljanlegt, að menn og konur skuli vanrækja daglega stöðuga bæn. Athugum nú nokkuð af því, sem bænin getur gjört fyrir oss. Bæn skýrir skilning vorn. Hugsanir fjölda fólks eru allar á ringulreið nú á dögum, menn eru órólegir og vita ekki hvað þeir skuli gjöra, eða hvernig þeir eigi að snúa sér. Óvissa hvílir, ekki ein- ungis yfir ástandi heimsins og viðskifta- lífi þjóðanna, heldur einnig yfir hversdags kringumstæðum einstaklingsins. Spurn- ingin er: Hvað eigum vér að gjöra, hvernig eigum vér að snúa oss? Munið þér eftir sögunni í Biblíunni um .Elísa og þjón hans? Þjónninn var ótta- sleginn, eins og margir eru í dag, hann sá enga'n veg til frelsunar. En spámaðurinn bað til Guðs; von og öryggi veittist hjört- um þeirra. Lesið söguna 1 annari Kon- ungabók 6. kapítula. Elísa var biðjandi maður, hann var óhræddur. Það er dýr- mætt og dásamlegt að líta til Guðs. Það var Davíð konugur, sem sagði: „Að morgninum vil ég . . . . líta upp“. Það er ætíð bezta aðferðin til að mæta fram- tíðinni. Bæn hrekur ' áhyggjur í burtu. Orð Jesú í Lúk. 21. kap. benda á hvað hann sá, er hann leit gegn um aldirnar niður til vorra tíma. „Menn munu gefa upp öndina af ótta og kvíða fyrir því er koma mun yfir heims- bygðina“. Aldrei hefir mannkynið haft eins miklar áhyggjur eins og nú. Verzlunarmaður einn lagði svo mikið á sig, að hann gat alls ekki sofið. Hann'fór til ýmsra sérfræðinga og dvaldi margar langar vikur á heilsuhælum, en svefn- leysið þjáði hann stöðugt. Hann var jafn- vel farinn að hugsa um að stytta eymarlíf sitt. Svo eina nótt, þegar honum leið ákaf- lega illa, þá datt honum í hug að biðja. Hann opnaði hjarta sitt fyrir Jesú frels- ara sínum og bað hann um náð og hjáip. Hann gaf sig algjörlega í hönd frelsara síns og svaf svo rólega í fullar þrjár klukkustundir. Hann sagði seinna: „Síðan hef ég beðið á hverju kvöldi og get sofið rólega 5—6 klukkustundir á hverri nóttu. Ég segi Jesú frá erfiðleikum mínum og afhendi honum þá“. Bæn styrkir taugarnar. Vér þurfum

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.