Velferð - 01.12.2018, Side 3

Velferð - 01.12.2018, Side 3
Frá ritstjóra Hjartaheill í þrjátíu og fimm ár Hjartasjúkdómar hafa löngum verið til staðar en það var ekki fyrr en upp úr miðri síðustu öld sem þeir fóru að færast í aukana. Nú er talað um lífsstílssjúkdóma, þ.e. þá sjúkdóma sem hafa komið til sögunnar eftir að við fórum að hafa það betra, fengum nægan mat og þurftum minni hreyfingu og erfiði í vinnu okkar. Áður herjuðu á okkur skortsjúkdómar af ýmsum toga og berklarnir voru skæðir á fyrri hluta tuttugustu aldarinnar. Lengi vel höfðum við ekki þekkingu, búnað eða mannafla til að bregðast við þessum nýja vanda. Það eru aðeins þörutíu ár síðan hjartalækningar íslendinga fóru að miklu leyti fram erlendis, í London eða Ameríku. Eftir því sem þessi vandi jókst og fleiri sérfræðingar sneru heim frá námi erlendis varð ljóst að við svo búið mátti ekki standa, enda var staðan þannig þá, að um 50% dauðsfalla mátti rekja til hjarta- eða æðasjúkdóma og biðlisti var að komast í aðgerðir erlendis. Oft þurfti einn eða fleiri úr fjölskyldunni að fylgja sjúklingnum eftir og þetta ferli var afar dýrt. Árið 1983 var gefin heimild til þess hefja hjartaskurðað- gerðir hér á landi. Menntaðir læknar voru til staðar en nánast enginn tækjabúnaður og því úr vöndu að ráða. Landssamtök hjartasjúklinga, sem nú heita Hjartaheill, voru stofnuð 1983 með það að aðalmarkmiði að safna fé til tækjakaupa og búnaðar svo hægt yrði að fá þessa þjón- ustu hingað heim. Margir þeirra sem stóðu að stofnun- inni höfðu reynt á það á eigin skinni hvernig var að þurfa að sækja þessa lífsnauðsynlegu þjónustu til útlanda. Kjörorðið varð snemma: „Tökum á ... tækin vantar", og eldmóður og atorka stofnendanna var ótrúleg. f upp- hafi var safnað fyrir hjartasónartæki, sem var afhent Landspítalanum og fljótlega fylgdi hjartaþræðingartæki og hjartasíritar með hugbúnaði. Þannig var haldið áfram með góðum árangri enda var fljótlega farið að gera flestar aðgerðir hér heima. Á þeim þrjátíu og fimm árum sem liðin eru frá stofnun Hjartaheilla hefur sem betur fer margt breyst á sviði hjartalækninga á íslandi. Hér er til staða hátæknibúnaður, þrautreynt og vel menntað starfslið og aðstaðan gefur ekki eftir því besta sem þekkist erlendis. Ekki er ætlunin hér að þakka samtökunum allt þetta en hitt er óumdeilt að þau hafa lagt þung lóð á vogarskálarn- ar. Söfnunarfé Hjartaheilla og deildanna vítt um landið á þessum tíma má mæla í milljörðum á núvirði og hefur sannarlega auðveldað þessa þróun. Hjartaheill og önnur sambærileg samtök eru ómetanleg í þjóðfélaginu og hafa reynst árangursrík leið til að virkja vilja og samstöðu almennings til góðra verka. Pétur Bjarnason Efni blaðsins 3 Frá ritstjóra 4 Pistill formanns 5 Aðalfundur Hjartaheilla 2018 8 Yfirlit um hjartalækningar á fslandi 11 41. sambandsþing SÍBS 12 Hjartaheill í 35 ár 17 Hjartaheill starfsárið 2018 18 Deildir Hjartaheilla 20 Þegar þokunni léttir 23 Fréttapistill úr Þingeyjarsýslum 24 Golfmót Hjartaheilla 25 Vátrygginafélögin styrkja Hjartadeild 26 Ætlað samþykki lögfest Velferð Æ málgagn og fréttabréf Hjartaheilla. Útgefandi: Hjartaheill, Síöumúla 6, 108 Reykjavík, sími: 552 5744. Heimasíða Hjartaheilla: hjartaheill.is Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Pétur Bjarnason. Ritnefnd: Ásgeir Þór Árnason, Sveinn Guðmundsson Prentun og umbrot: GuðjonO ssr Forsíðumynd: Kvöldsól og regnbogi á Haganesi séð frá Bíldudal Ljósmynd: Pétur Bjarnason, 21. júlí 2016, kl. 23:15 Upplag: 7.100 Aðsendar greinar eru á ábyrgð höfunda. Velferð 3

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.