Velferð - 01.12.2018, Qupperneq 6
Þrír úrframvarðasveit Hjartaheilla, Kjartan Birgisson, Kristján
Smith og Guðmundur R. Óskarsson.
og GoRed verkefninu sem leggur megináherslu á konur og
hjartasjúkdóma. Hjartaheill hafa tekið virkan þátt í kynn-
ingarstarfi GoRed samtakanna ásamt fleiri félögum
Mælingastarf og viðburðir
Þá hafa Hjartaheill og SÍBS staðið fyrir mælingum á blóð-
þrýstingi, blóðfitu og blóðsykri, púls og súrefnismettun í
blóði verið mæld, gerð öndunarpróf, mittismál og grip-
styrkur mæld. Þátttakendum býðst einnig að taka þátt í
lýðheilsukönnuninni - Líf og Heilsa. Fjallað hefur verið um
þessar mælingar í Velferð.
Hjartaheill styrkti íjóra hjúkrunarfræðinga af Reykjalundi til
námsferðar til að skoða endurhæfingarstöðvar í Þýskalandi.
Hjartaheill tók þátt í sýningunni Fit og Run í Laugardals-
höll í ágúst í samvinnu við Neistann. Hjartaheill gaf þá boli
sem Margt smátt gaf samtökunum.
Reykjavíkurmaraþon íslandsbanka var hlaupið 20. ágúst
2017. Mikil stemning var og safnaðist 363.571 króna til
Hjartaheilla. Hjartaheill þakkar öllum hlaupurum sem hlupu
fyrir samtökin hjartanlega fyrir stuðninginn.
Ellefta hjartadagshlaupið fór fram laugardaginn 23. septem-
ber s.l. Hlaupnir voru 5 og 10 km að venju. Þann 29. sept-
ember 2017 kl. 17:00 var svo hjartagangan haldin.
Annað líf
Hjartaheill hefur tekið virkan þátt í samstarfsverkefninu
„Annað líf“. Er þar fjallað um málefni líffæragjafa og líffæra-
þega og áfram lögð áhersla á að ná fram breytingu á lögum
um líffæragjafir þannig að megin reglan verði „ætlað sam-
þykki".
Fjölgun félagsmanna
I septembermánuði hófu samtökin átak í að fjölga félags-
mönnum. Öflun ehf. sem hefur séð um söfnun styrkja í
Velferð tók að sér þetta verkefni sem felst í því að hringja í
landsmenn og bjóða þeim að gerast Hjartavinir og greiða
Úr fundarsal.
3.900,- kr. á ári. Alls hafa 1469 einstaklingar gerst Hjartavinir
á árinu 2017. Þetta verkefni er tímalaust og mun halda áfram
næstu árin.
Formannafundur Hjartaheilla var haldinn 8. desember 2017
í Síðumúla 6, Reykjavík. Nítján félagsmönnum voru þar veitt
heiðursmerki Hjartaheilla.
Meðal þess sem kynnt var á fundinum var breyting á sam-
ræmdum lögum fyrir deildir Hjartaheilla að starfa eftir.
Eftir að formaður hafði flutt skýrslu sína kynnti Guðmundur
R. Óskarsson og skýrði ársreikninga Hjartaheilla og Styrkt-
arsjóðs hjartasjúklinga fyrir síðustu þrjú ár og voru þeir
samþykktir.
Styrktarsjóður hjartasjúklinga til Hjartaheilla
Formaður las bréf frá stjórn Hjartaheilla og Styrktarsjóðs
hjartasjúklinga þess efnis að leggja bæri styrktarsjóðinn
niður og færa allar eignir sjóðsins til Hjartaheilla. Ástæð-
ur þessarar beiðni er er að tekjur sjóðsins hafa farið ört
minnkandi, m.a. vegna þess að sala minningakorta er að
miklu leyti úr sögunni, og Hjartaheill hefur að mestu annast
styrkveitingar til einstaklinga, sem og tækjakaupa. Fjármunir
sjóðsins verða áfram notaðir í sama tilgangi og fyrr, þ.e. að
styrkja efnaminni hjartasjúklinga, og til tækjakaupa, sem
einnig munu nýtast íslensku þjóðinni. Þá mun kostnaður
minnka við þessar breytingar, m.a. vegna auglýsinga, bók-
halds og endurskoðunar. Tillagan var samþykkt.
Ályktun frá aðalfundi:
„Aðalfundur Hjartaheilla 2018 lýsir yfir miklum áhyggjum
varðandi stöðu mála vegna breyttra aðstæðna sem geri að-
gengi að sérfræðiþjónustu hjartalækna erfiðar".
Stjórnarkjör
Eftirtaldir skipa stjórn Hjartaheilla til næstu þriggja ára:
Sveinn Guðmundsson Reykjavík formaður
Aðrir stjórnarmenn:
6 Máigagn Hjartaheilla