Velferð - 01.12.2018, Page 10
Fyrsta opna hjartaaðgerðin hér á landi fór fram árið 1986 og
þá hófust einnig innæðaaðgerðir og kransæðavíkkun með
stoðneti. ísetning bjargráðs fylgdi í kjölfarið. Endurhæfing
hjartasjúklinga var komið á fót Reykjalundi um svipað leyti.
Hjartaaðgerðir á börnum hófust á tíunda áratugnum. íslensk
erfðagreining tók til starfa. Brennsluaðgerð á leiðslukerfi.
Fóðrun ósæðargúla.
Brennsluaðgerðir á gáttatifi hófust upp úr aldamótunum
2000 og þá farið að beita kælimeðferð eftir hjartastopp.2
Á síðustu þrjátíu árum hefur orðið bylting í meðferð hjarta-
sjúkdóma og að sögn hjartalækna má búast við mikilli fram-
þróun áfram. Þá er sérhæfing hjartalækna innan greinarinn-
ar orðin mun meiri en áður þekktist.
Sem dæmi um nýjungar sem hafa breytt miklu í meðferð
hjartasjúklinga má nefna ný blóðþynningarlyf, næmari
mælingar á hjartaensímum, notkun blóðflæðismælinga í
kransæðum til að meta þrengingar, ísetning hjartaloka með
þræðingartækni, framþróun í notkun gangráða, og bjarg-
ráða, brennsluaðgerðir við gáttatifi og gáttaflökti og þrí-
víddarhjartaómun.
Aðgerðaþjarki til skurðlækninga var tekinn í notkun á
Landspítala í ársbyrjun 2015. Hann nýtist vel við margvís-
legar brjóstholsaðgerðir, þar með taldar hjartaaðgerðir.
Á síðari árum hefur orðið allmikil nýliðun í þessari grein.
Árið 2015 voru starfandi hjartalæknar á landinu 37, en að
auki fimm hjartaskurðlæknar og fimm barnahjartalæknar. Þá
voru að líkindum á þriðja tug íslenskra hjartalækna starfandi
erlendis, sumir þeirra í sérnámi, en fjöldi hjartalækna flutti
út eftir efnahagshrunið.3
í þessu yfirliti hefur verið drepið á það helsta sem gerst hefur
á sviði hjartalækninga frá því þær fóru að eflast vegna fram-
fara á þessu sviði á sjöunda áratug síðustu aldar. Vafalaust
er það ýmislegt ótalið og annað í ósamstæðum stiklum, en
vonandi gefur það nokkra hugmynd um þróunina sem orðið
hefur á þessu sviði á síðustu áratugum. Hvað sem öðru líður
þá hefur náðst gífurlegur árangur í baráttunni við hjartasjúk-
dóma hér á landi, einhver sá besti sem náðst hefur á Norð-
urlöndum Það er fagnaðarefni, ekki síst þar sem Norðurlönd
standa vel í þessum efnum.
Hér hefur verið drepið á helstu þætti í þróun hjartalækninga
hér á landi af miklum vilja en lítilli þekkingu. Samantektin
var send nokkrum helstu heimildarmönnum til yfirlestrar.
Það kom undirrituðum á óvart að hvergi er enn að finna
samantekt um þetta efni. Vonandi verður bætt úr því á
næstu árum, því hér hefur þróunin verið ótrúlega hröð á
örskömmum tíma.
Pétur Bjarnason.
1. Árni Kristinsson. „Læknablaðið 100 ára. Hjartalækningar fyrir hálfri öld.“ Læknablaðið, 09. tbl. 100. árg. 2014. Stór hluti greinarinnar er unninn
upp úr þessari heimild.
2. Gestur Þorgeirsson og Högni Óskarsson. „Stiklað yfir 100 ár í þróun læknisfræðinnar." Læknablaðið 10. tbl. 95. árg. 2009. Með þessari grein fylgdi
yfirlit um helstu áfanga í þróun læknisfræði, sem hefur verið notað hér.
3. Þórarinn Guðnason. „Hjartalækningar, stór sérgrein í hraðri framþróun." Læknablaðið 12. tbl. 101. árg. 2015.
Fáðu góðar vörur á góðu verði
og láttu gott af þér leiða - þá vinna altir!
Kíktu á heimasíðu múlalundar - www.mulalundur.is
Þú pantar og víð sendum til þín hvert á land sem er
Múlalundur | Vinnustofa SIBS
Reykjalundur I 270 Mosfetlsbær
Sími 562 8500
www.mulatundur.is
MULALUNDUR
Handavinna
Við getum pakkað, brotið,
merkt og ýmislegt annað
Allt fyrir skrifstofuna
Ritföng, pappír og aðrar
skrifstofuvörur
Möppur
Úrval af möppum í ötturn
stærðum og gerðum
10 Málgagn Hjartaheilla