Velferð - 01.12.2018, Qupperneq 14

Velferð - 01.12.2018, Qupperneq 14
Yfirleitt var samvinna mjög góð milli SÍBS og LHS, þó stundum væri meiningamunur á þingum. Aldrei urðu þessar deilur þó að vinslitum og hin síðustu ár eru þessi gömlu skil á milli aðildarfélaga eftir því hvernig þau tengdust SÍBS í upphafi að þurrkast út og mega heita úr sögunni. Fjáröflun - söfnunarkúlurnar Sala minningarkorta varð afar góð góð tekjulind eftir stofn- un styrktarsjóðsins og runnu tekjur af þeim beint í sjóðinn. Merkjasala hófst árið 1985 og tókst vel Kjörorð þá var: „Tökum á -tækin vantar". 1986 var kjörorðið: „Ert þú hjarta- góður", 1988: „Söfnum kröftum", 1990: „Er hjartað á réttum stað?“ og 1992: „Vinnum saman, verndum hjartað". Rúrik Kristjánsson lét á sínum tíma út- búa bauk með nafni og merki Landssam- taka hjartasjúklinga og lét liggja frammi í Árbæjarapóteki. Þar sem þetta gafst vel voru gerðar söfnunarkúlur úr plasti og settar í tíu apótek til viðbótar, og þær skiluðu all- ar góðum árangri. Þessar söfnunarkúlur Húsnæðismál LHS var með aðstöðu í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu fljót- lega eftrir að starfsemi samtakanna hófst og til ársins 1998 að flutt var í húsnæði SÍBS í Suðurgötu 8, en árið 2002, flutt- ist SÍBS í SÍBS húsið, Síðumúla 6 og þar er aðstaðan í dag. Ingólfur Viktorsson var skrifstofustjóri til ársins 1999, en þá tók við starfi hans Rúrik Krist- jánsson. Ásgeir Þór Árnason, kom til starfa sem framkvæmdastjóri sam- takanna síðar á sama ári og hefur gegnt því starfi síðan. hafa verið í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, á öllum útsölustöðum Nl, í öllum lyfjabúðum og fjölmörgum verslunum. Þetta hefur reynst öflugasta og ódýrasta fjáröfl- un samtakanna frá upphafi og hefur skilað ófáum krónum í kassann. Eggert Skúlason, varaformaður Hjartaheilla, hjólaði hringinn í kringum landið á þremur vikum sumarið 2005 til fjáröfl- unar fyrir Hjartaheill. Eggert lauk hringferðinni eftir u.þ.b. 1400 km. ferðalag á 15 dögum. Ferðin skilaði góðum tekjum til Hjartaheilla og vakti verulega athygli á málstað félagsins. Norrænu hjartasamtökin LHS gerðist 1992 stofnaðili að sambandi norrænna hjarta- samtaka, Nordisk Hjerte Union.. Átta landssamtök stóðu að stofnuninni þar á meðal LHS. Framangreind samtök hittast einu sinni á ári og skiptast á upplýsingum um félagsstarf, fjáröflun, útgáfumál og fleira. Neistinn - styrktarfélag hjartveikra barna Neistinn, styrktarfélag hjartveikra barna, var stofnaður 9. maí, 1995. Neistinn varð aðili að Hjartaheillum 1996 og 11. deildin innan raða þeirra. Sama ár lögðu Hjartaheill og Rauði kross Islands fram fimmtán milljónir króna til kaupa á hjartaómsjá fyrir börn ásamt handlækningatækjum. Á vegum Neistans var stofnaður Styrktarsjóður hjartveikra barna, árið 1997. Þá heldur Neistinn úti vefnum Hjarta- gáttinni og hefur gefið út blaðið Neistann frá árinu 2004. Hjartagangan Hin árlega Hjartagangan var fyrst gengin 1991. Gangan var fyrst og fremst hugsuð til þess að undirstrika hollustu gönguferða fyrir landsmenn og hjartasjúklinga sérstaklega. Alls tóku um 4.000 manns þátt í þessari fyrstu hjartagöngu. Hjartagangan hefur verið árlegur viðburður á vegum hjarta- sjúklinga og var framan af alltaf gengið um hásumarið, oft í júní, en hin síðari ár oftast í september. Árið 2000 var stofn- að til alþjóðlegs hjartadags, í september ár hvert, og féll það vel saman við hjartagönguna, sem síðan var tengd þessum degi. Þátttaka f hjartagöngunni hefur farið minnkandi ár frá ári og er nú varla svipur hjá sjón. Að sama skapi hafa vinsældir Hjartahlaupsins vaxið verulega, en Hjartavernd stendur að því ásamt Hjartaheillum og fleirum. 14 Málgagn Hjartaheilla

x

Velferð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.