Velferð - 01.12.2018, Side 17
Hjartaheill starfsárið 2018
Starfið var að mestu með hefðbundnum hætti.
Á skrifstofu Hjartaheilla störfuðu Kjartan Birgisson, í hlutastarfi og Ásgeir
Þór Árnason, framkvæmdastjóri. Skrifstofan var lokuð í júlí og mun svo verða
framvegis. Guðrún Bergmann Franzdóttir hætti störfum í lok síðasta árs eftir
margra ára farsæl störf. Hún hefur lagt Hjartaheillum lið eftir sem áður með
margvíslegum hætti.
Hjartaheill og Lyfsalinn í Glæsibæ tóku upp samstarf í formi afslátta fyrir félags-
menn Hjartaheilla og annarra aðildarfélaga SÍBS.
Hjartaheill og Artasan undirrituðu samstarfssamning um sölu á Microlife blóð-
þrýstingsmælum, en Hjartaheill hefur notað Microlife blóðþrýstingsmæla við
mælingar um allt land undanfarin 15 ár með mjög góðum árangri
Auk þess að bæta úr þörf félagsmanna Hjartaheilla fyrir að eignast slíka mæla þá
fær Hjartaheill 500,- kr. af hverjum seldum mæli til starfsemi samtakanna. Mæl-
ana er hægt að kaupa í apótekum um allt land og í SÍBS Versluninni í Síðumúla 6,
Reykjavík.
Febrúarmánuður var tileinkaður GoRed átakinu á ýmsan máta svo sem vant var
en níu ár eru síðan ísland fór í samstarf með Alþjóðlegu hjartasamtökunum og
GoRed verkefninu sem leggur megináherslu á konur og hjartasjúkdóma. Hjarta-
heill hafa tekið virkan þátt í starfi GoRed samtakanna ásamt fleiri félögum.
Efnt var til merkjasölu í apríl, sem gekk mjög vel og gaf hálfa fimmtu milljón
króna.
Þá hafa Hjartaheill og SÍBS staðið fyrir mælingum á blóðþrýstingi, blóðfitu, blóð-
sykri, púls, súrefnismettun í blóði hefur verið mæld, gerð öndunarpróf, mittismál
mælt og gripstyrkur. Þátttakendum býðst einnig að taka þátt í lýðheilsukönnun-
inni - Líf og Heilsa. Fjallað hefur verið um þesar mælingar í Velferð.
Hjartaheill styrkti á síðasta ári fjóra hjúkrunarfræðinga af Reykjalundi til náms-
ferðar til að skoða endurhæfingarstöðvar í Þýskalandi.
Hjartaheill tók þátt í sýningunni Fit og Run í Laugardalshöll í ágúst í samvinnu
við Neistann. Hjartaheill útdeildi þá bolum sem Margt smátt gaf samtökunum.
Það er vaskur hópur mœlingafólks sem fer í mœlingaferðir út um allt land. Hér er hann
staddur á Norðurlandi.
Reykjavíkurmaraþon íslandsbanka var
hlaupið 18. ágúst 2018. Mikil stemning
var og söfnuðust 363.571 krónur til
Hjartaheilla. Hjartaheill þakkar öllum
hlaupurum sem hlupu fyrir samtökin
hjartanlega fyrir stuðninginn.
Ellefta hjartadagshlaupið fór fram
laugardaginn 23. september s.l.
Hlaupnir voru 5 og 10 km að venju.
Þann 29. september 2018 var hjarta-
gangan haldin.
Hjartaheill hefur tekið virkan þátt í
samstarfsverkefninu „Annað líf“. Er þar
íjallað um málefni líffæragjafa og líf-
færaþega og áfram lögð áhersla á að ná
fram breytingu á lögum um líffæragjaf-
ir þannig að megin reglan verði „ætlað
samþykki".
Söfnunarbaukar á höfuðborgarsvæð-
inu og á Keflavíkurflugvelli hafa verið
samtökunum afar mikilvæg tekjulind
og er orðin ein af stærstu fjáröflunum
samtakanna.
Á síðasta ári hófu samtökin átak í að
fjölga félagsmönnum. Átakið hefur
gengið afar vel og gerðust 1469 einstak-
lingar Hjartavinir á árinu 2017, en fé-
lagsmenn eru nú um 4.400 talsins.
Aðalfundur Hjartaheilla var haldinn
14, september 2018 í Síðumúla 6,
Reykjavík. Sagt er frá fundinum á öðr-
um stað í blaðinu.
Jólakortasalan fór fram í nóvember og
desember, en vart verður við mikinn
samdrátt í kortasölunni. Jólabingó
Hjartaheilla og S.L. var haldið i des-
ember 2017 og var mjög vel sótt. Þá
spilaði Stórsveit SÍBS á jólaböllum fyrir
Neistann og Astma- og ofnæmisfélagið
og foreldrafélag fatlaðra eins og fyrri ár.
VELFERÐ kom að vanda út tvisvar á
árinu með fræðslu, fróðleik og fréttir.
Samtökin hafa staðið að gerð og útgáfu
á fræðslumyndum um hjartasjúkdóma,
hjartaaðgerðir, endurhæfingu og
forvarnir.
Velferð 17