Velferð - 01.12.2018, Blaðsíða 21

Velferð - 01.12.2018, Blaðsíða 21
varpið er að flestu leyti samhljóða sambæri- legum lögum sem sett hafa verið á hinum Norðurlöndunum. Það er sömuleiðis í sam- ræmi við rammasamning Alþjóðaheilbrigð- isstofnunarinnar (WHO, FCTC) um tóbaks- varnir og álit fagráðs um tóbaksvarnir hjá Embætti landlæknis. Með þessu frumvarpi er settur rammi utan um sölu, gæðaeftirlit og notkun rafsígarettunnar. Með því móti er neytendavernd notenda rafsígar-ettunnar tryggð um leið og öryggissjónarmiða er gætt varðandi hættuna sem af þessari vöru getur stafað. Réttur þeirra sem ekki veipa til að anda að sér hreinu lofti er virtur. Staðreyndin er sú að engar klínískar lang- tímarannsóknir liggja fyrir um það hversu skaðlegar rafrettur eru heilsu fólks. Hins vegar eru ýmis teikn um að markviss markaðssetning þessarar vöru gagnvart börnum og unglingum hafi leitt til aukinnar notkunar meðal þeirra. Nú veipa um 10% framhaldsskólanema daglega og fjölgar þeim með hverju árinu sem líður. Það er með öllu óvíst hversu mörg þeirra munu leiðast út í sígarettureykingar. Hins vegar er hlutfall framhaldsskólanema sem reykja sígarettur komið niður í um 5% og er það þróun sem hefur hefur haldist stöðug síðustu áratugina og hefur ekkert breyst eftir tilkomu rafsí- garettunnar. Það er því óvarlegt að álykta að aukin notkun rafsígarettunnar á allra síðustu árum hafi stuðlað að því að unglingar hætti að reykja. Hér virðist rafsígarettan koma sem viðbót við reykingar unglinga. I þessu máli skiptast menn í fylkingar, með og á móti, og orðræðan er á köflum óvægin og stundum ekki sérlega málefnaleg. Það takast á hugmyndafræðilegir og menn- ingarlegir afkimar (subculture) sem verja með harðvítugum hætti þá afstöðu sína að stjórnvöld eigi að skipta sér sem minnst af innflutningi og sölu rafsígarettna._ Með frumvarpinu sem nú liggur fyrir Al- þingi er þeim sem kjósa að nota rafsígarettur frjálst að gera það áfram og einhverjum þeirra mun takast að hætta reykingum með þessari aðferð. Hins vegar innifelur það ekki leyfi til að útsetja aðra fyrir veipgufu sem hefur ófyrirséð heilsufarsleg áhrif á þá sem fyrir því verða. Það eru sjálfsögð mannréttindi að fá að anda að sér hreinu og ómenguðu lofti. Sá réttur vegur þyngra en réttur manna til óheftrar notkunar rafsígar- ettna. Árið 2018 er ekki lengur leyfilegt að reykja í langferðabílum. Á meðan heilsufarsleg áhrif veipgufunnar eru óþekkt er óásættanlegt að engin lög nái yfir notkun rafsígarettunnar. Til þess er of mikið í húfi. Karl Andersen er hjartalœknir á Hjartagátt Landspítala ogprófessor við læknadeild HÍ. Landspítalinn í tölum Það eru mikil umsvif á Landspítala alla daga. Hér að neðan eru tekin tvö dæmi af heimasíðu spítalans, en þar má jafna sjá á forsíðu svona yfirlit um starfsemi sem er í gangi hverju sinni. Landspítalinn 19.09.2018 2.616 eru við vinnu þessa stundina • 6 sjúklingar eru á Hjartagátt • 11 hafa útskrifast • 4 börn hafa fæðst í dag • 14 hafa lagst inn í dag • 5 eru á bráðamóttöku barna núna • 15 blóðgjafir í Blóðbanka • 13 skurðaðgerðir í gangi • 8 sjúklingar eru á bráða- og göngudeild • 42 sjúklingar eru á bráðadeild Fossvogi 28.11.2018 um hádegisbil 2638 eru við vinnu þessa stundina • 13 sjúklingar eru á Hjartagátt • 18 hafa útskrifast • 1 barn hefur fæðst í dag • 18 hafa lagst inn í dag... • 3 eru á bráðamóttöku barna núna • 18 blóðgjafir í Blóðbanka • 16 skurðaðgerðir í gangi • 17 sjúklingar eru á bráða- og göngudeild • 46 sjúklingar eru á bráðadeild Fossvog Ég lifði af Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu HeartSine' n Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Donna Sími 555 3100 www.donna.i: Velferð 21

x

Velferð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.