Velferð - 01.12.2018, Side 25

Velferð - 01.12.2018, Side 25
Vátryggingafélögin Landspítala um 1 styrkja hjartadeild 8 milljónir króna Fræðslu- og forvarnarstarf á hjartadeild Landspítala mun eflast á næstu árum Samtök íjármálafyrirtækja, fyrir hönd vátryggingafélaganna Sjóvár, TM, VÍS og Varðar, leggja hjartadeild Landspítala til 18 milljónir króna á næstu árum, samkvæmt samningi sem undirritaður var 16. október 2018. Féð rennur í sjóð sem verður meðal annars nýttur til að fræðslu og forvarnar- starfs á vegum hjartadeildar Landspítalans. Styrk vátryggingafélaganna til hjartadeildar verður varið til að stórefla fræðslu og forvarnarstarf á vegum hennar. Hjarta- og æðasjúkdómar eru helsta dánarorsök Islendinga og því þykir vel við hæfi að vátryggingafélögin styðji við hjartadeild Landspítala með þessum hætti. I fyrstu verður megináherslan á að styrkja svokallaðar annars stigs forvarnir, þ.e. forvarnir hjá þeim sem hafa þegar greinst með kransæðasjúkdóm. Það felur meðal annars í sér reykleysismeðferð, meðferð við háþrýstingi, sykursýki og hækkuðu kólesteróli. Einnig verður skoðað hvernig best er að efla forvarnir hjá þeim sem enn hafa ekki greinst með hjartasjúkdóm. í því tilliti kunni að vera áhugavert að beina sjónum fyrst og fremst að yngri kynslóðum. Samningurinn felur meðal annars í sér þróun vefsíðu með gagnvirku fræðsluefni um kransæðasjúkdóma. Styrkurinn verður einnig nýttur til umbóta á aðstöðu sjúklinga sem liggja á hjartadeild og aðstandenda þeirra. Þá verður enn fremur lagt fé til eflingar starfsþróunar starfsfólks deildar- innar. Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja hafði þetta að segja um samkomulagið: „Vátryggingafélögin gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu þegar kemur að fræðslu og forvörnum. Forvarnir eru ákaf- lega mikilvægar þegar kemur að vörnum gegn sjúkdómum á borð við hjarta- og æðasjúkdóma. Þar getur lífsstíll og mataræði til að mynda skipt miklu máli til þess að koma í veg fyrir slíka sjúkdóma. Samkomulag vátryggingafélaganna og hjartadeildar er því mikið fagnaðarefni og mun án efa skila miklum árangri þegar fram í sækir." Davíð O. Arnar, yfirlœknir hjartalækninga á Landspítala, Katrín Júlusdóttir,framkcemdastjóri Samtaka fiármálafyrirtcekja, ogBylgja Kcernested, deildarstjóri á hjartadeild skrifa undir samstarfssamn- inginn. Fulltrúar vátryggingafélaganna fylgjast árvökulir með. Davíð O Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala: „Þetta er mjög áhugavert samstarf og sýnir í hnotskurn hversu mikla áherslu við viljum leggja á forvarnastarf og heilsueflandi aðgerðir á komandi árum. Það skyldi nefnilega seint vanmeta jákvæð áhrif þátta eins og hreyfingar, holls mataræðis, kjörþyngdar og góðra svefnvenja á heilbrigði." Bylgja Kærnested, deildarstjóri hjartadeildar Landspítala: „Til viðbótar við forvarnarstarfið eru með þessum samningi sköpuð mikilvæg tækifæri til að bæta aðstöðu á deildinni svo og efla starfsþróun hjá þeim sem starfa á hjartadeild. Það er ekki síst mikilvægt þegar gríðarleg samkeppni er um heil- brigðisstarfsfólk, sérstaklega hjúkrunarfræðinga." Frétt afvef Landspítalans 17. október 2018. ÞOR ehf vélaverkstæði Pósthólf 133, 902 Vestmannaeyjar Sími 481-2111, fax 481-2918 Netfang: info@velathor.is Vefsíða: www.velathor.is Velferð 25

x

Velferð

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Velferð
https://timarit.is/publication/1312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.