Velferð - 01.12.2018, Page 25
Vátryggingafélögin
Landspítala um 1
styrkja hjartadeild
8 milljónir króna
Fræðslu- og forvarnarstarf á hjartadeild
Landspítala mun eflast á næstu árum
Samtök íjármálafyrirtækja, fyrir hönd vátryggingafélaganna
Sjóvár, TM, VÍS og Varðar, leggja hjartadeild Landspítala til
18 milljónir króna á næstu árum, samkvæmt samningi sem
undirritaður var 16. október 2018. Féð rennur í sjóð sem
verður meðal annars nýttur til að fræðslu og forvarnar-
starfs á vegum hjartadeildar Landspítalans.
Styrk vátryggingafélaganna til hjartadeildar verður varið
til að stórefla fræðslu og forvarnarstarf á vegum hennar.
Hjarta- og æðasjúkdómar eru helsta dánarorsök Islendinga
og því þykir vel við hæfi að vátryggingafélögin styðji við
hjartadeild Landspítala með þessum hætti.
I fyrstu verður megináherslan á að styrkja svokallaðar
annars stigs forvarnir, þ.e. forvarnir hjá þeim sem hafa þegar
greinst með kransæðasjúkdóm. Það felur meðal annars í
sér reykleysismeðferð, meðferð við háþrýstingi, sykursýki
og hækkuðu kólesteróli. Einnig verður skoðað hvernig best
er að efla forvarnir hjá þeim sem enn hafa ekki greinst með
hjartasjúkdóm. í því tilliti kunni að vera áhugavert að beina
sjónum fyrst og fremst að yngri kynslóðum.
Samningurinn felur meðal annars í sér þróun vefsíðu með
gagnvirku fræðsluefni um kransæðasjúkdóma. Styrkurinn
verður einnig nýttur til umbóta á aðstöðu sjúklinga sem
liggja á hjartadeild og aðstandenda þeirra. Þá verður enn
fremur lagt fé til eflingar starfsþróunar starfsfólks deildar-
innar.
Katrín Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka
fjármálafyrirtækja hafði þetta að segja um samkomulagið:
„Vátryggingafélögin gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu
þegar kemur að fræðslu og forvörnum. Forvarnir eru ákaf-
lega mikilvægar þegar kemur að vörnum gegn sjúkdómum
á borð við hjarta- og æðasjúkdóma. Þar getur lífsstíll og
mataræði til að mynda skipt miklu máli til þess að koma í
veg fyrir slíka sjúkdóma. Samkomulag vátryggingafélaganna
og hjartadeildar er því mikið fagnaðarefni og mun án efa
skila miklum árangri þegar fram í sækir."
Davíð O. Arnar, yfirlœknir hjartalækninga á Landspítala, Katrín
Júlusdóttir,framkcemdastjóri Samtaka fiármálafyrirtcekja, ogBylgja
Kcernested, deildarstjóri á hjartadeild skrifa undir samstarfssamn-
inginn. Fulltrúar vátryggingafélaganna fylgjast árvökulir með.
Davíð O Arnar, yfirlæknir hjartalækninga á Landspítala:
„Þetta er mjög áhugavert samstarf og sýnir í hnotskurn
hversu mikla áherslu við viljum leggja á forvarnastarf og
heilsueflandi aðgerðir á komandi árum. Það skyldi nefnilega
seint vanmeta jákvæð áhrif þátta eins og hreyfingar, holls
mataræðis, kjörþyngdar og góðra svefnvenja á heilbrigði."
Bylgja Kærnested, deildarstjóri hjartadeildar Landspítala:
„Til viðbótar við forvarnarstarfið eru með þessum samningi
sköpuð mikilvæg tækifæri til að bæta aðstöðu á deildinni svo
og efla starfsþróun hjá þeim sem starfa á hjartadeild. Það er
ekki síst mikilvægt þegar gríðarleg samkeppni er um heil-
brigðisstarfsfólk, sérstaklega hjúkrunarfræðinga."
Frétt afvef Landspítalans 17. október 2018.
ÞOR ehf vélaverkstæði
Pósthólf 133, 902 Vestmannaeyjar
Sími 481-2111, fax 481-2918
Netfang: info@velathor.is
Vefsíða: www.velathor.is
Velferð 25