Mosfellingur - 12.06.2014, Blaðsíða 26

Mosfellingur - 12.06.2014, Blaðsíða 26
 - Áfram Liverpool26 MálMhaus Þessi pistill er skrifaður í flugferð. Ég var að horfa á íslensku kvik- myndina Málmhaus. Frábær mynd, mæli með henni. Hún snýst meðal annars um að eiga drauma, þora að vera öðruvísi og láta draumana ræt- ast, sama hvað öðrum finnst um þá. Þetta á við um hreyfingu og heilsu. Það er ekkert vit í að stunda hreyf- ingu sem aðrir hafa meira gaman af en þú. Þú þarft ekki að stunda golf, æfa fótbolta, hlaupa á bretti eða krossfittast þótt vinir þínir og aðrir í kringum þig séu á kafi í þannig hreyfingu. Málið snýst um að þora að vera öðruvísi, koma út úr hreyfingar- skápnum og stunda þá hreyfingu sem gefur þér eitthvað sérstakt. Lætur þér líða vel og kallar á þig. Gerir þér kleift að gera hluti sem þig langar til að gera. Ég hef talað um jiu jitsu í pistli. Ætla að gera það aftur. Ég fékk áhuga á jiu jitsu þegar ég var unglingur. Hætti í körfubolta til að æfa form af jiu jitsu og lét mig hafa það þótt félagarnir í körfunni gerðu stólpagrín að mér, fannst þetta ekki vera íþrótt. Það er algengt, að mönnum finnist sín íþrótt og hreyfing vera sú eina sanna. Íþróttin. Hreyf- ingin. Gera lítið úr annars konar hreyfingu og þeim sem stunda hana. Ég get ekki breytt því. En ég get látið mér vera slétt sama. Mín hreyfing er fyrir mig, ekki aðra þótt það sé frábært að stunda hreyfingu með öðr- um. Ef þeir eru á sömu hreyfingarlínu og maður sjálfur. Fólk tengist í gegnum hreyfingu og fær styrk frá hverju öðru. Hvort sem það þekktist áður eða ekki. Ég á mér æfingadraum. Svart belti í jiu jitsu. Hef verið í langri pásu. En ég ætla að láta hann rætast, sama hvort það taki fimm eða tíu ár. Viktor, þú manst veðmálið! heilsuMolar Gaua Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Þverholti 2 • Mosfellsbæ Fasteignasala Mosfellsbæjar Sími: 586 8080 www.fastmos.ishafðu samband E.BAC K M A N Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali Viltuselja... E .B A C K M A N www.fastmos.is Sími: 586 8080 Um helgina fór Liverpool skólinn á Íslandi fram í fjórða skipti á Tungubökkum. Skólinn hefur verið samstarfsverkefni hins sögufræga stórliðs, Liverpool FC og Aftureldingar. Til samstarfs hafa svo fyrrgreind félög fengið Þór til að annast viðbótar skóla á Akureyri. Hann fer fram nú í vikunni, í beinu framhaldi af skólanum í Mosfellsbæ Knattspyrnuskólinn í ár er sá fjölmenn- asti hingað til, bæði hvað varðar iðkendur og þjálfara. Rétt tæplega 200 börn sóttu skólann í Mosfellsbæ en tæplega 70 börn á Akureyri. Hingað til lands komu 12 þjálfarar frá Liver- pool international academy og til viðbótar við þá eru 12 aðstoðarþjálfarar frá Aftureldingu sem aðstoða og túlka einnig fyrir börnin. Mikil ánægja ríkti meðal barna og foreldra og er óhætt að segja að skólinn í ár hafi verið sá best heppnaðasti hingað til. Hvert einasta ár hafa þjálfarar Liverpool haft á orði að hvergi í heiminum sé umgjörð- in eins vönduð og góð og á Íslandi, samstarf og dugnaður sjálfboðaliða sem bera uppi starfið einstakt. Knattspyrnudeild Aftureldingar er þeim fjölda sjálfboðaliða sem lagt hefur hönd á plóg við framkvæmd skólans ákaflega þakk- lát, án þeirra væri ómögulegt að gera skólann eins vel úr garði og raun ber vitni. Einnig þakkar knattspyrnudeild þeim fjöl- mörgu styrktaraðilum sem leggja verkefninu lið með ýmsum hætti. Þar ber helst að nefna: Matfugl, MS, Mosfellsbakarí, Hamborgarafa- brikkan, Re Act, Hvíti riddarinn, Kjötbúðin, Mosfellingur, Papco, Nonni litli, Fiskbúðin Mos og fleiri. Liverpool skólinn fór fram á Tungubökkum um síðustu helgi Aldrei eins margir í Liverpool skólanum hreindís með tónleika Söngkonan Hreindís Ylva heldur tón- leika á Cafe Rósenber fimmtudags- kvöldið 19. júní. Tónleikarnir hefjast kl. 21 og kemur Hreindís fram með nýtt prógram, þ.á.m. kántrýsmelli úr öllum áttum. Hún kallar þetta tón- leika/ áættuatriði þar sem hún ætlar að spila sjálf á gítar opinberlega Hún verður þar ásamt aðstoðarfólki. Einnig kemur út nýtt lag á næstu dögum frá henni sem heitir Barnsins augu sjá og verður það m.a. flutt á tónleikunum. sýningin í listasalnum framlengd Sýningin Þetta vilja börnin sjá! sem er í Listasal Mosfellsbæjar hefur verið framlengd til 5. júlí. Á sýningunni eru myndskreyt- ingar í íslenskum barnabókum sem gefnar voru út á árinu 2013. Sýningin er fengin að láni frá menningarmiðstöðinni Gerðubergi en slíkar sýningar hafa verið haldnar þar frá árinu 2002. Þetta er í fyrsta sinn sem Listasalur Mosfellsbæjar fær sýninguna til sín og er mikill fengur að því. Á sýningunni eru myndir eftir 26 myndskreyta. Sýningin hentar sérstaklega vel börnum og er sett upp með þeirra hæð í huga. margir koma að skipulaggningu knattspyrnuskóla liverpool iðagrænir vellir á tungubökkum ungur og efnilegur veðrið lék við knattspyrnu- fólk um hvítasunnuhelgina

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.