Mosfellingur - 12.06.2014, Síða 30
- Aðsendar greinar30
Plast er eitt af þeim úrgangsefn-
um sem eyðast seint í náttúrunni.
Til að framleiða plast þarf dýrmæt
hráefni, meðal annars olíu sem
vitað er að mun klárast á frekar
stuttum tíma ef við höldum svona
áfram.
Samt er ennþá öllu pakkað inn
í plast því það þykir svo snyrtilegt
og hreinlegt. Í hverri innkaupaferð eru
keyptir plastpoka undir vörurnar. Menn
afsaka sig með því að eitthvað þarf jú að
nota undir ruslið seinna. Mig langar að
benda á að hægt er að kaupa maíssterkju-
poka sem brotna niður í náttúrunni. Slíkir
pokar eru ódýrari en innkaupaplastpokar
sem munu „lifa“ kannski í meira en 100
ár. Til er fjöldi af góðum og sterkum marg-
nota- innkaupapokum. Ekkert mál að hafa
þetta með í búðarferðirnar. Eða
nota pappakassa sem eru í boði í
flestum verslunum.
Svo eru það svörtu stóru plast-
pokarnir. Ennþá nota menn þessa
úreltu aðferð að troða öllum garð-
úrgangi – jafnvel grófan úrgang – í
slíka poka. Vel væri hægt að setja
þetta í staðinn beint í kerru og
aka í endurvinnslustöðvarnar. Miður þykir
mér að á vegum bæjarins eru einnig not-
uð slík aðferð. Af hverju má ekki nota stóra
margnota poka í staðinn ef nauðsyn krefst
að setja garðúrganginn í poka? Í Reykjavík
má sjá vinnuaðferðir á vegum borgarinn-
ar í rétta átt og hefur svörtum plastpokum
fækkað talsvert.
Í lokin er hér eitt dæmi um fáranleg
vinnubrögð: Gömlu laufi var rakað saman
og troðið í svarta poka. Þessir pokar hafa
verið þarna í marga mánuði á bílastæði
starfsmanna Varmárskólans og enginn hirt
þá. Hefði ekki verið betra að leyfa laufinu
bara að vera þarna og breytast smám sam-
an í jarðveg?
Úrsúla Jünemann
Plastpokalaus Mosfellsbær?
Við undirrituð, nýkjörnir bæjarfulltrúar
Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Mosfells-
bæjar, viljum koma á framfæri þakklæti
okkar til allra þeirra sem kusu lista flokks-
ins í bæjarstjórnarkosningunum og treystu
okkur þar með til að koma að stjórnun bæj-
arins næstu fjögur árin.
Samfylkingin bætti við
sig fylgi frá kosningun-
um 2010 og fékk þ.a.l.
í sinn hlut annan við-
bótarmanninn í bæj-
arstjórn, nú þegar full-
trúum var fjölgað úr sjö
í níu.
Slíkur árangur í
kosningum er ekki verk
tveggja einstaklinga
heldur árangur þrot-
lausrar vinnu fjölmargra
öflugra jafnaðarmanna
sem lögðu fram mikla
vinnu á vormánuðum.
Vinnu sem byggðist á
því starfi sem fulltrúar Samfylkingarinn-
ar hafa sinnt af trúmennsku undanfarin
ár. Starfið á vormánuðum fólst í vinnu við
málefnastarf, mótun stefnuskrár, útburð,
veitingar, samtöl við kjósendur heima og
heiman og margt, margt fleira. Markmið
hópsins var að heyja málefnalega, heið-
arlega og skemmtilega kosningabaráttu
og við teljum að það hafi svo sannarlega
tekist. Við erum sannfærð um að þannig
kosningabarátta borgar sig þegar upp er
staðið og höfðar til kjósenda. Samfylking-
in stefndi að því að ná tveimur fulltrúum
í bæjarstjórn, fá aðalmenn í nefndir og
tryggja þannig að raddir jafnaðarmanna
heyrðust skýrt í öllu nefndarstarfi í bæj-
arkerfinu. Það tókst. Niðurstaðan sýnir að
kosningaáherslur okkar og vinnuaðferðir
féllu í góðan jarðveg og fyrir það erum við
þakklát.
Við munum nálgast verkefni okkar í bæj-
arstjórn af auðmýkt, vinna málefnalega og
af fullum heilindum fyrir bæjarbúa og ætíð
hafa almannahagsmuni að leiðarljósi.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar
Anna Sigríður Guðnadóttir
Ólafur Ingi Óskarsson
TAKK!
Haldið köttunum inni
Getið þið vinsamlegast sett í blaðið
ábendingu til Mosfellinga að reyna að
halda köttum sínum inni sem mest á
þessum mikla annasama tíma fugl-
anna að koma ungum sínum á legg,
allavega á nóttunni því það er tíminn
sem fuglarnir reyna að fara með ung-
ana úr hreiðrunum, þegar „kyrrðin“ á
að vera sem mest.
Brynhildur
ORÐIÐ ER LAUST...
Hér gefst lesendum kostur á að
láta skoðanir sínar í ljós í stuttu máli.
Vel slegið í Mosó
Mig langar að hrósa Mosfellsbæ fyrir
fallegan bæ. Sérstaklega finnst mér hér
alltaf vel slegið grasið. Veit ekki hverj-
um það er að þakka, áhaldahúsinu eða
starfsmönnum golfvallarins. En ég er
er mikill áhugamaður um sláttur og
þekki þar vel til. Hér í Mosfellsbæ er
þetta til mikillar fyrimyndar.
Hannes