Mosfellingur - 10.01.2013, Qupperneq 6
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Ráðin nýr skjalastjóri
Mosfellsbæjar
Harpa Björt Eggertsdóttir hefur ver-
ið ráðin skjalastjóri Mosfellsbæjar.
Harpa Björt er með meistarapróf í
opinberri stjórnsýslu með áherslu á
upplýsingastjórn-
un, skjalastjórn
og rafræn sam-
skipti frá Háskóla
Íslands og BA
próf í hagfræði,
heimspeki og
stjórnmálafræði
frá Háskólanum
á Bifröst. Harpa hefur meðal annars
starfað við skjalastjórn og umsýslu
skjala hjá Landsbankanum og unn-
ið sem aðstoðarmaður prófessors
í upplýsinga- og skjalastjórn hjá
Háskóla Íslands. Harpa mun hefja
störf á bæjarskrifstofunni í janúar
og starfa við hlið núverandi skjala-
stjóra, Óskars Þórs Þráinssonar um
nokkurra daga skeið áður en hann
hverfur til nýrra starfa.
laugardagskvöldið 26. janúar 2013
Söngkonan og fiðluleikarinn Greta Salóme
Stefánsdóttir hefur verið valin Mosfellingur
ársins. Árið 2012 hefur verið sannkölluð
rússíbanareið hjá Gretu Salóme frá því að
hún sigraði forkeppni Eurovision hérna
heima í febrúar með laginu Mundu eftir
mér. Greta samdi lagið og textann sjálf og
flutti hún það ásamt Jóni Jósep Snæbjörns-
syni en hún átti tvö lög í undankeppninni.
Greta og Jónsi sungu sigurlagið á stóra svið-
inu í Baku í Aserbaídsjan og komust áfram
á úrslitakvöld söngvakeppni Eurovision.
Greta Salóme gaf út sína fyrstu plötu í
desember sem ber titilinn In The Silence og
hefur hún fengið mjög góð viðbrögð. Fyrir
jólin var hún svo ein aðalstjarnan í Frost-
rósum bæði í Reykjavík og á Akureyri.
Þá kláraði Greta mastersnám í tónlist frá
Listaskóla Íslands í maí síðastliðnum og
stefnir jafnvel á frekara nám með haustinu.
Greta spilar einnig með Sinfóníuhljómsveit
Íslands og æfir Crossfitt af kappi.
Mikill stuðningur frá Mosfellingum
Greta Salóme tók við viðurkenningu frá
Mosfellingi á dögunum og var að vonum
ánægð með nafnbótina. „Þetta er frábær
viðurkenning. Mér þykir afskaplega vænt
um bæinn minn og hef fundið fyrir mikl-
um stuðningi frá Mosfellingum. Allt sem
hefur verið í gangi hjá mér síðustu árin er
að mörgu leyti Mosfellsbæ að þakka og hafa
bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ stutt ótrúlega
vel við bakið á mér.
Greta Salóme valin Mosfellingur ársins 2012 • Glæsilegur fulltrúi Íslands í Eurovision
„Hef fundið fyrir miklum
stuðningi frá Mosfellingum“
Hilmar gunnarsson ritstjóri
mosfellings afHendir gretu
salóme viðurkenninguna
Bæjarblaðið Mosfellingur hefur
staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins
síðastliðin ár. Nafnbótina hafa hlotið:
2005 Sigsteinn Pálsson
2006 Hjalti Úrsus Árnason
2007 Jóhann Ingi Guðbergsson
2008 Albert Rútsson
2009 Embla Ágústsdóttir
2010 Steinþór Hróar Steinþórsson
2011 Hanna Símonardóttir
2012 Greta Salóme Stefánsdóttir
moSfEllInGuR ÁRSInS
Eldri borgarar
Vinningshafar í
jólakrossgátunni
Í jólablaði Mosfellings gafst
lesendum kostur á að spreyta sig á
verðlaunakrossgátu. Dregið hefur
verið úr innsendum lausnum og eru
sigurvegararnir þrír að þessu sinni.
Margrét Haraldsdóttir Skeljatanga 6,
Pétur Ásgeirsson Reykjavegi 55b og
Edda Gísladóttir Hlíðartúni 12.
Vinningshafarnir fá 5.000 kr. gjafa-
bréf í Mosfellsbakaríi og geta þeir
nálgast það á staðnum. Lausnarorð
krossgátunnar var MOSFELLINGUR
og þökkum við þeim fjölmörgu sem
sendu inn rétta lausn og óskum
vinningshöfum til hamingju.
- Jólakrossgáta
28
Verðlaunakrossgáta
Mosfellingur og Mosfellsbakarí bjóða upp á jólakrossgátuna 2012 vegleg verðlaun
jó
la
Vegleg verðlaun í boði Mosf llsbakarísDregið verður úr innsendum lausnarorðum og fá 3 heppnir vinningshafar 5.000 kr. gjafabréf
frá Mosfellsbakaríi. Sendið lausnarorðið sem er í tölusettu reitunum, 1-12, á netfangið
krossgata@mosfellingur.is eða Mosfellingur, Spóahöfða 26, 270 Mosfellsbæ.
Merkt „Jólakrossgáta”. Skilafrestur er til 6. janúar.
Greta og Jónsi voru kvödd með eftir-
minnilegum hætti á Miðbæjartorginu áður
en þau héldu utan. „Krakkarnir voru æðis-
legir og stemningin á torginu frábær.
Þessa dagana er Greta að fylgja nýju
plötunni sinni eftir og stefnir að því að
gefa hana út á erlendri grundu enda margir
sem fylgjast með hverju fótmáli Gretu eftir
þátttökuna í Eurovision.
Hvað stendur upp úr á árinu? „Eiginlega
rosalega margt. Fyrir utan Eurovision ævin-
týrið er það vörnin mín á í mastersnáminu.
Hún gekk mjög vel og má segja að það sé
það móment sem sé ansi ofarlega. Varðandi
Eurovision þá má segja að söngvakeppnin
hér heima hafi staðið upp úr, svona áður en
stóra skuldbindingin kom. Gaman að geta
gert hlutina á sínum eigin forsendum.
Ertu búinn að semja nýtt Eurovisi-
onlag? „Nei, það er ekki á planinu,“ segir
Greta og hlær.
Enn er nokkur röskun á félagsstarfinu
og verður eitthvað lengur vegna
framkvæmda víða í húsinu. Handa-
vinnustofan opnar á nýjum stað eftir
breytingar á Eirhömrum mánudaginn
21. janúar kl. 13 og mun fólk geta kom-
ið og sinnt sinni handavinnu og spilað.
Ljóst er að gler og leirvinna mun áfram
liggja niðri vegna breytinga í kjallara.
Opnun fyrir gler og leir verður auglýst
síðar. Við vonum að sem flestir sýni
þessu ástandi skilning en verklok á
Eirhömrum verða í mars-apríl.
Áætluð byrjun á námskeiðum
á Eirhömrum eru eftirfarandi,
tímasetningar gætu þó frestast
vegna framkvæmda.
Námskeið í bókbandi byrjar
þriðjudaginn 29. janúar kl 13:00.
Kennari: Ragnar Gylfi
Námskeið í silfursmíði byrjar
miðvikudaginn 30. janúar kl 15:30.
Kennari: Ingibjörg
Námskeið í leikfimi byrjar
fimmtudaginn 31. janúar kl 11:15.
Kennari: Karin Mattson
Námskeið í línudansi í lok janúar,
dagsetning tilkynnt síðar.
Námskeið í tréútskurði byrjar
fimmtudaginn 31. janúar kl 12:30.
Kennari: Stefán
Skráning á ofantalin námskeið er hjá
forstöðumanni félagsstarfsins, Elvu, í
síma 698-0090 eða í síma 586-8014
Námskeið í vatnsleikfimi fyrir félaga
FaMos verður í Lágafellslaug þriðju-
daga kl. 09.30 - 10.10 og föstudaga kl.
09.00 - 09.40. Þátttökugjald kr. 2200
fyrir eitt skipti í viku og kr. 4400 fyrir
tvö skipti í viku. Vinsamlegast mætið
snemma í fyrsta tíma svo ráðrúm
gefist til að ganga frá greiðslu. Kennari:
Hafdís Elín Helgadóttir íþróttakennari
Boccia fyrir félagsmenn FaMos hefst í
íþróttahúsinu að Varmá miðvikudag-
inn 9. janúar 2013 kl. 10:15-12:00 og
verður einu sinni í viku til aprílloka.
Verð er 2.500 kr. og greiðist í fyrsta
tíma.
Námskeið í Íslendingasögum, Bárðar-
saga Snæfellsáss, hefst 15. janúar og
verður á þriðjudögum til 5. febrúar kl.
17:00-19:00 í Brúarlandi. Leiðbeinandi
er Bjarki Bjarnason. Þegar sumrar
verður farið í ferð um söguslóðir
undir leiðsögn Bjarka. Upplýsingar og
skráning er hjá Grétari Snæ,
gretar@heima.is og í símum
566 6536 eða 897 6536
Opið hús eða menningarkvöld
verður þriðja mánudag í hverjum
mánuði í Hlégarði.
Fyrsta menningarkvöld ársins
2013 verður mánudaginn
21. janúar kl. 20:00.
Þá munu feðginin Ólafur B. Ólafsson
og Ingibjörg Á. Ólafsdóttir gleðja
okkur með söng. Ungt par verður
með danssýningu. Lokapunkturinn
verður margrómað kaffihlaðborð
kaffinefndarinnar.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ óskar öllum Mosfellingum gleðilegs nýs árs
og þakkar samstarfið á liðnu ári og hlakkar til tímanna sem framundan eru.