Mosfellingur - 10.01.2013, Page 10
- í 10 ár10
Starfsfólk Apótekarans í Kjarnanum gerir
ýmislegt til að gera vinnuna skemmtilegri.
Eins og margir Mosfellingar hafa tekið eftir
fá allir viðskiptavinir Apótekarans gullkorn
í kaupbæti á föstudögum. „Upphafið að
þessu var að við fórum tvær á Dale Carn-
egie námskeið og í framhaldinu langaði
okkur að leggja okkar af mörkum við að
gera vinnuna skemmtilegri. Við útbjugg-
um gullkorn eða spakmæli til að afhenda
viðskiptavinum. Í upphafi ætluðum við að
gera þetta einu sinni í mánuði en fundum
fljótlega að fólki líkaði þetta vel og úr varð
að nú eru allir föstudagar gullkornadagar,“
segir María Gunnlaugsdóttir ein af starfs-
mönnum Apótekarans.
Ekki hægt að hætta
„Það er eiginlega ekki hægt að hætta,
þetta hefur fallið niður einu sinni síðan við
byrjuðum á þessu og fólk var alveg miður
sín. Auðvitað er einn og einn sem hnussar
og skilur miðann eftir á borðin en hinir
eru miklu fleiri. Það er svo gaman að hafa
ekki alla daga eins. Til dæmis er hefð hjá
okkur og hefur verið lengi að við konurnar
sem hér vinnum mætum í kjól eða pilsi
og karlmennirnir í skyrtu og með bindi á
föstudögum,“ segir María að lokum.
Það eru ekki allir dagar eins hjá starfsfólki apóteksins
Dreifa gullkornum
á föstudögum
María, Hulda, InIgbjörg,
renata, ÁlfHIldur og andrI.
Litlu mátti muna að illa færi þegar skotterta fór á hliðina á gamlárskvöld. „Unnur Elísa
var sem betur fer með öryggisgleraugu sem björguðu líklega sjóninni hjá henni,“ segir
Ásta Kristín móðir Unnar Elísu. „Skot úr tertunni fór í gleraugun og braut þau, við
fundum brotin í 4-5 metra fjarlægð frá staðnum þar sem hún stóð. Í þessu tilfelli var
Unnur Elísa áhorfandi sem sýnir hvað það er mikilvægt að allir séu með öryggisgler-
augu, ekki bara þeir sem eru að kveikja í flugeldum eða tertum,“ segir Ásta sem starfar
sjálf í björgunarsveitinni Kyndli. Hún vill taka það fram að það sé mjög mikilvægt að
skottertum sé stillt upp á algjörlega sléttum fleti.
Sigurður Thorlacius lýkur burtfararprófi
frá tónlistardeild Listaskóla Mosfellsbæjar
með tónleikum í Fella- og Hólakirkju laug-
ardaginn 12. janúar kl. 17. Ólafur Elíasson
er kennari Sigurðar og hefur verið það síð-
an 2007. Margir nemenda Ólafs hafa lokið
burtfararprófi og spilað við ýmis tækifæri
á námsferli sínum, meðal annars í Mos-
fellsbæ. Sigurður spilaði á friðartónleikum
í Kjarna 2009, við setningu Framhaldsskóla
Mosfellsbæjar í Brúarlandi 2009, á tónleik-
um í Varmárskóla 2010 og á Gljúfrasteini
2011.
Í vor stefnir Sigurður að því að ljúka BS
gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði
frá Háskóla Íslands. Hann var í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð og í Varmárskóla.
Unnusta hans er Guðrún Birna Jakobsdóttir,
læknanemi. Fyrri píanókennarar Sigurðar
voru Jón Sigurðsson, Berglind Björk Jóns-
dóttir og Vignir Þór Stefánsson. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 17 og eru allir velkomnir.
Ánægður
vIðskIptavInur
gullkornIn vekja lukku
Unnur Elísa með gleraugun sem björguðu líklega sjóninni þegar skotterta fór á hliðina á gamlárskvöld.
Öryggisgleraugu bjarga
Lýkur burtfararprófi
sIgurður tHorlacIus Heldur
tónleIka Á laugardagInn