Mosfellingur - 10.01.2013, Page 16
GRÍPTU MEÐ ÞÉR GÓMSÆTA
ELDBAKAÐA
PIZZU
ELDHEIT MEÐ
TVEIMUR
Stærri pizza með tveimur
áleggstegundum.
1.590 kr.
TVENNU
TILBOÐ
Þú kaupir eina pizzu af matseðli og brauðstangir og færð aðra pizzu sömu
stærðar að auki.
SÓTT SÓTT
BÆJARLIND • HRAUNBÆ • GRENSÁSVEGI • MOSFELLSBÆ
Þórir heldur sýningu
í Álafosskvosinni
Mosfellingurinn og frjálsíþrótta-
garpurinn Þórir Gunnarsson, öðru
nafni Listapúkinn, heldur sína aðra
einkasýningu á málverkum sínum
í gallerýi Kaffihússins Álafoss í
Álafosskvosinni. Allir eru velkomn-
ir á opnunina nk. laugardag12.
janúar kl. 15-17 . Þórir hefur verið
í mikilli þróun sem listamaður
og bera efnistök og litaval þess
vel merki. Fyrir stuttu seldi Þórir
jólasveinamyndir sínar á jólamark-
aði Skógræktarfélags Reykjavíkur
við Elliðavatn. Sýningin verður
opin á opnunartíma kaffihússins
og mun Þórir hafa viðverðu um
helgar og virka daga þegar hann
kemur því við. Meðan fólk virðir sér
myndirnar getur það svo gætt sér á
kræsingum kaffihússins.
Þórir er Mosfellingur í húð og hár,
starfar hjá Múlalundi á Reykjalundi
og æfir frjálsíþróttir hjá Aftureld-
ingu. Þórir er einstök fyrirmynd
annarra og sannur afreksmaður í
því sem hann tekur sér fyrir hendur
- jákvæður, bjartsýnn, viljasterkur
og vinnusamur.
- Bæjarblað í Mosfellsbæ í 10 ár16
Aðalfundur Gufubaðsfélags Mosfellsbæjar
(Mosfellsbaer Steam Society) fór að vanda
fram á gamlársdag í gufubaðsaðstöðunni
í Varmárlaug undir styrkri stjórn andlegs
leiðtoga og djákna, Sigurjóns Ásbjörns-
sonar, líkt og síðustu ár. Eins og venja er
var mæting góð enda fátt betra en að fara
andlega og líkamlega hreinn inn í nýtt ár.
Árið var líflegt og óvenjulegt á margan
hátt. Fundir voru að vanda vel sóttir. Heilsa
félagsmanna er með besta móti enda fátt
sem bætir betur andlega og líkamlega
heilsu en gott gufubað með heilbrigðum
hópi manna.
Starfsemi félagsins vekur athygli
Forseti og veraldlegur leiðtogi Gufubaðs-
klúbbsins, Valur Oddsson, reifaði í ítarlegri
skýrslu stjórnar það helsta í starfsemi ársins
en stjórnarmenn, þá ekki síst forseti, hafa
haft í mörg horn að líta þar sem starfsemi
félagsins hefur vakið gríðarlega athygli um
víða veröld.
„Okkar gufulýðræði hefur vakið verð-
skuldaða athygli og hafa stjórnarmenn ver-
ið önnum kafnir í viðtölum við fjölmiðla,
íslensk stjórnvöld og fulltrúa Evrópusam-
bandsins í Brussel. Það sem mesta athygli
hefur vakið er óvenju öguð og góð fundar-
stjórn þar sem ekki heyrist hósti né stuna
frá fundarmönnum, en af og til má heyra
klapp og húrrahróp,“ svo vitnað sé orðrétt í
ræðu forseta um starfsemi ársins.
Skálkaskelfir í stjórn
Vegna gífurlegs álags á stjórnarmenn
ákvað forseti að bæta Haraldi Sigurðssyni,
hinum landsfræga skálkaskelfi inn í stjórn
Gufuklúbbsins. Haraldi er fyrst og fremst
ætlað að hafa agamál innan félagsins á
sinni könnu.
Þá greindi forseti frá að ekkert hefði orð-
ið af útskriftarveislu félaga Guðbjörns Sig-
valdasonar af skötuátsnámskeiðinu á Þor-
láksmessi. Hann var kolfelldur eftir að hafa
beðið um tómatsósu með skötunni. Fylltust
félagsmenn hryggð yfir þessum miklu og
vondu tíðindum af félaga Guðbirni, sem
því miður gat ekki verið viðstaddur aðal-
fund að þessu sinni.
Forsetinn situr sem fastast
Fjórir félagar áttu stórafmæli á árinu og
fengu tveir þeirra hefðbundnar stórhátíðar-
gjafir frá félaginu. Aðrir tveir, Valur forseti
og Guðjón Kristinsson, sem gegnir emb-
ættum fjárhirðis og aðalritara, auk þess að
vera handhafi forsetavalds, báðust undan
gjöfum en áskildu sér í staðinn „allan rétt á
að ganga ótæpilega í sjóði félagsins.”
Vitanlega varð ekkert af stjórnarkjöri
þetta árið fremur en síðustu áratugi.
Ástæðan er einföld svo vitnað sé orðrétt
í ávarp Vals forseta. „Forseti vill viðhalda
lýðræði fyrri ára, virða mótframboð að
vettugi og sitja áfram sem fastast.“ Hrópuðu
þá fundarmenn allir sem einn ferfalt húrra
fyrir forsetanum og óskuðu honum langra
og heilsugóðra lífdaga.
Bókhaldsóreiða til fyrirmyndar
Að lokinni ræðu forseta lagði Guðjón
fjárhirðir fram reikninga sem voru ítarlegir
að vanda. Reikningunum var fylgt úr hlaði
með eftirfarandi ferskeytlu:
Mikill er nú orðinn gróðinn
yndi er mér þann feng að sýna.
Og enn er ég að safna í sjóðinn
sem passar vel í vasa mína.
Rekningarnir voru að vanda endurskoð-
aðir af virtum endurskoðendum sem ekki
mega vamm sitt vita en nöfn þeirra verða
ekki opinberuð.
„Við undirritaðir höfum skoðað reikninga
Gufufélags Mosfellsbæjar og vottum að
bókhaldsóreiða félagsins er til fyrirmyndar
í alla staði,” sagði m.a. í áliti löggiltra end-
urskoðenda sem skrifuðu hiklaust upp á
reikninga félagsins fyrir starfsárið 2012.
Fjöldasöngur í lok fundar
Engar umræður voru undir liðnum
önnur mál. Söngmálastjóri Gufuklúbbsins,
Guðmundur Guðlaugsson, stýrði fjölda-
söng í lok aðalfundar. Sungu félagsmenn að
vanda við raust „Nú árið er liðið” og „Stóð
ég úti í tunglsljósi”.
Valur forseti hreifst svo á þeirri hátíðlegu
stund að hann komst við. Hann lét þess get-
ið að stundin hafi verið svo „menningarleg
að hún jaðraði við að vera væmin.”
Þóttu það góð lokaorð og héldu þá fé-
lagsmenn heim til þess að fagna áramótum
í faðmi fjölskyldna og vina.
Aðalfundur Gufubaðsfélagsins fór fram á gamlársdag • Öguð og góð fundarstjórn
Heilsuhraustir félagsmenn
Ekki eru leyfðar myndatökur á fundum félagsins.