Mosfellingur - 10.01.2013, Qupperneq 18
Útnefning á íþróttakarli og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2012
Kynning á íþróttafólKinu sem tilnefnt er Kosning fer fram á www.mos.is Úrslit verða tilKynnt 24. janÚar
Kosning fer fram á vef mosfellbæjar www.mos.is dagana 7. - 18.
janúar. velja skal einn karl og eina konu. Úrslit verða kynnt
fimmtudaginn 24. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.
Íþróttakona Golfklúbbsins
Kjalar ársins 2012.
Heiða hefur æft golf frá unga aldri en
hún kom í golfklúbbinn Kjöl árið 2009.
Heiða er dugleg við æfingar, sam-
viskusöm og metnaðargjarn kylfingur.
Sumarið 2012 varð Heiða klúbbmeistari
Kjalar í kvennaflokki. Heiða setti einnig
vallarmet á bláum teigum á Hlíðarvelli
þegar hún spilaði á 74 höggum á fjórða
móti mótaraðar GKJ. Heiða lék á Eim-
skipsmótaröðinni með ágætum árangri.
Heiða hafnaði í 9. sæti stigalistans og
stefnir hærra á næsta tímabili. Heiða
var lykilmaður í sveit GKj í sveitakeppni
GSÍ í kvennaflokki en sveitin hafnaði í 5.
sæti í efstu deild. Heiða er einstaklega
góð fyrirmynd fyrir yngri kylfinga
klúbbsins og hefur hún unnið gott og
óeigingjarnt starf með stúlkunum og
á stóran þátt í því að þeim er farið að
fjölga í starfinu.
Heiða Guðnadóttir kylfingur
Íþróttakarl ársins 2012
hjá golfklúbbnum Kili.
Theodór Emil hefur æft golf hjá
golfklúbbnum Kili frá unga aldri og
hefur náð miklum og góðum framförum
og árangri. Þetta árið sýndi Theodór
einstaklega mikinn dugnað og elju við
æfingar sem skiluðu sér í hans besta
sumri í golfinu.
Theodór varð klúbbmeistari Kjalar
með yfirburðum þetta árið en hann
lék hringina fjóra á 286 höggum eða
tveimur höggum undir pari. Theodór
varð einnig stigameistari á mótaröð
GKj. Theodór keppti á Eimskipsmótaröð
GSÍ í sumar þar sem hann hafnaði í
29. sæti á stigalistanum þrátt fyrir að
spila aðeins 4 mót af 6. Theodór var
lykilmaður í sveit GKj í sveitakeppni GSÍ
en sveitin hafnaði í 6. sæti í efstu deild.
Theodór er frábær fyrirmynd og sinnir
yngri kylfingum klúbbsins afar vel og
bera þeir miklu virðingu fyrir honum.
Theodór er í háskólanámi í Bandaríkjunum þar sem hann spilar golf með náminu
og mun það án efa hjálpa honum til að ná enn betri árangri næsta sumar.
Theodór Emil Karlsson kylfingur
Íþróttakona Íþróttafélags
aspar árið 2012.
Karen Axelsdóttir er fædd 5. júlí 1992,
hennar fötlun er CP sem er algengasta
tegund hreyfihömlunar og keppir hún í
sundi í flokki S2. Flokkar í sundi hreyfi-
hamlaðra eru frá S1- S10. Karen æfir
sund hjá íþróttafélaginu Ösp tvisvar í
viku í Lágafellslaug og einu sinni í viku
í sundlauginni í Laugardal. Þjálfarar
hennar eru Friðrik G. Sigurðsson og
Ingigerður M. Stefánsdóttir. Líkt og
flest besta afreksfólk úr röðum fatlaðra
hóf Karen þátttöku sína í alþjóðlegum
mótum með keppni á norrænu barna-
og unglingamóti sem fram fór í Svíþjóð
árið 2009. Karen hefur undanfarin ár
verið í stöðugri framför og í dag stefnir
hún á að ná lágmörkum til æfinga með
landsliðshóp Íþróttasambands fatlaðra.
Karen er mjög metnaðarfull og er tilbú-
in að leggja mikið á sig til að ná árangri
í sinni íþrótt. Hún er góður félagi og
öðru ungu sundfólki góð fyrirmynd. Fyrsta íslandsmet Karenar var sett 16. maí
2010 í 50m baksundi í 25m laug. Einnig á hún íslandsmet í 50m baksundi sett 2011
í 50m laug. Íslandsmet í 50m baksundi var sett á Íslandsmóti ÍF í 25m laug í
Ásvallalaug. Þetta er frábær árangur hjá þessari 20 ára gömlu sundkonu. Karen fer
ásamt 15 öðrum sundmönnum úr Ösp á sundmótið Malmö Open í byrjun febrúar. Í
þeim hópi er líka gullverðlaunahafinn frá London 2012, Jón Margeir Sverrisson.
Karen Axelsdóttir sundkona
Íþróttakarl Hestamanna-
félagsins Harðar 2012.
Reynir Örn er framúrskarandi afreks-
maður í hestaíþróttinni. Hann hefur
verið valinn hestaíþróttamaður Harðar
fimm sinnum. Hann hefur sinnt félags-
störfum og starfað sem reiðkennari hjá
Herði um árabil, ásamt því að reka stórt
hestabú. Hann er alinn upp í Herði og
hefur aðeins keppt sem Harðarmaður.
Hann er mjög góð fyrirmynd fyrir kyn-
slóðina sem við erum að ala upp í Herði.
Árið 2012 var einstaklega farsælt hjá
Reyni Erni, hann keppti á öllum mótum
sem Hörður hélt, ásamt því að keppa
á öllum stórmótum sem haldin voru
á Íslandi og nánast alltaf í úrslitum.
Hann var jafnframt valinn í landslið
Íslands sem keppti á gríðarlega sterku
Norðurlandamóti í Svíþjóð. Árangur
árið 2012: Íþróttamót Mána: 5gangur
- 1.sæti. Reykjavíkurmeistaramót: Tölt2
– 3.sæti .Íþróttamót Harðar: Tölti2
– 1.sæti – 5gangur – 3. Sæti. Samanlagður fimmgangssigurvegari. Gæðingamót
Harðar: Tölt1 – 1. sæti Unghrossakeppni - 1. sæti. Íslandsmót: 5gangi – 7. sæti
- B úrslit Tölt2. Landsmót 2012: A flokkur – 10. Sæti. Suðurlandsmót: Tölti 2 – 3.
sæti.Gæðingaveisla Sörla: A flokkur – 3 Norðurlandamót Svíþjóð: Tölti2 – 2. sæti.
Opið Íþróttamót Svíþjóð:Tölt1 - 1. sæti - Fjórgangur - 2. Sæti. Töltfimi Skeiðvöllum:
- Tölt – 1. sæti.
reynir Örn Pálmason hestaíþróttamaður
Í ár gefst bæjarbúum í fyrsta skipti kostur á, ásamt aðal- og
varamönnum í Íþrótta- og tómstundanefnd, að kjósa íþróttakarl
og íþróttakonu Mosfellsbæjar 2012.