Mosfellingur - 10.01.2013, Síða 28
- Aðsendar greinar28
Afturelding hefur í 100 ár staðið að
íþróttaiðkun meðal Mosfellinga og
því stuðlað að betri heilsu í sveit-
arfélaginu. Skipulögð íþróttastarf-
semi hefur forvarnargildi og er leið
til þess að leiða börnin okkar í átt að
heilsusamlegu líferni. Til eru ýmar
kannanir sem styðja við þessa full-
yrðingu og nokkrar má sjá á heima-
síðu Menntamálaráðuneytisins á slóðinni:
www.menntamalaraduneyti.is/ithrottao-
geskulydsmal/aeskulydsrannsoknir
Nú á tímum efnahagsþrenginga hafa
ráðstöfunartekjur heimila snarminnkað,
en það eru heimilin sem standa að mestu
leyti undir daglegum rekstri íþróttafélaga
eins og Aftureldingar í formi æfingagjalda
iðkanda. Afleiðing þessa er brottfall ið-
kenda sem er áhyggjuefni.
Íþróttafélög eru sjálfstæð félög sem rekin
eru af sjálfboðaliðum og tekjur þeirra eru
félagsgjöld, æfingagjöld, frjáls framlög og
styrkir. Mosfellsbær styrkir Aftureldingu,
en styrkur sveitarfélagsins er að stærstum
hluta í formi íþróttaaðstöðu og húsnæðis.
Síðan 1974 hefur verið starfrækt knatt-
spyrnudeild innan Aftureldingar sem í dag
er stærsta deild félagsins með nálægt þriðj-
ung iðkenda félagsins. Knattspyrnudeild
er rekin í þremur sjálfstæðum rekstrarein-
ingum, 1) barna og unglingastarf (BUR), 2)
meistaraflokkur kvenna, 3) meistaraflokk-
ur karla og er hver eining fjárhagslega sjálf-
stæð.
Við skoðun á rekstri BUR eru æfingagjöld
iðkenda einungis 60% af heildarrekstrar-
kostnaði og styrkur Mosfellsbæjar 10%.
Það þýðir að sjálfboðaliðar þurfa að finna
fjáröflunarleiðir til þess að dekka 30% af
rekstrarkostnaði á hverju ári. Þetta eru 9
milljónir á ári, sem þarf að safna til þess að
endar nái saman. Það er ekki sjálfgefið að
það sé rekin knattspyrnudeild hjá Aftureld-
ingu ef reksturinn stendur ekki undir sér.
Bent hefur verið á að ein leið sé sú að
hækka æfingagjöld iðkenda um 50% en
ég er hræddur um að það myndi fækka
iðkendum verulega. Samkvæmt könnun-
um eru innan við 50% krakka á eldri stig-
um grunnskóla sem taka þátt í skipulagðri
íþróttaiðkun á höfuðborgarsvæðinu. Það
hlutfall er skammarlega lágt og því ættum
við að taka höndum saman og reyna að
fjölga iðkendum í stað þess að sitja aðgerð-
arlaus hjá og treysta því að aðrir
sjái um þessa þjónustu.
Lykilfjáraflanir BUR eru annars
vegar Atlantismót, sem er krakka-
mót á Tungubökkum á hverju
sumri, í fyrra voru um 1.000
krakkar sem tóku þátt og hinsveg-
ar þorrablót Aftureldingar. Það er
mikilvægt að bæjarbúar mæti á þorrablótið
og styðji við barna- og unglingastarf í leið-
inni ásamt því að taka þátt í frábærri bæj-
arskemmtun.
Fjölmargar minni fjáraflanir eru einnig
framkvæmdar árlega. Ein þeirra er hópa-
leikur í getraunum þar sem allur hagnaður
rennur til BUR. Leikurinn hefur verið starf-
ræktur í fjölmörg ár, nú síðustu misseri á
veitingastaðnum Hvíta riddaranum.
Vorleikur 2013 hefst laugardaginn 12.
janúar og er opið frá kl 11:45 – 13 alla laug-
ardaga. Leikurinn fer þannig fram að tveir
mynda hvert lið. Þátttökugjald er kr. 2.000
á mann. Leikurinn gengur út á það að liðin
tippa tvær raðir vikulega í 10 vikur og gildir
sú röð sem gefur betri árangur hverju sinni.
Við notum sömu getraunaseðla og Íslensk-
ar getraunir og er mönnum frjálst að senda
sínar raðir inn til Íslenskra getrauna og geta
því unnið verulega fjármuni.
Þetta er ekki bara leið til fjáröflunnar
heldur hittast menn og horfa jafnvel sam-
an á hádegisleiki, kynnast og frétta hvað er
að gerast á hverjum tíma yfir kaffibolla og
morgunverðarhlaðborði.
Einnig eru haldnir flóamarkaðir og marg-
slags kökusölur og fjölmargir viðburðir sem
of langt er upp að telja hér, en allir eiga það
sameiginlegt að skila tekjum í það bil sem
upp á vantar í reksturinn að frátöldum æf-
ingagjöldum og styrk frá Mosfellsbæ. Að
lokum erum við sem stöndum að þessu
sjálfboðaliðastarfi ávallt opnir fyrir hug-
myndum til fjáröflunnar.
Uppbygging knattspyrnustarfsins Aftur-
eldingar undanfarin ár hefur vakið athygli
annara félaga innan KSÍ og það er von mín
að sem flestir sjái sér fært að taka þátt í
þessari mikilvægu uppbyggingu barna og
unglingastarfs knattspyrnudeildar Aftur-
eldingar.
Áfram Afturelding
Snorri Gissurarson stjórnarmaður í BUR
Knattspyrnan í Mosfellsbæ
Mosfellsbær hefur átt í samstarfi við
hjúkrunarheimilið Eir um nokkurra
ára skeið. Þannig var m.a. stofnað
til samstarfs um byggingu þjón-
ustuíbúða í Mosfellsbæ, Eirhamra,
með sérstökum samstarfssamningi
þar um.
Íbúar keyptu sér búseturétt í
þeirri góðu trú að þarna væri vel
staðið að uppbyggingu og treystu því að
með aðkomu Mosfellsbæjar væri þetta ör-
ugg og traust fjárfesting þar sem áhyggju-
laust ævikvöld væri tryggt.
Síðla hausts 2012 birti dagblaðið DV ít-
rekað fréttir af fjárhagsvanda Eirar og að
þar væri ekki allt með felldu. Drógu þeir
fráfarandi forstjóra Sigurð Guðmundsson
og stjórnarformann Eirar Vilhjálm Þ. Vil-
hjálmsson inn í miður góða umræðu. Fleiri
fjölmiðlar bættust í hópinn og var málið
fyrirferðarmikið um skeið.
Fulltrúi Mosfellsbæjar í stjórn steig þá
fram og sagði sig frá stjórnarstörfum en
Mosfellsbær hefur átt fulltrúa í stjórn Eirar
í þónokkur ár.
Ekkert hefur heyrst frá bæjarstjórn Mos-
fellsbæjar og í raun hefur þögnin verið
ærandi. Íbúar sem í góðri trú keyptu sér
búseturétt hljóta að vera órólegir og staða
mála yfirskyggt jólamánuðinn. Ég
er sannfærður um að fjölmarg-
ir íbúar bæjarfélagsins hljóti að
vera áhyggjufullir um hag íbúa
þjónustuíbúðanna.
Með vísan í aðkomu Mosfells-
bæjar að sérstökum samstarfs-
samningi við Eir vil ég hvetja
bæjarstjórn til að birta staðfestingu um
að hagur íbúa Eirhamra verði tryggður og
að þeir þurfi ekki að óttast um sína stöðu.
Jafnframt vil ég óska eftir því að bæjarstjórn
upplýsi um aðkomu bæjarins að málinu.
Hafði fulltrúi Mosfellsbæjar í stjórn Eirar
ekki gert neina athugasemdir við reikn-
ingana? Hvernig komu stjórnarmenn upp-
lýsingum á framfæri við bæjarstjórn um
stöðu mála þegar ljóst var í hvað stefndi og
til hvaða ráðstafana greip bæjarstjórn? Um
þetta hlýtur að hafa verið bókað í bæjar-
stjórn. Ég lít á það sem skyldu bæjarstjórn-
ar að upplýsa bæjarbúa og þá sérstaklega
íbúa þjónustuíbúðanna um stöðu mála og
þróun þeirra frá einum tíma til annars og
skora ég á bæjarstjóra að gera grein fyrir
málinu hér í blaðinu!
Marteinn Magnússon
Fv. bæjarfulltrúi
Ærandi þögn um þjónustu
íbúðir Eirar í MosfellsbæKæru Mosfellingar!Um áramót er hollt og gott að
líta yfir farinn veg og rifja og meta
hvernig liðið ár hefur skilað okkur
fram á veginn.
Fyrir okkur Mosfellinga hefur
árið 2012 á margan hátt verið gott.
Er það þrátt fyrir að hinn langþráði
almenni efnahagsbati hafi kannski
látið meira á sér standa en góðu hófi gegn-
ir. Í kjölfar efnahagshrunsins afdrifaríka
haustið 2008 var af hálfu Mosfellsbæjar
sett upp áætlun um á hvern hátt bæjarfé-
lagið brygðist við gjörbreyttum aðstæðum
og aðlagaði sig að nýju efnahagsumhverfi.
Árangur þessara áætlana erum við að sjá
nú með því að rekstur hefur náð jafnvægi
og framþróun bæjarfélagsins hafin á ný
með framkvæmdum og stefnumótun í takt
við nýja tíma.
Miklar framkvæmdir í gangi
Á árinu 2012 var tekin fyrsta skóflu-
stunga að nýju húsi framhaldsskólans í
miðbæ Mosfellsbæjar. Þetta er langþráð
verkefni sem lengi hefur verið barist fyrir.
Framkvæmdir eru komnar vel á veg og er
gert ráð fyrir að nýtt húsnæði verði tilbúið
í kringum næstu áramót. Ríkið mun sjá um
rekstur skólans en Mosfellsbær greiðir 40%
af stofnkostnaði.
Framkvæmdir við nýtt 30 rýma
hjúkrunarheimili ganga vel og er utanhúss-
frágangi lokið og stendur innréttingavinna
yfir. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði til-
búið nú á vormánuðum. Framkvæmdin er
á vegum Mosfellsbæjar sem mun svo leigja
ríkinu húsið til 40 ára. Á Hlaðhömrum
stendur einnig yfir önnur mikilvæg fram-
kvæmd í þágu aldraðra en það er innrétting
á nýju rými fyrir þjónustumiðstöð. Þeirri
framkvæmd lýkur einnig í vor og verður
mikil lyftistöng fyrir félagsstarf eldri borg-
ara hér í bæ.
Bætt íþróttaaðstaða
Mosfellsbær er þekktur sem mikill
íþrótta- og útivistarbær og þarf aðstaðan að
taka mið af því. Mosfellingar hafa löngum
verið ánægðir með íþróttaaðstöðuna í bæn-
um og í síðustu þjónustukönnun Gallup
voru um 90% bæjarbúa ánægðir með þá
aðstöðu. En lengi má gott bæta og með
stækkandi bæjarfélagi þarf að bæta við. Á
síðasta ári var tekin í notkun ný skrifstofu-
og félagsaðstaða fyrir Aftureldingu á 2. hæð
í íþróttamiðstöðinni að Varmá sem mun án
efa bæta aðstöðu þessa mikilvæga félags.
Að ósk Aftureldingar var einnig ákveðið
að ráðast í byggingu nýs íþróttasalar við
íþróttamiðstöðina að Varmá. Sá salur er
ætlaður fyrir fimleika og bardagaíþróttir
og verður um 1.200 fm að stærð ásamt 300
fm millilofti. Jarðvegsframkvæmdir fóru
fram á árinu 2012 en bygging sjálfs hússins
mun hefjast nú í febrúar og ljúka
næsta haust. Tilkoma þessa húss
verður mikil lyftistöng fyrir fim-
leika- og bardagaíþróttir í bæn-
um en einnig aðrar íþróttagreinar
því það mun skapast meira rými
í þeim þremur íþróttasölum sem
fyrir eru að Varmá.
Skólamál í öndvegi
Þó að Mosfellsbær eigi sér langa og
merka sögu þá er bæjarfélagið „ungt” í
þeim skilningi að hér býr mikið af börnum
og því meðalaldur bæjarbúa lágur. Fjöl-
skyldufólk sækir í að búa í Mosfellsbæ.
Fræðslumálin eru því okkar mikilvægasti
málaflokkur og í hann fer rúmlega helm-
ingur af skatttekjum bæjarins. Þrátt fyr-
ir minnkandi tekjur hefur tekist að verja
þennan málaflokk að mestu fyrir hörðum
niðurskurði og starfsfólk bæjarins hefur
unnið aðdáunarvert starf í að sinna þessum
málaflokki við erfiðar aðstæður. Síðastliðið
sumar voru kynntar breytingar á sérfræði-
þjónustu hjá Mosfellsbæ sem munu fela í
sér umbætur á þjónustu við börn með sér-
þarfir. Vinnuhópur lagði m.a. til að stofn-
aðar yrðu sérdeildir við Lágafellsskóla og
Varmárskóla til að sinna þessum málum.
Á undanförnum tveimur árum hafa verið
tekin í notkun tvö ný skólamannvirki, þ.e.
Krikaskóli og Leirvogstunguskóli og hefur
það breytt miklu í þessu barnmarga sam-
félagi. Þrátt fyrir þetta er það ein stærsta
áskorunin sem bærinn stendur frami fyrir á
næstu árum að bæta aðstöðu skólanna enn
frekar. Stóru skólarnir okkar, Varmárskóli
og Lágafellsskóli eru nú með stærstu skól-
um landsins og hefur einkum Lágafells-
skóli stækkað hratt á undanförnum árum.
Er nú svo komið húsnæðisþörf skólans er
orðin brýn og er nú unnið að áætlun um
uppbyggingu nýrra skólamannvirkja á vest-
ursvæði.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru
hvað varðar það sem gerst hefur í Mos-
fellsbæ á s.l. ári, og of langt mál væri að
telja það allt upp. Bæjarbúar geta líka ver-
ið stoltir af sínum eigin afrekum, Mosfell-
ingurinn Greta Salóme var fulltrúi Íslands
í Eurovision og stóð sig þar frábærlega og
Mosfellingar státa nú af Íslandsmeistur-
um kvenna í blaki, svo eitthvað sé nefnt.
Framtíðin er björt í Mosfellsbæ með gild-
in okkar góðu VIRÐINGU – FRAMSÆKNI
– JÁKVÆÐNI og UMHYGGJU að leiðarljósi.
Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur öllum
fyrir gott samstarf, samskipti og vináttu á
nýliðnu ári og megi árið 2013 verða okkur
gæfuríkt og gleðilegt.
Haraldur Sverrisson
bæjarstjóri
Um áramót
VANTAR EIGNIR Á SKRÁ!
Erum með áhugasama kaupendur
að eftirfarandi eignum:
Einbýlishús á einni hæð, 170-200 m2 í Holtum eða
Töngum – verðhugmynd 40-45 milljónir
Einbýlishús, 200-260 m2 í Höfðum eða Hlíðum
– verðhugmynd 45-55 milljónir.
100-140 m2 raðhús m/bílskúr í Höfðum eða Hlíðum
2ja herbergja íbúð í Klapparhlíð.
3-4ra herbergja íbúð á jarðhæð á Lágafellsskólasvæðinu.
www.fastmos.is
586 8080
Sími:
Þverholti 2 • Mosfellsbæ
Fasteignasala
Mosfellsbæjar
Sími: 586 8080
www.fastmos.ishafðu samband E.BAC
K
M
A
N
Einar Páll Kjærnested • Löggiltur fasteignasali
Viltuselja...
E
.B
A
C
K
M
A
N