Mosfellingur - 04.04.2013, Page 6
- Fréttir úr bæjarlífinu6
Útibú Íslandsbanka í
Kjarna lokar í haust
Útibú Íslandsbanka við Gullinbrú,
í Hraunbæ og Mosfellsbæ munu
sameinast í eitt útibú að Höfða-
bakka 9 í september. Markmið
sameiningarinnar er að bjóða
upp á öflugt útibú í austurhluta
höfuðborgarinnar. Sameiningin
er einnig liður í að auka hagræði
í rekstri útibúanets Íslandsbanka
en Íslandsbanki mun reka 19 útibú
eftir sameininguna. Viðskiptavinir
munu halda reikningsnúmerum
sínum við sameininguna.
Útibússtjóri hins nýja sameinaða
útibús verður Ólafur Ólafsson,
útibússtjóri við Gullinbrú. Aðstoð-
arútibússtjóri verður Karen Rúnars-
dóttir, útibússtjóri í Mosfellsbæ.
Framkvæmdir við nýtt útibú
hefjast í maí og er ráðgert að opna
nýtt útibú í september. Starfsemi
útibúanna við Gullinbrú, í Hraunbæ
og Mosfellsbæ verður með óbreyttu
sniði þangað til.
Baráttugleði
Samfylkingarinnar í
Gamla Bíó laugardaginn
6. apríl kl. 15. Allir
velkomnir!
Harðarfélagar bjóða
heim á föstudag
Hestadagar í Reykjavík er sam-
vinnuverkefni LH, Höfuðborgar-
stofu og hestamannafélaganna á
stórhöfuðborgarsvæðinu og verða
haldnir dagana 4.–7. apríl. Af því
tilefni ætla Harðarfélagar að bjóða
heim á morgun, föstudag. Þá verður
Reiðhöll Harðar opin kl. 17-19. Auk
þess verða hesthús Harðarfélaga
opin almenningi en þau verða
merkt sérstaklega með blöðrum.
Mosfellingar eru hvattir til að
kynna sér starfsemi sem fram fer í
Hestamannafélaginu Herði, fá sér
kjötsúpu, leyfa börnunum að fara á
hestbak og horfa á frábæra sýningu
hjá Harðarkrökkum.
Mosfellingar og nærsveitamenn.
Almennur skilafrestur skattframtala er 21. mars.
Önnumst framtalsgerð einstaklinga, rekstraraðila og lögaðila.
Aukinn framtalsfrestur okkar viðskiptamanna er 7. maí og lögaðila 10. september.
Vö d ð i b ö ð á t ln u v nnu r g og ra uga reyns a.
G H ld h f ðiunnar ara sson, ag ræ ngur
Þverholti 11, 270 Mosfellsbær - Sími 561 0244
Gsm 692 4000, 697 3500 - fax 561 0240 - rbs@rbs.is
l ennur skilafrestur var til 21. mars s.l.
Í tilefni Kærleiksvikunnar sem haldin var
í febrúar tók starfsfólk Vinnustofa Skála-
túns sig til og hannaði og saumaði sérstaka
Kærleikspúða. Púðarnir eru með rennilás
og inn í þá voru sett útklippt hjörtu sem
á voru skrifuð kærleikskorn og spakmæli.
Öll heimili og skrifstofa Skálatúnsheim-
ilisins fengu hvert sinn púða fyllta með
spakmælum fyrir alla íbúa, starfsmenn
og gesti. Til stendur að halda áfram með
þetta verkefni og hafa púðana til sölu t.d.
til brúðargjafa.
Vorboðunum komið á óvart
Vorboðinn, kór eldri borgara í Mosfells-
bæ hefur haldið jólatónleika fyrir heimil-
isfólk og starfsmenn Skálatúnsheimilisins
á aðventunni síðustu ár. Var því ákveðið
að færa þessum velunnurum okkar gjöf í
tengslum við kærleiksvikuna. Kórinn er
með æfingar á mánudögum í Safnaðar-
heimili Lágafellskirkju og var ákveðið að
koma þeim á óvart á æfingu og færa þeim
Kærleikspúða og glerlistaverk að gjöf. Kór-
félagar þökkuðu fyrir sig með því að taka
lagið.
Kristín Þórðardóttir og Sigrún Lóa Ármannsdóttir starfsmenn Vinnustofa Skálatúns afhenda
Úlfhildi Geirsdóttur Kærleikspúða og glerlistaverk.
Meira um kærleiksviku í Mosfellsbæ (tengja í tengilinn fyrir neðan)
http://mos.is/Menning/Vidburdir/Kaerleiksvika/
Kristín Þórðardóttir og Sigrú Lóa Árm nnsdóttir starfsmenn Vinnustofa Skálatúns afhenda
Úlfhildi Geirsdóttur, fyrir hönd Vorboðanna, Kærleikspúða og glerlistaverk að gjöf.
KÆRLEIKSVIKA Í MOSFELLSBÆ
KÆRLEIKSPÚÐAR
FRÁ VINNUSTOFUM SKÁLATÚNS
Vikuna 17.-24. febrúar var haldin Kærleiksvika í Mosfellsbæ. Af því tilefni tók starfsfólk
Vinnustofa Skálatúns sig til og hannaði og saumaði sérstaka Kærleikspúða. Púðarnir eru með
rennilás og inn í þá voru sett útklippt hjörtu sem á voru skrifuð kærleikskorn og spakmæli. Öll
heimili og skrifstofa Skálatúnsheimilisins fengu síðan hvert sinn púða fyllta með spakmælum
fyrir alla íbúa, starfsmenn og gesti. Til stendur að halda áfram með þetta verkefni og hafa
púðana til sölu t.d. til brúðargjafa.
Vorboðinn, kór eldri borgara í Mosfellsbæ hefur haldið jólatónleika fyrir heimilisfólk og
starfsmenn Skálatúnsheimilisins á aðventunni síðustu ár. Var því ákveðið að færa þessum
velunnurum okkar gjöf í tengslum við kærleiksvikuna. Kórinn er með æfingar á mánudögum í
Safnaðarheimili Lágafellskirkju og var ákveðið að koma þeim á óvart á æfingu og færa þeim
Kærleikspúða og glerlistaverk að gjöf. Kórfélagar þökkuðu fyrir sig með því að taka lagið.
Starfsfólk Vinnustofa Skálatúns hannar Kærleikspúða • Afhentu kór eldri borgara gjöf
Kærleikspúðar fylltir af spakmælum
Magamál er nýr veitingastaður sem hefur verið opnaður í Kjarnanum. „Þetta verður
staður þar sem verður boðið upp á heimilismat, létta rétti eins og súpu, samlokur og
þess háttar og svo kaffi og kökur. Við komum til með að leggja áherslu á að vera með
heitan heimilismat í hádeginu og á kvöldin og verður alltaf boðið upp á súpu og allavega
tvo heita rétti,“ segir Reynir Örn eigandi og rekstraraðili.
„Við erum með pláss fyrir tuttugu manns inni á staðnum og svo verðum við með borð
hérna frammi sem er skemmtileg nýjung hér í Kjarnanum, tilvalið að setjast niður og
fá sér kaffisopa og tertusneið,“ segir Reynir sem vonar að Mosfellingar taki vel í þessa
nýju þjónustu við bæjarbúa. Staðurinn er opinn alla virka daga frá kl. 11:30-19:00 og á
laugardögum frá kl. 11:30-16:00.
Höfðingleg gjöf
til Reykjadals
Í vikunni fyrir páska komu eldri
hjón í Reykjadal í Mosfellsdal.
Tilefni þess var að afhenda félaginu
peningagjöf. Um var að ræða
verulega upphæð eða tíu milljónir
króna. Peningunum verður varið í
að bæta aðstöðu gesta í Reykjadal.
„Það þarf ekki að fjölyrða um
hversu þakklát við erum fyrir þessa
höfðinglegu gjöf og er þegar komin
hugmynd um hvernig peningunum
verður varið. Kunnum við hjónun-
um bestu þakkir,“ segir á heimasíðu
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
sem rekur starfsemina í Reykjadal.
Í Reykjadal fara fram sannkallaðir
ævintýradagar í frábæru umhverfi
fyrir fötluð börn og ungmenni á
aldrinum 6 ára til 20 ára. Starfið er
fjölbreytt og skemmtilegt og lýsa
einkunnarorðin gleði - árangur
- ævintýri dvölinni vel. Lögð er
áhersla á íþróttir og leiki, útivist
og sköpun. Sundlaug er á báðum
stöðum ásamt heitum potti og njóta
krakkarnir þess mjög að svamla
um í heitu vatninu. Á myndinni
má sjá hressa krakka í sumardvöl í
Reykjadal.
Heimilismatur og léttir réttir • Heitur matur í hádeginu
Magamál opnar í Kjarna
MAgAMál hefur opnAð
við hlið bónusvideo