Mosfellingur - 04.04.2013, Blaðsíða 23
XXXX x xxfellinga - 27www.mosfellingur.is 3
K y n n i n g
Við bjóðum góðar
framtíðarhorfur
Við bjóðum
góða þjónustu
Með honum geta foreldrar, ömmur, afar, frændur og frænkur
tryggt fermingarbarninu veglegan sjóð sem losnar við
18 ára aldur, um það bil þegar næstu stóru áfangar í lífinu
blasa við. Framtíðarreikningur ber ávallt hæstu vexti
almennra verðtryggðra innlánsreikninga bankans og
er því framúrskarandi valkostur fyrir langtímasparnað.
Hægt er að stofna og leggja inn á Framtíðarreikning
í útibúi Íslandsbanka í Mosfellsbæ.
Framtíðarreikningur Íslandsbanka
er góð fermingargjöf
*Eitt framlag fyrir hvert fermingarbarn
Þeir sem leggja fermingarpeningana sína, 30.000 kr. eða
meira, inn á Framtíðarreikning Íslandsbanka geta fengið
5.000 kr. í mótframlag inn á Framtíðarreikninginn sinn.*
Leggðu fermingarpeningana inn á Framtíðarreikning
islandsbanki.is
Sími 440 4000
Ungmenni sem vilja ná langt í námi og íþróttum
hafa í dag um spennandi kost að velja. Frá árinu
2008 hefur Borgarholtsskóli boðið upp á afreks-
íþróttasvið sem er algjörlega sniðið að þörfum
ungs íþróttafólks sem langar að ná árangri í íþrótt-
um og námi. Afreksíþróttasvið Borgarholtsskóla
býður framhaldsskólanemendum upp á að stunda
nám á hvaða bóknámsbraut sem er ásamt því að
stunda íþrótt sína; knattspyrnu, handknattleik,
golf eða körfubolta þrisvar í viku og fá 4 einingar
fyrir á hverri önn. Þarna geta afreksíþróttakonur
og -menn í þessum íþróttagreinum æft íþrótt sína
með álagi afreksmannsins samhliða námi.
Þessi valmöguleiki sem Borgarholtsskóli býð-
ur upp á hefur óteljandi kosti. Hingað til hafa
flestar afreksbrautir gengið út á að stunda nám á
íþróttabraut. Í þessu tilviki er það ekki nauðsyn-
legt. Nemendur geta valið sér það nám sem þeir
vilja og því heftir íþróttaiðkun ekki námsmögu-
leika þeirra.
Nemendur stunda þrjár æfingar í viku inni
í stundatöflu ofan á æfingar með félagsliðum
sínum. Fagmenntaðir þjálfarar sem allir hafa
reynslu af því að vinna með bestu íþróttamönn-
um landsins í þessum aldurshópi sjá um að þjálfa
nemendur. Þjálfararnir eru allir vel menntaðir í
sinni grein og leggja áherslu á einstaklingsmið-
aða tækniþjálfun enda eru ávallt fáir leikmenn á
hvern þjálfara.
Það sem helst háir ungu íþróttafólki í dag er
tímaleysi, slakt mataræði og ónógur svefn. Hæfi-
leikar íslenskra ungmenna eru svo sannarlega til
staðar. Í Borgarholtsskóla heldur þjálfarinn sér-
staklega vel utan um afreksnemendur, þeir læra
forvarnaræfingar gegn meiðslum, fá fræðslu um
mataræði og mikilvægi hvíldar og þar með allar
þær forsendur sem þarf til að ná hámarksárangri.
Nemendur fá að auki fræðslu um íþróttasálfræði,
þjálffræði, jóga og fleiri stoðgreinar sem tengjast
afreksmönnum í íþróttum. Þjálfarinn heldur utan
um hópinn eins og umsjónarkennari um bekk og
góð stemning myndast í hópnum líkt og í bekkjar-
kerfi. Lagt er kapp á að nemendur uppfylli kröfur
um námsmarkmið.
Nemendur orða þetta best sjálfir: „Eftir að ég
byrjaði á afrekssviðinu í Borgó hafa framfarirn-
ar svo sannarlega sýnt sig! Þvílík snilld sem þetta
er, mæli eindregið með þessu fyrir alla sem að
hafa áhuga á að ná langt í sinni íþróttagrein,“
segir stúlka á handboltaafrekssviði. „Ég mæti
á 6 skipulagðar æfingar í viku með afrekinu og
mínum golfklúbbi. Árangurinn lætur ekki á sér
standa. Ég er mjög ánægður með að ég sótti um á
afreksbrautinni í Borgarholtsskóla,“ segir dreng-
ur á golfafrekssviði. „Ég hef bætt skottækni mjög
mikið,“ segir afreksknattspyrnumaður. „Eftir að
ég byrjaði í afreks hef ég bætt mig sem leikmann
alveg heilmikið bæði tækni og leikskilning,“ segir
nemandi á handboltaafrekssviði. „Afreksbraut-
in er frábær leið til að æfa ennþá meira. Flottar
og vel skipulagðar æfingar. Frábær aðstaða til að
huga að öllum þáttum íþróttarinnar. Ég er mjög
ánægður með afreksbrautina,“ segir ungur afreks-
kylfingur.
Í Borgarholtsskóla er í boði frábært tækifæri
fyrir afreksíþróttafólk sem ég hefði svo sannarlega
þegið að taka þátt í þegar ég var í framhaldsskóla.
Kröfurnar til inngöngu eru miklar enda þarf að
standast miklar kröfur ef árangri skal ná í íþrótt-
um og námi. Nemendur þurfa að hafa náð grunn-
skólaprófi, hafa stundað íþrótt sína í nokkur ár,
vera vímulausir og skila fyrirmyndar skólasókn.
Nánari upplýsingar eru á www.bhs.is
Íris Björk Eysteinsdóttir
Verkefnastjóri afreksíþróttasviðs Borgarholtsskóla
„Hef bætt bæði tækni og leikskilning“
Nemendur á afreksíþróttasviði Borgarholtsskóla ánægðir með námsmöguleika skólans