Mosfellingur - 04.04.2013, Blaðsíða 28
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Tvíeggja tvíburar fæddir 18. ágúst
2012. Stefán Mikael Grétarsson og
Sigurður Andreas Grétarsson. For-
eldrar eru Thelma Ósk Kristjáns-
dóttir og Grétar Már Sigurðarson
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Brynjar Freyr Snorrason fæddist
3. desember 2012. Hann vó 3560 gr.
og var 52 cm. Foreldrar eru Snorri
Fannar Guðlaugsson og Sigrún
Ámundadóttir. Stóra systir heitir
Fanney Rún og er tveggja ára.
Eysteinn skorar á Elías Þórhallsson að deila með okkur uppskrift í næsta blaði
Kjúklingur með Ritzkexi
Í eldhúsinu
Eysteinn Leifsson leyfir okkur að skyggnast í
eldhúsið í Byggðarholtinu.
„Ég þakka Ásgeiri pent fyrir áskorunina, mér
er margt betur til lista lagt en matseld. Ég
samdi við frúna um að senda inn uppskrift
sem er einföld og góð og ég gæti gert á
góðum degi.“
Kjúklingur með Ritzkexi
1-2 sætar kartöflur
1 poki spínat
1 krukka fetaostur
4 kjúklingabringur
1 krukka mango chutney (stór)
ritzkex og rifinn ostur
Kartöflur hreinsaðar og skornar í þunnar
sneiðar, lagðar í botninn á eldföstu móti.
Spínati dreift yfir.
Fetaosti jafnað yfir og olía látin fara með.
Kjúklingabringur skornar í 3 hluta hver Þær
steiktar á pönnu og mango chutney hellt yfir.
Þetta síðan sett í mótið ofan á fetaostinn,
mulið ritzkex og rifinn ostur sett yfir.
Bakað í um 40-50 mín. við 180°C.
Borið fram með fersku salati
hjá EystEini
Tveir
mánuðir
Ég held það sé ekki flókið fyrir
nokkurn mann að ímynda sér hvar
hann/hún verður eftir tvo mán-
uði. Sumarið er stutt undan, fólk
er strax farið að ganga í hlýra-
bolum og margir hverjir farnir að
kaupa sér sólarvörn. Sólin er að
láta sjá sig og ég er ekki frá því að
fólk spennist meira upp fyrir því
að komast í sumarið heldur en að
komast í jólin. Ég er alla vega á
þeirri skoðun að það er skemmti-
legra að komast í hitann heldur en
slabbið yfir jólin.
Flott að sjá hvernig annar hver
Mosfellingur er farinn að ráðast
á garðinn hjá sér og í kappi við
nágranna að hafa garðinn sinn sem
flottastan fyrir sumarið, þótt það sé
nú enn smá frost í jörðu.
Mig langar að taka það fram hérna
hvað þessi blessaði Mosfellsbær er
að verða fullkominn. Það liggur við
að við þurfum ekki að verja okkur
lengur fyrir Reykvíkingum þar sem
þeir kalla okkur Mosfells„sveit“,
þeir eru allir farnir að sækja hingað
í sveitina. Við höfum allt hér og
Domino´s setti lokapunktinn á það
nú á dögunum.
Þrátt fyrir spenningin fyrir sumr-
inu þá verður líka gaman að horfa á
handboltann hjá Aftureldingu eftir
sumarið. Undirbúningstímabilið
hjá þeim verður eflaust spennandi
þar sem þeir munu taka á móti nýj-
um liðum í nýrri deild.Leiðinlegt
að þeir skyldu falla á tímabilinu
en mér finnst þetta samt jákvætt á
þann hátt að ég held að fleiri muna
sækja völlinn næsta vetur til að
hvetja sína menn áfram. Mæting-
arnar hafa ekki verið upp á það
besta upp á síðkastið. Ég hef sjálfur
ekki verið duglegur að mæta en
ætla mér að bæta þeim það upp og
láta mig ekki vanta á leikina eftir
sumarið.
Bragi þór
- Heyrst hefur...28
Heyrst Hefur...
...að útibúi Íslandsbanka í Kjarnanum
verði lokað í haust.
...að Mosfellsbær gæti séð sig knúinn
til að hætta öllum viðskiptum við
bankann sem hefur verið í Kjarnan-
um um árabil.
...að Helgi Björns og reiðmenn vind-
anna verði með Vorblót í Hlégarði í
byrjun maí.
...að Brynja Jóns sé tekin við
formennsku fimleikadeildarinnar af
evu Magnúsdóttur.
...að meistaraflokkur kvenna í blaki
hafi ekki náð að verja Íslands- og
bikarmeistaratitla sína frá því í fyrra.
...að knattspyrnukona Aftureldingar,
Lára Kristín, haldi til Bandaríkjanna
í haust og stundi þar nám samhliða
boltanum.
...að búið sé að opna veitingastaðinn
Magamál við hliðina á Bónusvideo í
Kjarnanum.
...að Bubbi Morthens verði með
tónleika í Hlégarði í kvöld.
...að María Pálsdóttir úr Útsvarsliði
Mosfellsbæjar verði á lista Bjartrar
framtíðar fyrir Alþingiskosningarnar.
...að hugmyndir séu uppi um að opna
útibú frá Lágafellsskóla sem hugs-
anlega yrði staðsett á Þrastarvöllum
við Þrastarhöfða.
...að Hrói Höttur sé búinn að loka
pizzastaðnum í Kjarnanum.
...að í undirbúningi sé útgáfa á sögu
hestamannfélagsins Harðar.
...að Heiðar snyrtir verði kynnir á
konukvöldi Hvíta riddarans laugar-
daginn 13. apríl.
...að stefanía svavars hafi slegið í
gegn á 25 ára afmælistónleikum
sálarinnar.
...að Gunnar Böðvars og Axelína hafi
slegið til og gift sig á dögunum.
...að Duna í Melkoti sé á lista Lýðræð-
isvaktarinnar fyrir kosningar.
...að sólin sé farin að skína á nýjan leik
í Hlíðatúnshverfi.
...að stefanía Ósk hafi fagnað fertugs-
afmæli sínu á dögunum.
...að Kristján Þór hafi leikið Hlíðarvöll-
inn á 66 höggum í páskamótinu.
...að markmaðurinn Dabbi svans ætli
að leika áfram með Aftureldingu.
...að Biggi Haralds troði upp á spot á
laugardaginn með nýrri hljómsveit
sem ber nafnið rokksveitin Gullfoss.
...að Mosfellingurinn Þorsteinn Gunnar
friðriksson hafi lent í öðru sæti í
Músíktilraunum með hljómsveit
sinni.
...að Ingimundur Helga sé búinn að fá
sér svartan Labrador.
...að kærustukrúttin Árni Magg og
thelma eigi afmæli í dag.
...að verið sé að safna í stækkunarsjóð
Harðarbóls.
mosfellingur@mosfellingur.is
Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum
ásamt helstu upplýsingum á netfangið
mosfellingur@mosfellingur.is
MOSFELLINGUR
Hvað er
að frétta?
Sendu okkur línu...
mosfellingur@mosfellingur.is