Mosfellingur - 04.04.2013, Page 8

Mosfellingur - 04.04.2013, Page 8
Eldri borgarar MÝS OG MENN 9. júní Því miður varð Borgarleikhúsið að fella niður sýninguna á Mýs og menn sem fyrirhuguð var þann 2. maí næstkomandi, því aðalleikarinn verður ekki kominn heim frá útlöndum. Flestir sem hafa keypt miða hafa skilað þeim og munu þeir fá nýja miða í hendurnar á næstu dögum frá forstöðu- manni sem mun hafa samband. Enn eru nokkrir sem eiga eftir að hafa samband og breyta miðum, vinsamlegst hafið samband sem ALLRA FYRST við Elvu í síma 698-0090 eða á skrifstofu félagsstarfsins í síma 586-4016. Aðrar dagsetningar eru í boði á sýninguna. Kántrý-Mos Minnum á leikhús- ferðina á vegum Fa- Mos á Leikritið Kántrý- Mos sem verður sýnt á morgun föstudaginn 5. apríl kl 20:00 í Bæjarleikhúsinu. Miðaverð 1500 kr. Miðasala í síma 566- 7788. Hvetjum alla til að mæta. Handunnar vörur til sölu Í aðstöðu félagsstarfsins er hægt að kaupa ýmsa fallega handgerða muni, t.d. vettlinga, sokka, húfur, dúkkuföt, skart og margt margt fleira. Að sjálfsögðu fer allur ágóði til þeirra sem minna mega sín í bæjarfélaginu okkar. Allar vörurnar eru á frábæru verði, aðeins er tekið við peningum. Félagsvist Næsta félagsvist er á morgun 5. apríl kl 13:00 í þjónustumið- stöð eldri borgara Eirhömrum á 1. hæð. Þátttökugjald er aðeins 500 kr og er innifalið í því kaffi og meðlæti. Vinningar í boði. Fréttir úr félagsstarfinu Félagsstarfið hefur farið vel á stað í nýrri og endurbættri aðstöðu á Eirhömrum. Um miðjan apríl mun félagsstarfið fá aðstöð- una formlega afhenta þegar nýr matsalur verður tekinn í notkun í húsinu. Aðstaðan er góð og rýmið er bjart og skemmtilegt. Starfið í vetur hefur verið frekar óhefð- bundið vegna mikilla framkvæmda og féllu fjölmörg námskeið niður. Næsta haust verður komin fullmótuð dagskrá vetrarins sem verður auglýst hér í blaðinu í haust. Spilavistin hefur farið mjög vel af stað og þátttaka verið afar góð. Gaman er að segja frá því að frábær þátttaka var í Páskabingóinu sem spilanefndin hélt 27. mars síðastliðinn í nýju félagsaðstöðinni á Eirhömrum. Um 50 manns mættu og stemmingin mjög góð. Að sjálfsögðu var fullt af páskaeggjum í vinning og fólk fór sátt heim og greinilegt að þessa aðstöðu hefur sárlega vantað miða við þátttökuna. Stefnt er á að endurtaka bingó aftur fljótlega. Allar nánari upplýsingar um félagsstarfið og skráningar í ferðir og á námskeið eru á skrifstofutíma milli kl. 13-16 virka daga og í síma 586-8014 og í gsm 698-0090. - Fréttir úr bæjarlífinu8 Mosfellingurinn Marta Silfá Birgisdóttir rekur net- verslunina ATRAM á Facebook. „Þegar ég eignaðist son minn fyrir einu og hálfu ári síðan fannst mér alveg vanta töff snuddubönd fyrir stráka. Það er til svo margt skemmtilegt og litríkt fyrir stelpur sem mér finnst oft vanta fyrir stráka. Ég bjó til snuddu- band fyrir son minn með nafninu hans og skær- um litum. Til að byrja með ætlaði ég bara að gera nokkur til að gefa í gjafir en þetta spurðist fljótt út. Eftirspurnin varð mikil og greinilega vöntun svo að ég gerði sölusíðu á Facebook og tek þar við pönt- unum. Ég hef líka verið að fara á markaði og svo er hægt að fá snudduböndin í ABC leikföngum en þá eru ekki nöfn barnanna. Í staðinn eru ýmis orð á böndunum t.d. prakkari, prinsessa, sæta, ömmu- prins, grallari og svoleiðis,“ segir Marta. Einnig er hægt að fá nafnahálsmen, armbönd og lyklakippur eftir pöntunum. „Á síðunni minni er hægt að sjá ýmsar litasam- setningar og ég geri hvern hlut eftir óskum kaup- andans. Stundum sendi ég fólki myndir af ýmsum tillögum áður en ég klára bandið og ég er með alla stafina í íslenska stafrófinu. Snudduböndin eiga að vera mjög örugg, perlurnar eru þræddar á borða og þau eiga ekki að geta slitnað,“ segir Marta. „Ég var að fá Bananabox sem eru algjör snilld til að taka með sér að heiman því bananinn helst alveg heill, þau eru á 990 kr.,“ segir Marta að lokum og hvetur alla til að skoða síðuna www.facebook.com/atram. snuddubond. Líf og fjör hefur verið meðal unglinga í Lágafellsskóla en þeir sýndu á dögunum söngleikinn „Wake me up before you go go“ eftir Hallgrím Helgason. Æfingatímabilið var skemmtilegt og skrautlegt en það hófst í byrjun janúar. Gjarnan mátti sjá ljós í matsal Lágafellsskóla langt fram á kvöld en þar æfði hópurinn undir leiðsögn Maríu Pálsdóttur sem leikstýrði verkinu. Tónlistina sá Hafdís Pálsdóttir um en hljómsveit skipuð ungling- um úr Lágafellsskóla lék undir flestum lögunum. Sýndar voru alls fjórar sýningar og var ávallt fullur salur. Börn jafnt sem fullorðnir gengu út með bros á vör. Söngleikur í lágafellsskóla Umræðufundur í Harðarbóli Sjálfstæðismenn héldu umræðufund með forystu flokksins í Harðarbóli þann 14. mars. Yfirskrift fundarins var „Hvernig vinnum við í þágu heimilanna?“ Bjarni Benediktsson, Hanna Birna Kristjáns- dóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir ræddu uppbyggingu og aðgerðir í þágu heimilanna. bjarni ben fer yfir málin systkinin Hanna birna og tHeodór vel Heppnuð sýning marta silfá innan um snuddubönd og bananabox Marta Silfá býr til snuddubönd sem rjúka út eins og heitar lummur rekur netverslunina aTraM á Facebook

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.