Mosfellingur - 16.05.2012, Síða 4

Mosfellingur - 16.05.2012, Síða 4
Sunnudagur 20. maí Guðsþjónusta í Mosfellskirkju kl.14 Hin árlega hestareið hestamannafélags- ins Harðar í Mosfellsbæ til kirkju. Karlakór Kjalnesinga syngur. Fjölmennum. Allir velkomnir! Prestur: Sr. Ragnheiður Jónsdóttir Sunnudagur 27. maí Hvítasunnudagur Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11 Þennan dag munu þær Kristín Anna Jensdóttir og Sjöfn Pálsdóttir syngja dúetta með kirkjukórnum. Prestur: Sr. Skírnir Garðarsson Sunnudagur 3. júní Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11 Vorboðarnir, kór eldri borgara í Mosfellsbæ syngur. Prestur: Sr. Skírnir Garðarsson HelgiHald næStu vikna www.lagafellskirkja.is kirkjustarfið - Bæjarblaðið í Mosfellsbæ64 Skráning á landsmót 50+ gengur vel Skráningar á 2. landsmót UMFÍ 50+ sem haldið verður í Mosfellsbæ 8.- 10. júní í sumar ganga vel. Undir- búningi miðar vel áfram og er reikn- að með góðri þátttöku á mótið. Það er mikill hugur í mótshöldurum og gengur undirbúningur samkvæmt áætlun. Athygli skal vakin á því að þátttakendafjöldi í golfi og pútti verður takmarkaður og því er um að gera fyrir keppendur í umræddum greinum að skrá sig í tíma. Allir geta skráð sig til leiks óháð félagi. Mótið er fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Ásamt keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verða fyrirlestrar og sýningarhópar. Allar upplýsingar og fyrirkomulag um mótið má finna á www.umfi.is. Lyktarmengun frá Álfsnesi hefur ekki minnkað þrátt fyrir aðgerðir Sorpu undanfarin ár lagst gegn áframhaldandi starfsleyfi Sorpu í Álfsnesi Íbúafundur sem haldinn var í Listasal Mosfellsbæjar 3. maí 2012 um starfsemi SORPU bs í Álfsnesi, leggst gegn því að SORPA fái áframhaldandi starfsleyfi í Álfsnesi. Íbúafundurinn telur starfsemina ekki eiga heima nálægt byggð meðal annars vegna lyktarmengunar. Þær aðgerðir sem gripið hefur verið til á undanförnum árum til að bregðast við lyktarmeng- uninni hafa ekki skilað tilætluðum árangri. Íbúafundurinn skorar á stjórn SORPU og aðildarsveitarfélög að standa saman að því að finna nýtt framtíðarsvæði fyrir starfsemin SORPU. Ályktun íbúafundar í Mosfellsbæ, 3. maí Samfylkingarfélagið í Mosfellsbæ hélt íbúa- fund þann 3. maí um starfsemi Sorpu í Álfs- nesi. Fundurinn var haldinn í Listasalnum og var hann vel sóttur. Til máls tóku Oddný Sturludóttir stjórnarformaður Sorpu, Björn H. Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu, Stefán Gíslason umhverfisfræðingur Rúnar Þór Guðbrandsson formaður íbúasamataka Leirvogstungu. Fulltrúar frá stjórnmálaflokkunum í Mosfellsbæ sátu fyrir svörum og komu sínum sjónarmiðum á framfæri en pólitísk samstaða virðist vera um að starfsleyfi Sorpu í Álfsnesi skuli ekki endurnýjað. Starfsleyfið rennur út um næstu áramót en Sorpa er í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu. Finna þarf nýtt framtíðarsvæði Í ályktun sem samþykkt var á fundinum segir að íbúafundurinn telji starfsemina ekki eiga heima nálægt byggð meðal annars vegna lyktarmengunar. Þær aðgerðir sem gripið hafi verið til á undanförnum árum til að bregðast við lyktarmenguninni hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Íbúafundurinn skorar á stjórn SORPU og aðildarsveitarfé- lög að standa saman að því að finna nýtt framtíðarsvæði fyrir starfsemi SORPU. Björn H. Halldórsson framkvæmdastjóri Sorpu talar á Íbúafundi sem haldinn var í Listasalnum. SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgar- svæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópa- vogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garða- bær og Álftanes. M yn d/ Ra gg i Ó la Mosfellingar kvarta bæði und­ an sjón­ og lyktarmengun frá Álfsnesi og sumir líkja svæðinu við risa stóran útikamar. Aðalfundur og vor- ferð Sögufélagsins Sögufélag Kjalarnesþings heldur aðalfund sinn fimmtudaginn 31. maí kl. 17 á kaffihúsinu Álafossi. Eftir venjuleg aðalfundarstörf verð- ur flutt fræðsluerindi sem tengist sögu Mosfellsbæjar. Nýir félagar eru boðnir velkomnir og verður upp á kaffiveitingar. Það er löng hefð fyrir því hjá Sögufélaginu að fara í vorferð og að þessu sinni verður hún laugar- daginn 2. júní. Þá verða skoðaðar rústir þriggja fjárrétta í suðurhluta sveitarfélagsins. Einnig verður litið við í gullnámunni í Þormóðsdal. Lagt verður af stað með rútu frá Hlégarði kl.10 en komið heim um kl. 13.30. Hér er um fjölskylduferð að ræða og eru allir velkomnir í hana. Þátttakendur eru hvattir til að koma vel búnir til útiveru og taka með sér nestisbita. Meðfylgjandi mynd var tekin í ferð félagsins síðastliðið vor þegar haldið var á vit eyðibýla sveitar- innar og þau merkt með skiltum. Hér er sögufélagsfólk statt við rústir Óskots, vestan við Hafravatn. BINGÓ Fimmtudagi nn 17.maí Miðvikudag inn 16.maí Próflokadjamm meðDJBoombastic sixties Minnum á matseð ilinn og fylgstu með okk ur á fac ebook! djamm! Hljómsveitin Laugardaginn 26.maí heldur uppi fjörinu! Tandoori Johnson Laugardaginn 19.maí Hljómsveitin Háholti 13 - 566 6222 Restaurant - Bar - Sportbar með John Andrews og Co. w w w. l a g a fe l l s k i r k j a . i s

x

Mosfellingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.