Mosfellingur - 16.05.2012, Side 10

Mosfellingur - 16.05.2012, Side 10
Stöllurnar syngja um ástina og lífið Í kvöld, miðvikudaginn 16. maí kl. 20 í Bæjarleikhúsi Mosfellsbæjar heldur kvennakórinn Stöllurnar sína árlegu vortónleika. Tónleikarn- ir verða sérlega glæsilegir í ár þar sem að kórinn er 5 ára á árinu. Kór þessi var stofnaður haustið 2007 af konum sem vinna í leikskólum bæj- arins. Þar sem kórinn er í samstarfi við Leikfélag Mosfellsbæjar verða stuttir leikþættir inn á milli laga. Yfirskrift tónleikana er „ástin og líf- ið“ þar sem öll lögin fjalla um ástina eða lífið í öllum sínum myndum. Mikið er um íslensk dægurlög og bítlaög á efnisskránni, m.a. Reyndu aftur og Draumaprinsinn. En einnig verða sungin bítlalögin All you need is love, Blackbird og Let it bee. Stjórnandi kórsins er Heiða Árnadóttir. Miðar eru seldir við innganginn en miðaverð er 1000 kr. en ókeypis fyrir 12 ára og yngri. Sýning í tilefni 50 ára afmælis Varmárskóla Á myndinni er hluti leikhóps sem frumsýnir nýtt verk í Bæjarleik- húsinu þann 2. júní. Sýningin er sett upp í tilefni af 50 ára afmæli Varmárskóla og það eru nemendur í leiklistarvali 9. og 10. bekkjar Lágafells- og Varmárskóla sem leika. Leikstjóri er María Pálsdóttir leikkona sem hefur kennt val- greinina í vetur og hún er einnig höfundur ásamt leikhópnum. Óskar Einarsson aðstoðar við tónlist. Í verkinu skarast tvennir tímar; nútíminn og árið 1962. Við sögu koma verðandi gagnfræðingar, Bára kennari, Hlégarður, sveitasíminn, Sæmi Rokk, rómantíkin, sagan af bandarísku hjúkkunni ásamt fleiru krassandi. Sýningar verða laugar- daginn 2. júní kl. 16.30 og kl. 19. Miðar seldir við innganginn á litlar 500 krónur. - Fréttir úr Mosfellsbæ10 STAFRÆN PRENTUN I STÓRLJÓSMYNDAPRENTUN I STAFRÆN HÖNNUN ARTPRO ehf. I Háholti 14, 2. hæð I 270 Mosfellsbæ I Sími: 566 7765 I www.artpro.is I artpro@artpro.is VERSLUM Í HEIMABYGGÐNafnspjöld I Bæklingar Auglýsingar I Dreimiðar Ljósmyndir I Bækur I KortLISTRÆN FAGMENNSKA ARTPRO WWW.ARTPRO.IS PRENTÞJÓNUSTA Kæru Mosfellingar! Ég vil nota tækifærið og þakka ykk- ur öllum innilega fyrir stuðninginn síðustu mánuði. Hann hefur verið ómetanlegur og hefur heldur bet- ur munað um að hafa bæjarfélagið á bak við sig. Ég er stolt að segja að ég sé hluti af þessu frábæra samfélagi sem Mosfellingar eru! Takk fyrir mig, þið eruð frábær! Kv. Greta Salóme, Mosfellingur með meiru. Þakkarorð Um 2000 skólabörn úr Mosfellsbæ kvöddu Eurovision-farana Gretu Salóme og Jónsa Kveðjuhóf á Miðbæjartorginu Greta Salóme oG Jón JóSep taka laGið bæJarStJórinn færir lukkurGripi Skólabörnin létu votviðri ekki á SiG fá Mosfellingurinn Greta Salóme Stefánsdóttir höfundur og flytjandi lagsins Mundu eftir mér sem fer fyrir Íslands hönd í Eurovision var kvödd á Miðbæjartorginu á dögunum. Um 2000 skólabörn fylltu torgið og tóku vel undir þegar Greta og Jónsi fluttu framlag Íslands. Greta á án efa eftir að vera Mosfellsbæ og öllu Íslandi til sóma í keppninni sem fram fer í Baku í Azerbaijan. StemninG á torGinu þrátt fyrir Skúrir

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.