Mosfellingur - 16.05.2012, Page 16

Mosfellingur - 16.05.2012, Page 16
Stefán Bjarnarson gekk í Leikfélag Mosfellssveitar árið 2000 og hefur frá þeim tíma tekið þátt í mörgum uppfærslum með félaginu. Hann hefur einnig tekið að sér hlutverk í kvikmynd- um, skemmtiþáttum og áramótaskaup- inu. Með dyggum stuðningi fjölskyldu sinnar lét hann gamlan draum rætast og skellti sér í leiklistarnám til Bandaríkj- anna og segist ekki sjá eftir því. „Ég ólst upp fyrstu tíu ár ævi minnar í vesturbænum í Kópavogi og gekk í Kárs- nesskóla. Síðan lá leiðin í austurbæinn í Digranesskóla og þaðan í Víghólaskóla. Við strákarnir í hverfinu lékum okkur oft í fjörunni í Fossvoginum og bjuggum til fleka og sigldum út voginn. Oft var barist á milli blokka með heimatilbúnum sverðum og skjöldum á Ásbrautinni þar sem ég bjó og oft fór það nú svo að á endanum fór einhver grenjandi heim.“ Varð skákmeistari tólf ára „Þegar ég varð átta ára þá lærði ég mann- ganginn í skák. Ég hef alla tíð teflt mikið sérstaklega á mínum yngri árum bæði hér heima og erlendis. Ég varð skákmeistari barnaskólanna í Kópavogi tólf ára gamall. Ég var einnig mikið í knattspyrnu og spilaði með ÍK og Víking.“ Keppti í ræðumennsku „Á unglingsárunum gekk ég í JC í Kópa- vogi og keppti í ræðumennsku vítt og breytt um landið. Þetta var afskaplega lærdóms- ríkur tími og byggði upp hjá manni mikið sjálfstraust sem hefur skilað sér í verkefn- um sem ég hef tekið að mér í gegnum tíð- ina eins og veislustjórn, á skemmtunum og fleiru tilfallandi.“ Stefán er fæddur í Reykjavík 20. maí 1964. Foreldrar hans eru Sigurður Bjarnar- son sölumaður og Jóna Þorláksdóttir starfs- maður hjá Norvík. Systkini Stefáns eru þau Rósa Björk og Arnar. Stefán á tvær dætur þær Elísabetu Heiðu 24 ára sem er á öðru ári í hjúkrunarfræði og Díönu Mjöll 17 ára á fyrsta ári í íþróttabraut Fjölbrautarskól- ans í Breiðholti. Hann á þrjá stjúpsyni þá Mána 26 ára, Mímir 22 ára og Móses 15 ára. Heimilishundurinn heitir Dexter. Lauk sveinsprófi í húsasmíði „Ég hef fengist við ýmislegt um ævina eins og að vera á sjó, vinna í fiski, sölu- maður og verið umboðsmaður fyrir skemmtikrafta. Ég ákvað að skella mér í nám og lauk sveins- prófi í húsasmíði frá Fjölbrautar- skólanum í Breiðholti árið 1988 og vann við smíðar til fjölda ára. Árið 1997 flutti ég í Mosfellsbæ ásamt fyrrverandi sambýliskonu minni en okkar leiðir skildu árið 2001. Mér finnst mjög gott að búa í þessu fallega bæjarfélagi og er margt sem tengir mig við bæinn og næsta nágrenni. Afi minn og amma í móðurætt voru fyrstu ábúend- urnir í Hlégarði en afi er frá Álfsnesi. Langafi minn, Kristján Þorkelsson var hreppsstjóri á Kjalarnesi.“ Kynntist mörgum bæjarbúum „Ég tók mér hlé frá smíðunum og tók við rekstri Grillnestis í Mosfellsbæ og rak þann stað í fimm ár. Sá tími var mjög skemmti- legur og maður kynntist mörgum bæjarbú- um og lenti líka í mörgum skemmtilegum uppákomum. Eitt sinn bað viðskiptavinur mig um eina pylsu með öllu nema í stað pylsunnar vildi hann Síríuslengju sem sökk ofaní allt gumsið. Eftir þetta lét ég ekkert koma mér á óvart. Eftir að ég seldi Grillnesti þá fór ég að smíða aftur og gerði næstu þrjú árin. Mín helstu áhugamál eru skák, hesta- mennska, knattspyrna og golf og þessa stundina er ég aðallega að berjast við að lækka forgjöfina mína í golfinu,“ segir Stef- án og glottir. „Ég myndi gjarnan vilja sjá öflugt skákfélag í Mosfellsbæ því ég veit að það vantar ekki áhugann.“ Eitt öflugasta áhugaleikhús á landinu „Árið 2000 gekk ég í Leikfélag Mosfells- sveitar og hef ég leikið með þeim allar götur síðan. Í leikhúsinu ríkir sérstakur andi og þykir mér mjög vænt um alla vini mína þar. Leikfélagið er meðal öflugustu áhugaleikhúsa á landinu og hefur staðið að mörgum góðum sýningum en mér finnst að bæjarbúar mættu vera duglegri að sækja okkur heim. Eftir að hafa leikið með leikfélaginu, í bíómyndum, skemmtiþáttum og fleiru í átta ár ákvað ég með dyggri hvatningu fjölskyldunnar að láta slag standa og stíga skrefið til fulls og nema leiklist. Ég flaug til Bandaríkjanna og kláraði leiklistarnámið þar árið 2011.“ Sjálfstætt starfandi nuddari „Í Bandaríkjunum sótti ég líka nám í heilsunuddi og starfa í dag sjálfstætt sem nuddari. Ég hef verið að nudda strákana í meistaraflokki Víkings í knattspyrnu auk þess sem ég hef verið síðasta hálfa árið á Nordica Spa á Hótel Hilton. Það hentar mér ágætlega að vera að nudda því þá hef ég sveigjanlegan vinnu- tíma og get því tekið að mér hin ýmsu verkefni í leiklistinni sem oft koma upp með stuttum fyrirvara. Ég er einnig í hálfu starfi hjá Íþróttafélaginu Víkingi við hin ýmsu störf.“ Ætla að opna veitingahús „Núverandi sambýliskona mín er Guð- laug Ágústa Halldórsdóttir hönnuður en hún rekur verslunina Má mí mó í Ingólfs- stræti. Um miðjan júní ætlum við að opna veitingahús í miðbæ Reykjavíkur sem verður með áherslu á heilsusamlegan fisk og fullt af góðu meðlæti og þessa dagana stendur undirbúningur sem hæst. Við höfum bæði ágætis reynslu af fyrir- tækjarekstri og þá sér í lagi Guðlaug sem hefur rekið nokkur veitingahús eins og Gauk á Stöng, Apótekið, Hótel Loftleiðir og fleiri. Allir Mosfellingar eru að sjálfsögðu vel- komnir til okkar nema kannski Steindi Jr. sem hefur ekki enn boðið mér hlutverk í þáttunum sínum,“ segir Stefán og hlær er við kveðjumst. Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni Eftir að hafa leikið með leikfélaginu, í bíómyndum, skemmtiþáttum og fleiru í átta ár ákvað ég með dyggri hvatningu fjölskyldunnar að láta slag standa og stíga skrefið til fulls og nema leiklist. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is - Viðtal / Mosfellingurinn Stefán Bjarnarson16 Leiklist er lífið Stefán Bjarnarson húsasmiður lét gamlan draum rætast og skellti sér í leiklistarnám til Bandaríkjanna Stefán og Guðlaug Ágústa á góðri stundu. Uppáhaldsrakspíri? Beckham, enda ManU maður. Hvernig Facebook týpa ertu? Afmælisfacebookarinn. Hver er þín óvenjulegasta lífsreynsla? Að kynnast Gullu minni. Hver myndi leika þig í bíómynd? Val Kilmer og Ágúst Sæland og ef þeir skildu vera uppteknir þá Brad Pitt. Fallegasti staður í Mosfellsbæ? Leirurnar á hestbaki við sólsetur. Ertu A eða B manneskja? A. Hver er þín versta martröð? Að missa trúna á sjálfum mér. Lýstu þér í þrem orðum? Hamingjusamur, heill og hjálpsamur. HIN HLIÐIN dæturnar á fermingardaginnungur að árum FÖ Ð U R LA N D IÐ A U G LÝ S IN G A S TO FA SUMARGLEÐI ALLAR PIZZUR Á MATSEÐLI Á 1.490 KR. EF ÞÚ SÆKIR ALLA DAGA FRÁ KL 11 - 15 BÆJARLIND HRAUNBÆ GRENSÁSVEGI MOSFELLSBÆ

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.