Mosfellingur - 16.05.2012, Page 18

Mosfellingur - 16.05.2012, Page 18
 - Dreift frítt í Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Kjós18 Síðastliðna helgi lagði 11 manna hópur úr Kyndli land undir fót og gekk upp á hæsta tind Íslands, Hvannadalshnjúk (2110 m.y.s.). Gangan gekk að öllu leyti vel og tók rúma 11 tíma, bæði veður og færð voru þónokkuð góð og ekki laust við að göngumennirnir tækju lit í göngunni. Nokkrir hópar voru á ferðinni á sama tíma og hjálpuðu Kyndils- menn þeim sem þurftu á aðstoð að halda. Kyndilshópurinn var blandaður af fjallahóp og nýliðum sveitarinnar og gist var í skálum í Svínafelli þar sem grillað var eftir gönguna. Hópurinn kom síðan heim á sunnudeginum reynslunni ríkari. Mynd: Marcin Kamienski Félagar úr björgunarsveitinni Kyndli á Hvannadalhnjúki Kyndill á toppnum Að standa vörð um grunnþarfir sínar, svo sem næringu, svefn, hreyfingu og hvíld, er besta leiðin til þess að stuðla að heil- brigðu lífi. Auk þess er mikil- vægt að huga að andlegum og félagslegum þörfum, því ekki má vanmeta þann kraft sem fæst með því að rækta samband við ættingja og vini og með því að vera félagslega virkur í nærumhverfi sínu. Mosfellsbær er kjörinn staður til að gera alvöru úr hugleiðingum sem þessum. Bærinn er umlukinn fellum sem gefa tækifæri til hæfilega ögrandi gönguferða miðað við getu hvers og eins – og stutt er í Esjuna ef menn vilja meiri áskorun. Einnig er í bænum gott kerfi stíga, þar sem hægt er að ganga, hlaupa, hjóla eða renna sér á línu- skautum og stígakerfi bæjarins er vel tengt yfir til höfuðborg- arinnar. Fátt er svo betra eftir góða líkamsrækt en að skreppa í sundlaugina við Varmá eða í Lágafellslaug og láta þreytuna líða úr sér. Mosfellsbær er líka þekktur fyrir bókmenntaarfinn, líflegt kórastarf og ýmis önnur félagssamtök, sem gefa tækifæri til að efla andann og félagslífið. En heilbrigði byrjar heima og má að sumu leyti líkja við það að rækta garðinn sinn! Að lifa heilbrigðu lífi þarf ekki flókna félagslega umgjörð heldur er það fyrst og síðast ákvörðun sem hver og einn tekur fyrir sig. Jónína Sigurgeirsdóttir Hjúkrunarfræðingur BS, MS H e i l s u v i n í M o s f e l l s b æ e r h l u t a f é l a g í e i g u f y r i r t æ k j a o g e i n s t a k l i n g a í h e i l s u þ j ó n u s t u í M o s f e l l s b æ . S t a r f f r a m k v æ m d a s t j ó r a f e l u r í s é r a l m e n n t u t a n u m h a l d u m s t a r f k l a s a n s , k y n n i n g a r - o g m a r k a ð s s t a r f , ö f l u n n ý r r a h l u t h a f a f y r i r k l a s a n n , u m s j ó n m e ð u m s ó k n u m u m s t y r k i , b ó k h a l d o g f l e i r a . N á n a r i u p p l ý s i n g a r u m H e i l s u v i n e r a ð f i n n a á s l ó ð i n n i w w w . h e i l s u v i n . c o m . N á n a r i u p p l ý s i n g a r u m s t a r f i ð v e i t i r J ó n P á l s s o n , s t j ó r n a r f o r m a ð u r H e i l s u v i n j a r g e g n u m n e t f a n g i ð j o n @ a n s . i s . U m s ó k n i r s k u l u s e n d a r á n e t f a n g i ð h e i l s u v i n @ h e i l s u v i n . c o m f y r i r 3 . m a r s n æ s t k o m a n d i . H e i l s u v i n í M o s f e l l s b æ ó s k a r e f t i r a ð r á ð a f r a m - k v æ m d a s t j ó r a í a l l t a ð 5 0 % s t a r f heilsu hornið Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heils vin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálss n, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfa gið jo @ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf Heilsuvin í Mosfellsbæ er hlutafélag í eigu fyrirtækja og einstaklinga í heilsuþjónustu í Mosfellsbæ. Starf framkvæmdastjóra felur í sér almennt utanumhald um starf klasans, kynningar- og markaðsstarf, öflun nýrra hluthafa fyrir klasann, umsjón með umsóknum um styrki, bókhald og fleira. Nánari upplýsingar um Heilsuvin er að finna á slóðinni www.heilsuvin.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Pálsson, stjórnarformaður Heilsuvinjar gegnum netfangið jon@ans.is. Umsóknir skulu sendar á netfangið heilsuvin@heilsuvin.com fyrir 3. mars næstkomandi. Heilsuvin í Mosfellsbæ óskar eftir að ráða fram- kvæmdastjóra í allt að 50% starf heilsuár í mosfellsbæ 2012 heilsuvin í mosfellsbæ Heilbrigði byrjar heima! Vissir þú að slitin handklæði og götóttir sokkar geta staðið undir kostnaði við hjálparsímann 1717 og stuðlað að menntu munaðarlausra barna í Síerra Lione? Allur fatnaður, skór, gluggatjöld og vefnaðar- vörur, hvort sem slitið er eða heilt nýtist Rauða krossinum í hjálparstarfi hérlendis sem erlendis. Hluti þess fatnaðar sem kemur inn til Rauða krossins fer beint í neyðaraðstoð hér heima og erlendis. Annar hluti fer í endursölu í Rauðakross búðunum og er- lendis. Sjálfboðaliðar okkar eru snillingar í að sauma og prjóna fatnað úr efnum og garnafgöngum sem berast. Það sem er ónothæft er selt í endurvinnslu. Gamlar gardínur, rifin rúmföt og háöldruð hand- klæði eiga því líka erindi í söfnunargámana, því það sem er ekki nothæft er selt til end- urvinnslu og skilar þannig verðmætum. Fatasöfnunin er orðin eitt af mikilvægustu fjáröflunarverkefnum Rauða krossins og rennur allur ágóði til hjálparstarfs. Fimmtudaginn 17. maí verður árlegur fatasöfnunardagur Rauða krossins og Eimskips. Gerðu gagn með gömlum föt- um. Sérstakir söfnunargámar verða við alla sundstaði á höfuðborgarsvæðinu. Hér í Mosfellsbæ verður gámurinn staðsettur við Lágafellslaug. Að vanda er einnig hægt að skila fatnaði á endurvinnslustöðvar Sorpu. Fólk er beðið um að skila fatnaði í lokuðum plastpokum til að koma í veg fyrir óhrein- indi og auðvelda flokkun. Götuhreinsun VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja Þrif á götum og gangstéttum bæjarins Nú stendur til að þvo og sópa gangstéttir og götur bæjarins. Til að það verði sem best gert þurfum við á ykkar aðstoð að halda. Bæjarbúar eru vinsamlegast beðnir um að leggja ekki ökutækjum eða öðrum farartækjum á götunum eða gangstéttum meðan á hreinsun stendur. Ennfremur eru bæjarbúar hvattir til að hreinsa í kringum híbýli sín og fá aðstoð starfsmanna þjónustumiðstöðvar í síma 566 8450 til að fjarlægja bílhræ og stærri hluti. Eftirtalda daga verða starfsmenn þjó ustu- miðstöðvar að störfum í hverfunum: 14. maí Reykja- og Krikahverfi 15. maí Teiga- og Helgafellshverfi 16. maí Holtahverfi 18. maí Tangahverfi 21. maí Hlíða- og Hlíðartúnshverfi 22. maí Höfðahverfi 23. maí Leirvogstungu Gleðilegt sumar. Þjónustumiðstöð Mosfellsbæjar Varmá Fréttarit SjálFStæðiSmanna í moSFellSbæ 1. tbl. 34. árg. maí 2012 Kosið var til sveitarstjórna í landinu í maí 2010 og er því kjörtímabilið hálfnað nú í vor. Á þeim tímamótum er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg og meta hvernig til hefur tekist á þessum tveimur árum. Við sjálfstæðismenn lögðum fram metnaðarfulla stefnu- skrá fyrir síðustu kosningar og höf- um í góðu samstarfi við vinstri græn hér í Mosfellsbæ unnið að framgangi þeirra stefnumála á kjörtímabilinu. Hér að neðan eru meginatriði þess- arar stefnuskrár okkar sjálfstæðis- manna og mat á því hvernig til hefur tekist. Ábyrg fjármálastjórn»Staða Mosfellsbæjar er traust, skuldahlutfall komið niður fyrir 150% af tekjum sem eru skil- yrði nýrra sveitarstjórnalaga. Sú þriggja ára áætlun sem lagt var af stað með til að aðlaga rekstur og fjármál sveitarfélagsins að breyttum aðstæðum eftir fjármálahrunið hefur gengið eftir. Bygging hjúkrunarheimilis og aðstöðu fyrir félagsstarf aldraðra»Bygging hjúkrunarheimilis er komin vel á veg, rekstur hefst í byrjun næsta árs. Samningur Mosfellsbæjar og Eirar, hjúkrunarheimilis um end- urinnréttingu á rými fyrir félagsstarf eldri borgara og starfsemi þjónustumiðstöðvar að Hlaðhömrum, hefur verið undirritaður og munu framkvæmdir hefjast fljótlega. Aukin löggæsla og nágrannavarsla»Mikil vinna og áhersla hefur verið lögð í að fá lögreglu höfuðborgarsvæðisins og ríkisvaldið til að efna loforð um byggingu nýrrar lögreglustöðv- ar í Mosfellsbæ í samvinnu við slökkviliðið. Við það hefur ríkisvaldið ekki staðið enn, áfram verður hald- ið í þessari baráttu. Áfram hefur verið haldið með nágrannavörslu verkefnið. Framúrskarandi skólastarf»Fullyrða má að skólastarf í Mosfellsbæ sé með því besta sem þekkist og er ekki síst að þakka því frábæra starfsfólki sem vinnur í skólastofnunum okkar. Þetta sýnir m.a. sú ásókn fjölskyldufólks í að búa í Mosfellsbæ. Áfram verður haldið að byggja upp og hlúa að skólastarfi okkar. Nýr leiksskóli hefur verið tekinn í notkun í Leirvogstungu. Öflug stoðþjónusta í skólum»Stoðþjónusta í skólunum okkar er allt-af í sífelldri skoðun enda er hún afar mikilvæg. Á vegum fræðslunefndar starfar vinnuhópur sem vinnur að endurskoðun á stefnu Mosfellsbæjar um sérkennslu og sérfræðiþjónustu. Gert er ráð fyrir skýrslu og tillögum frá hópnum nú í vor. Lýðræðisstefna og reglur um íbúakosningar»Lýðræðisstefna Mosfellsbæjar hefur verið unnin í samvinnu allra framboða í bæj- arstjórn og með aðkomu íbúa sveitarfélagsins. Bæjarstjórn samþykkti þessa nýju stefnu í okt- óber á sl. ári og varð Mosfellsbær því með fyrstu sveitarfélögum til að samþykkja sérstaka stefnu um lýðræðismál. Mosfellsbær sem miðstöð heilsueflingar og heilsu og menningartengdrar ferðaþjónustu»Mosfellsbær hefur sett sér metnaðarfulla stefnu sem leiðandi heilsubær. Jafnframt hefur bær- inn stuðlað að og tekið þátt í stofnun heilsuklasans Heilsuvinjar, sem er klasi aðila í heilsutengdri þjón- ustu í Mosfellsbæ, sem hefur það að markmiði að efla atvinnuuppbyggingu í hvers kyns heilsutengdri þjónustu. 1000 ný störf í bæinn»Fjöldi starfa í opinbera geiranum verður til með byggingu nýs framhaldsskóla, hjúkrunar- heimilis og slökkvistöðvar í Mosfellsbæ. Jafnframt hefur verið ákveðið að ráðast í sérstakt og nýstár- legt átak í sölu atvinnulóða í bænum. Auk þessa er í undirbúningi tvö risavaxin verkefni sem eru bygging liðskiptasjúkrahúss fyrir ofan Akra og gagnavers í Sólheimakotslandi, hvorutveggja verkefni sem vonir eru bundnar við að verði að veruleika þó ekkert sé öruggt í þeim efnum. Eitt stærsta byggingarfyrirtæki landsins, Ístak, hefur flutt höfuðstöðvar sínar í bæ- inn. Endurbætur í eldri hverfum»Unnin hefur verið viðamikil úttekt á ástandi eldri hverfa og kostnaðaráætlun gerð fyrir úrbætur þar sem þeirra er þörf. Næst á dagskrá er að forgangsraða þessum framkvæmdum og kynna áætlunina fyrir íbúum og fá fram viðhorf og skoð- anir þeirra. Íþrótta- og tómstundaþing með félögum bæjarins»Íþrótta- og tómstundaþing var haldið 17. mars sl. um íþróttir og tómstundir í bænum. Á síð- ustu árum hefur verið unnið að stefnumótun á sviði íþrótta- og tómstundamála. Til að ljúka því verki voru boðaðir saman fulltrúar félaga í Mosfellsbæ, foreldrar, forráðamenn og aðrir íbúar, sem áhuga hafa á íþrótta- og tómstundamálum að koma saman og ræða þessi mál. Áframhaldandi uppbygging Íþrótta- miðstöðvarinnar að Varmá og m.a. að tryggja með því viðunandi félagsaðstöðu.»Ákveðið hefur verið bygging nýs 1.200 fm íþróttasalar að Varmá með möguleika á 300 fm félagsaðstöðu. Þessi salur verður fyrst og fremst ætl- aður fyrir fimleika og bardagaíþróttir en mun í raun nýtast miklu fleiri íþróttagreinum því með tilkomu hans losnar um tíma í eldri sölum á Varmá. Viðhald á eldri byggingum bæjarins og umhverfi þeirra»Endurbótum á Brúarlandshúsinu er nú lokið og útlit hússins fært í upprunalegt horf ásamt því að húsið hýsir nú framhaldsskólann þar til nýtt húsnæði verður tekið í notkun. Endurbætur standa yfir á húsnæði Varmárskóla, í sumar verður eldri deildin klædd að utan og nýverið var tekin í notkun nýr sparkvöllur. Gerð hefur verið áætlun um endur- bætur á Hlégarði sem svo sannarlega þarfnast við- halds. Lóð Lágafellsskóla hefur verið endurgerð. Af ofansögðu má ljóst vera að heilmikið hefur áunn- ist á þeim tveimur árum sem liðin eru af kjörtíma- bilinu. Við frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins, í því góða samstarfi sem er við VG, munum halda ótrauð áfram við að gera góðan bæ betri. Það gengur vel í Mosfellsbæ Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mynd/RaggiÓla Fréttarit sjálfstæðismanna í mosfellsbæ Varmá Hvað gerir þú ið ötótta, staka sokka?

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.