Mosfellingur - 16.05.2012, Page 30
- Íþróttir26
Nokkrir efnilegir leikmenn 2. flokks karla í knattspyrnu skrifuðu undir leikmannasamn-
ing við Aftureldingu í vikunni. Alls voru það níu drengir sem gerðu samning, tveir voru
að framlengja við félagið en sjö að skrifa undir sinn fyrsta leikmannasamning. Það er
barna- og unglingaráð sem gerir samning við piltana en nokkrir þeirra hafa þegar fengið
tækifæri með meistaraflokki félagsins.
SumarnámSkeið
www.mos.is
Efri röð frá vinstri: Elvar Ingi Vignisson, Valgeir Steinn Runólfsson, Anton Ari Einarsson, Magni
Kolbeinsson og Sindri Snær Ólafsson. Neðri röð frá vinstri: Ægir Örn Snorrason, Gunnar Andri
Pétursson, Marinó Haraldsson og Birgir Örn Birgisson
Efnilegir knattspyrnumenn skrifa undir við Aftureldingu
Framtíðarleikmenn
davíð svansson og
hilmar stefánsson
Örn Ingi Bjarkason er kominn aftur heim
Lykilmenn
skrifa undir
Fagnað sigri á stjörnunni
Mikill fögnuður braust út þegar ljóst var að Afturelding héldi sæti sínu í N1-deildinn.
Reynir Þór Reynisson þjálfari, Jóhann Már Helgason framkvæmdastjóri, Hilmar Stefánsson Örn Ingi Bjarkason, Davíð Svansson, Böðvar Páll Ásgeirsson, Jóhann Jóhannsson og Ásgeir Sveinsson formaður mfl.ráðs.
Mikill hugur er í leikmönnum og forráðamönnum Aftureldingar í
handknattleik fyrir næstu leiktíð. Liðið hélt sæti sínu í N1-deild-
inni og styrkir nú liðið enn frekar. Margir af lykilmönnum liðsins
hafa skrifað undir áframhaldandi samning við félagið. Þá er Örn
Ingi Bjarkason búinn að gera tveggja ára samning við Aftureld-
ingu. Ljóst er að með Erni Inga styrkist lið Aftureldingar til muna
en hann hefur leikið fyrir FH síðustu fjögur árin. Hinn ungi og
efnilega Böðvar Páll Ásgeirsson hefur framlengt samning sinn við
félagið en Böðvar verður 18 ára gamall í lok mánaðarins.
Þá hefur vinstri hornamaðurinn
Benedikt Reynir Kristinsson skrifað
undir samning en hann er uppalinn
FH-ingur en spilaði með Gróttu á
síðasta tímabili. Benedikt er öflugur
leikmaður sem hefur spilað með
unglingalandsliðum Íslands og á eftir
að styrkja hópinn verulega.
Það er því ljóst að tímarnir eru
bjartir framundan í herbúðum
Aftureldingar og blekið eflaust ekki
enn þornað hjá Ásgeiri Sveinssyni
formanni meistaraflokksráðs. Reynir
Þór Reynisson mun þjálfa liðið áfram.
örni ingi og Böðvar verðlaunaðir á lokahófi HsÍ
Örn Ingi Bjarkason leikstjórnandi sem spilaði fyrir FH á síðasta tímabili var valinn í lið N1
deildarinnar á lokahófi HSÍ sem fram fór um helgina. Böðvar Páll Ásgeirsson leikmaður
Aftureldingar var valinn efnilegast leikmaður deildarinnar. Það verður því gaman að fylgjast
með þessum flottu Mosfellingum á komandi leiktíð með Aftureldingu.
Örn ingi og
bÖðvar páll
ásgeir og benedikt
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la