Mosfellingur - 16.05.2012, Síða 36
Sendið okkur myndir af nýjum Mos-
fellingum ásamt helstu upplýsingum á
netfangið mosfellingur@mosfellingur.is
Davíð Kárason fæddist 30. des 2011.
Algjör gullmoli og býr í Akurholtinu.
Foreldrarnir heita Áslaug Heiða
Gunnarsdóttir og Kári Sighvatsson.
högni snær
Kolagrillað lambalæri
Í eldhúsinu
Kolagrillað lambalæri
að hætti afa og ömmu í
Markholti er einfaldlega
uppáhaldsmaturinn hjá
fjölskyldunni. Ef vel á til að
takast þarf að kaupa lærið
5 til 7 dögum áður en það
er matreitt og láta það
meyrna í ísskápnum. Ef við
höfum ekki tíma til þess
förum við bara til Geira í
Kjötbúðinni á Grensásveg-
inum og kaupum það tilbúið
- hann klikkar aldrei. Þegar
grilldagurinn rennur upp
sker afi Gaui lykilbeinið
(mjaðma/rófubeinið) frá svo
bara sé leggurinn eftir. Nú tekur amma Helga
við og nuddar lærið með matarolíu og kryddar
vel með því sem til er og látum við það síðan
liggja í stofuhita í nokkra klukkutíma. Nú er
komið að aðalatriðinu: „opna einn kaldan og
kveikja í kolunum á Weber grillinu“. Það er
kúlugrill með kúptu loki sem virkar eins og
kolakynntur bakaraofn – snilldar uppfinning. Í
grillinu okkar eru tvær hálfmána-grindur undir
kolin sem dregnar eru til hliðar þegar þau eru
orðin heit. Svo er útbúinn bakki úr álpappír
og lagður á milli kolagrindanna til að taka
við safanum sem lekur úr lærinu. Síðan er
lærið lagt á grillgrindina fyrir ofan álbakkann
þannig að heit kolin eru sitt hvoru megin við
lærið og lokið sett á grillið. Best er að byrja
að grilla um leið og kolin eru tilbúin því þá
er hitinn mestur svo safinn í kjötinu lokast
inni. Eftir um það bil 45 mínutur þarf að snúa
lærinu við og setja lokið aftur á. Mikilvægt er
að opna ekki grillið oft því þá dettur hitinn
niður. Yfirleitt nægir að grilla um hálftíma í
viðbót eða þar til kjötið er farið að dragast
upp hækilinn, þá er lærið
tilbúið. Lærið er tekið af
grillinu, álpappír lagður
yfir og látið standa í 10
til 15 mínútur áður en
það er skorið. Af því að
einungis lærleggurinn er í
kjötinu er auðvelt að rista
vöðvana frá beininu og
skera þá niður í fallega
bita og bera á borð.
Á meðan afi er úti í sólinni
að grilla er amma inni í
eldhúsi að útbúa sósu og
kartöflur.
Bernais - sósa fyrir c.a. 8-10 manns.
9 stk. eggjarauður
700 gr. smjör
2 msk. esdragon
2 msk. bernais-essens
2 msk. kjötkraftur.
Eggjarauður þeyttar vel í hrærivel (ekki
stoppa þeytinguna) Smjörið brætt og kryddið
út í, suðan látin koma upp, síðan er smjörinu
hellt rólega út í eggjarauðurnar og þeytt á
meðan og sósan er tilbúin.
Kartöflur og grænmeti í ofninum er einfalt og
gott meðlæti þegar margir eru í mat.
Bökunarkartöflur, sætar kartöflur, rófur,
gulrætur og rauðlaukur skorið í bita og látið
í ofnskúffu. Síðan er matarolíu hellt yfir og
hrært vel saman. Stráið grófu sjávar-salti og
og þurrkuðu Basil yfir. Bakið í ofni við 180°C
í c.a 30 mínútur og hrært varlega tvisvar til
þrisvar á meðan eldun stendur.
Við skorum á saltfisk snillinginn Guðrúnu
Sigurðardóttur í Dvergholti 9 að miðla sinni
þekkingu.
hjá gauja og helgu
ísland
lang best
í heimi
Ég hef alltaf verið vonlaus þjóðremba
sem lýsir sér þannig að ég hef óbil-
andi trú á Íslandi og Íslendingum,
jafnvel er rembingurinn svo mikill að
þegar allt er í rúst þrjóskast ég við og
held í trúna. Ég er þessi óþolandi
„Ísland lang bezt í heimi“ týpa.
Við eigum besta vatnið, fiskinn,
fallegasta kvenfólkið og karlpung-
arnir eru fallegir líka, hreinasta loftið
,
besta ísinn. Við erum duglegasta
fólkið, við eigum bestu fótboltamenn
í heimi (ef tekinn er blessuð höfða-
talan með í reikninginn) og besta
handboltafólk í heimi líka.
Við erum hamingjusömust, flottust,
feitust, grönnust, sterkust, eigum
flottustu sauðkindina, snjallasta
hundinn og bestu hestana, mestu
snillingana og svo mætti lengi telja.
Nú svona seinni ár hafa ýmsar
staðreyndir bent mér á að þetta sé
nú kannski ekki svona. Þar sem
bent var á að loftið Íslandi væri ekki
svona hreint, ísinn væri í meðallagi,
fótboltastrákarnir okkar væru bara
þokkalegir og aldrei komist á stórmót
þrátt fyrir höfðatölu og allt það. Við
eigum heldur ekki mestu snillingana
það sýndi sig þegar við klúðruðum
fjármálakerfinu okkar og okkur er
varla treystandi fyrir að hafa umsjón
með sparibauk. Við byggjum stór-
glæsilegt tónleikahús fyrir marga
milljarða og menn rífast um það hvort
það haldi vatni og vindi.
Landeyjarhöfnin er gott dæmi um
okkar verk og hugvit sem við getum
verið stolt af og svo er það nýjasta
útspil okkar sem toppar allt annað
sem við höfum klúðrað, að þegar
þjóðir með vit í kollinum eru að reyna
koma sér út úr Evrópusambandinu
sem allra fyrst, hvað gerum við, jú við
sækjum um að fá að koma inn og ætl-
um við að borga fyrir það. Ég vildi að
þetta væri brandari, en sorrý.
En skítt með þetta allt ég er enn á því
að Ísland sé lang bezt í heimi.
Gaui og Helga skora á Guðrúnu Sigurðardóttur að deila með okkur uppskrift í næsta blaði
- Heyrst hefur...32
Heyrst Hefur...
...að siggi Valli og Ásta eigi von á barni
síðar á þessu ári.
...að þrefalt reunion hafi verið haldið
um þar síðustu helgi þegar ‘66, ‘67
og ‘68 árgangarnir hittust allir í
Hlégarði.
...að Ljótu hálfvitarnir verði með
tónleika í Hlégarði þann 1. júní.
...að fyrsta útskrift fMos fari fram
laugardaginn 26. maí.
...að sálin hans Jóns míns verði með
ball í íþróttahúsinu á laugardaginn.
...að ritfangaverlsunin togo
í Kjarnanum sé til sölu.
...að hin árlega formannsfrúarreið
verði farin laugardaginn 26. maí
...að Hótel Laxnes sé komið upp fyrir
Grand Hótel í einkunnagjöfinni á
booking.com með 8,2 í einkunn.
...að stormsveitin sem sló rækilega
í gegn á þorrablótinu æfi stíft fyrir
þjóðhátíðartónleika sem verða þann
16. júní í Hlégarði. Biggi úr Gildrunni,
Jenni úr sálinni og Þorleifur úr egó
munu stíga á stokk með sveitinni.
...að Bubbi og Hrafnhildur séu nýlega
búin að fjölga Kjósverjum.
...hægt sé að hlusta á beinar lýsingar
af fótboltanum á Varmárvelli á
vefsíðunni www.sportradio.is.
...að nágrannakærleikurinn sé mikill í
Hulduhlíðinni svo að eftir sé tekið.
...að Mosfellingurinn Bjarki sig hafi
verið valinn þjálfari 1. deildar á
lokahófi HsÍ um síðustu helgi.
...að það sé próflokadjamm á Hvíta
riddaranum í kvöld.
...að stjáni póstur hafi tekið þátt í
firmakeppni Harðar á dögunum en
hann er orðinn 94 ára gamall.
...að krakkarnir kvarti yfir flísum úr
stóru rennibrautinni í Lágafellslaug.
...að Kristófer sem spilar hjá Bjarka
í Ír hafi verið valinn markmaður
1. deildar en Ír-ingar munu spila
í N1 deildinni á næsta tímabili.
...að staffið í Lágó ætli að gera sér
glaðan dag í kvöld og fara út í Viðey.
...að meistaraflokkarnir í knattspyrnu
hafi gert með sér veðmál fyrir fyrstu
leiki deildarinnar. ef strákarnir
myndu tapa þyrftu þeir að leiða
stelpurnar inn á völlinn í næsta leik
og svo öfugt. Bæði lið gerðu jafntefli.
...að reykjavíkurborg sé að leggja 10
milljarða í almenningssamgöngur á
höfuðborgarsvæðinu en Kjalnesingar
sitji eftir með sárt ennið.
...að lagt verði upp í heljarinnar
karlrembureið í dag.
...að Dóri DNA eigi afmæli í dag.
...að uMfA útvarpið fari af stað um
mánaðarmótin og verði starfrækt
fyrstu daga júní-mánaðar.
...að emma og sigurjón séu búin að
eignast stelpu.
mosfellingur@mosfellingur.is
Ísey Álfrún Sævarsdóttir og Eva María
Einarsdóttir Nilsen héldu tombólu og
söfnuðu 309 krónum sem þær færðu
Rauða krossinum að gjöf.
Hlutavelta
Tristan Þórðarson og Egill Steingrímur
Arnarsson héldu tombólur og söfnuðu
1.696 krónur sem þeir færðu Rauða
krosssinum að gjöf.
MOSFELLINGUR
kemur næst 7. júní