Mosfellingur - 27.09.2012, Page 17
M
yn
di
r/
An
to
ní
a
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Opnir
nefndarfundir
í Október
Opnir nefndarfundir verða haldnir í flestum nefndum á tímabilinu 15. til 26. október.
Fundarstaðir og nánari tímasetningar verða auglýstir á vef Mosfellsbæjar.
eftirfarandi nefndir eru starfandi hjá Mosfellsbæ og funda reglulega:
bæjarstjórn fer með æðsta ákvörðunar-
vald varðandi framkvæmd þeirra verkefna
sem sveitarfélagið annast.
Í bæjarstjórn sitja eingöngu kjörnir fulltrúar.
Forseti bæjarstjórnar er Bryndís
Haraldsdóttir D lista - bryndis@mos.is
bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu
bæjarins og er framkvæmdaráð. Í bæjarráði
sitja eingöngu kjörnir fulltrúar.
Formaður bæjarráðs er Hafsteinn
Pálsson D lista - hp@mos.is
FjölskylduneFnd fer með málefni
barnaverndarnefndar, félagsmál,
húsnæðismál og jafnréttismál.
Formaður fjölskyldunefndar er Kolbrún
Þorsteinsdóttir D lista - kolbrun06@ru.is
FræðsluneFnd fer með málefni
grunnskóla, leikskóla og tónlistarskóla
og hefur umsjón með dagvistunarúrræðum
fyrir börn í Mosfellsbæ.
Formaður fræðslunefndar er
Eva Magnúsdóttir D lista eva@mila.is
íþrótta- Og tóMstundaneFnd
fer með íþrótta- og tómstundamál
og hefur eftirlit með rekstri þeirra
mannvirkja sem til þess eru notuð.
Formaður íþrótta- og tómstundanefndar
er Theódór Kristjánsson D lista -
theodor.kristjansson@lrh.is
MenningarMálaneFnd sér um stefnu-
mótun í menningarmálum. Nefndin fer m.a.
með málefni Bókasafns Mosfellsbæjar,
vinabæjasamskipti og málefni lista-
og menningarsjóðs bæjarins.
Formaður menningarmálanefndar er
Hreiðar Örn Zoega D lista -
hreidar@kirkjan.is
skipulagsneFnd hefur forræði í skipu-
lagsmálum og gerir tillögur til bæjarstjórn-
ar að stefnu í þeim efnum.
Formaður skipulagsnefndar er Elías
Pétursson D lista - elias@jardmotun.is
uMhverFisneFnd sér um stefnumótun
í umhverfismálum. Nefndin fer m.a. með
verkefni náttúru- og gróðurverndar.
Dæmi um þessi verkefni er
Staðardagskrá 21.
Formaður umhverfisnefndar er
Bjarki Bjarnason V lista -
bjarnasonbjarki@gmail.com
þróunar- Og FerðaMálaneFnd
fer með málefni tengd nýsköpun,
þróunar- og ferðamálum.
Formaður þróunar- og ferðamálanefndar
er Rúnar Bragi Guðlaugsson D lista -
runarbg@hotmail.com
ungMennaráð MOsFellsbæjar er um-
ræðu- og samstarfsvettvangur ungmenna á
aldrinum 13-20 ára í sveitarfélaginu og fer
með mál ungmenna í Mosfellsbæ. Nefndar-
menn eru nemendur úr FMOS, Varmárskóla
og Lágafellsskóla.
Nefndirnar starfa allar eftir samþykktum bæjarins sem gerðar hafa verið
um hvern málaflokk og eru aðgengilegar á heimasíðu Mosfellsbæjar.
Ennfremur starfa nefndirnar eftir þeim lögum og reglugerðum sem sett hafa verið
um sveitarstjórnarmál almennt og öðrum lögum um þá málaflokka sem um ræðir.
hægt er að nálgast nánari upplýsingar um nefndarmenn,
hlutverk og störf nefnda og fundargerðir nefnda á www.mos.is