Mosfellingur - 27.09.2012, Qupperneq 19
Reynir Þór Reynisson þjálfari segir leikmenn vera dauðþreytta á botnbaráttu og stefni hærra
Gríðarlegur efniviður
Meistaraflokkur
aftureldinGar
í handknattleik
Jóhann Jóhannsson
sloppinn í gegn á móti ír
Hvernig hefur liðið breyst frá því
á síðasta tímabili?
Það hefur mikið breyst frá síðasta tíma-
bili en hugarfar leikmanna er orðið mun
metnaðarfyllra. Hópurinn tekur reglulega
aukaæfingar og eins sé ég mikinn mun
á mataræðinu, sem er jú grunnurinn að
árangri. Fyrir vikið er líkamlegt ástand
hópsins allt annað og betra sem gefur
okkur tækifæri til að stíga næsta skref.
Hvernig líst þér á komandi tímabil?
Mjög vel en á mínum þjálfaraferli hef
ég sjaldan upplifað jafn mikinn slagkraft
í leikmönnum og hungri til að verða betri.
Ég hef orðið vitni að miklum framförum á
liðinu og haldi menn áfram að leggja hart
að sér er aldrei að vita nema skemmtilegur
vetur sé framundan.
Sefur þú með nátthúfu?
Í beinu framhaldi af síðustu spurning þá
er svarið nei. Ég veit aftur á móti um dreng
sem gerir slíkt en nafnið ku vera Hjörtur
Örn Arnarson, öðru nafni Hjössi mæjó.
Eru markmiðin gefin upp?
Nei, nákvæm markmið eru ekki gefin
upp en Mosfellingar fá þó að vita að hóp-
urinn er orðinn dauðuppgefinn á botnbar-
áttunni og endalausum umspilum.
Eru bjartir tímar framundan?
Það eru allar forsendur fyrir hendi en
velgengnin er undir Mosfellingum sjálfum
komin. Haldi leikmenn áfram að leggja á
sig botnlausa vinnu, fólkið í kringum liðið
haldi áfram að skapa góða umgjörð, fyrir-
tækin styðji myndarlega við liðið, og síðast
en ekki síst ef bæjarbúar koma á völlinn,
þá er ekki spurning að bjartir tímar eru
framundan. Ég efast um að mörg lið eigi
jafn mikinn efnivið og Afturelding og því
lífsnauðsynlegt að vel verði staðið að mál-
um.
Af hverju Prinsinn?
Þarna grefur blaðamaður upp gamalt
viðurnefni á þjálfarann á fyrstu árum
hans í meistaraflokki. Ég átti það til
að vera með ansi mikinn derring við
liðsfélaga mína og lét gjarnan eins og
gerspilltur unglingur, ég er hræddur
um að svona hegðun væri ekki liðin
inná æfingunum hjá mér í dag. Fyrir að
grafa þetta viðurnefni upp fær fyrirliðinn
ansi marga aukaspretti að launum.
Eitthvað að lokum?
Já, nú er að koma upp gríðarlegur efni-
viður sem nauðsynlegt er að halda vel
utan um. Í bland við þá eldri er
hægt að koma liðinu í
hóp þeirra bestu á
næstu árum en
það hefst ekki
nema bæjar-
búar leggist á
árarnar með
liðinu. Hver
hönd skipt-
ir máli!
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la
Að frjósemin í liðinu er
svo mikil að nú eiga fjórir
leikmenn meistaraflokks barn
undir eins árs aldri.
Varnarmurturinn Krummi
og Jenni sjúkraþjálfari
eru bræður.
Línutrukkurinn Einar
Héðins og miðjufantur-
inn Helgi Héðins eru ekki
tvíburara, bara bræður.
Elvar Magnússon og Örn
Ingi eru með systrum.
Hilmar er að fara spila sitt
14. tímabil með UMFA.
Hilmar er elsti leikmaður
liðsins og Kristinn
Hrannar er sá yngsti.
3 nýir leikmenn gengu til
liðs við Aftureldingu fyrir
tímabilið ´12-13.
Aron Gylfa, Danni Jóns og
Hafþór hafa allir fært sig
um set og spila með Júmboys
í vetur.
Hjörtur aðstoðarþjálfari
er 22% fita, hann er
kominn í átak.
Áður en Jenni hætti að
spila og gerðist sjúkra-
þjálfari voru þeir bræðurnir
kallaðir Tsjernobyl-bræðurnir.
vissir þú