Mosfellingur - 27.09.2012, Page 34

Mosfellingur - 27.09.2012, Page 34
 - Aðsendar greinar34 Mynd af Reykjabænum. Horft til vesturs. Hleðsluna á hólnum ber við hlöðuna og íbúðar- húsið. (Mynd úr safni Hitaveitu Reykjavíkur). Hvar var kirkja og kirkjugarður á Reykjum? Eitt af stefnumálum nær allra framboða í Mosfellsbæ í að- draganda sveitarstjórnarskosn- inga árið 2010 voru lýðræðsmál og íbúalýðræði. Þjóðfélags- umræðan undanfarin misseri hefur í auknum mæli beinst að lýðræðisumbótum hvers kon- ar. Rætt hefur verið um völd og ábyrgð kjörinna fulltrúa og rétt íbúa til að taka þátt í ákvarðanaferlinu og ákvörðun- um sem teknar eru í stjórnsýslunni og hjá opinberum aðilum. Með virku íbúalýðræði er hægt að ná betri sátt um markmið, stefnu og fram- kvæmdir á vegum sveitarfélagsins með því að íbúarnir séu þátttakendur í ákvörðunar- tökuferlinu og stefnumótun hvers konar og hvetja þá til að taka þátt í mótun nærum- hverfis síns í samvinnu við sveitarfélagið. Því er þó ekki að leyna að hér er um vandrataðan veg að ræða því sú skoðun er líka mjög útbreidd að fulltrúalýðræðið sé í raun ágætis fyrirkomulag. Að íbúar eigi að mestu að fá að vera í friði milli kosninga frá samfélagslegum verkefnum. Því þarf að hafa bæði þessi sjónarmið að leiðarljósi og taka tillit til ólíkra hugmynda um aðkomu íbúa að ákvarðanatöku. Til þess að vinna að framgangi lýðræð- ismála í kjölfar síðustu kosninga var settur saman starfshópur síðla árs 2010 til að búa til lýðræðisstefnu fyrir Mosfellsbæ. Í októb- er á síðasta ári kom starfshópurinn saman í síðasta sinn og skilaði af sér lýðræðisstefnu fyrir bæinn sem var afgreidd í bæjarstjórn þann 12.október sl. Skýrari fundargerðir Lýðræðisstefnan hefur því verið í fullu gildi síðastliðið ár og stjórn- sýslan í bænum verið að innleiða nýja starfshætti með tilliti til hennar. Til að mynda liggur fyrir minnisblað í bæjarráði sem ætlað er að leiðbeina fundarriturum að rita lýsandi fundar- gerðir og upplýsa þar af leiðandi les- endur um efni funda eins nákvæmlega og unnt er. Þetta var einmitt eitt af þeim atrið- um sem fram kemur í lýðræðsstefnunni og tilgangur sá að auðvelda íbúum að sjá hvað fram fer í nefndum og ráðum bæjarins. Opnir nefndarfundir í október Dæmi um framgöngu lýðræðisstefnunn- ar eru opnir nefndarfundir sem stefnt er að verði haldnir núna í október. Þetta er í samræmi við markmið um gegnsæi í stjórn- sýslunni og er ein leið til að tryggja gott upplýsingaflæði til íbúa. Ennfremur verða á næstunni auglýstir viðtalstímar bæjarfull- trúa eins og venja hefur verið. Hægt er að nálgast upplýsingar um fundi, viðtalstíma og fundargerðir á heimasíðu Mosfellsbæjar www.mos.is. Ég vil hvetja íbúa til að fylgj- ast vel með þessum málum sem á að vera til þess fallið að bæta upplýsingagjöf og auka þekkingu íbúa á réttindum sínum og skyldum í samfélaginu. Lýðræðismál verða eðli málsins samkvæmt að vera í stöðugri endurskoðun og fylgja tíðarandanum sem mótar samskipti og skoðanir íbúa Mosfells- bæjar á hverjum tíma. Höfum ennfremur í huga að þetta er í anda gilda Mosfellsbæjar sem eru: Virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja. Haraldur Sverrisson Bæjarstjóri Innleiðing lýðræðisstefnu í Mosfellsbæ Frá síðustu kosningum hef ég verið þess heiðurs aðnjótandi að sitja sem fulltrúi ykkar í bæj- arstjórn. Í bæjarstjórn eru sjö fulltrúar frá fjórum framboð- um. Bæjarstjórn fundar tvisvar í mánuði og eru fundir hennar opnir auk þess sem upptaka af fundum bæjarstjórnar má finna á vefsíðu bæjarins. Seta í bæjarstjórn hefur verið bæði lærdómsrík og skemmtileg en umfram allt vona ég að ég hafi unnið sam- félaginu mínu gagn. Um hvað snýst starf bæjarfulltrúa Að mínu mati er starf mitt fyrst og fremst fólgið í því að sjá málin frá sem flestum sjónarhornum, vega og meta rök og taka svo afstöðu með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. Í bæjarstjórn ríkir almennt mik- il samstaða enda hafa málin þegar þangað er komið hlotið yfirferð og vinnu bæði af hálfu embættismanna bæjarins svo og fag- nefnda. Allir þeir sem að málum sveitar- félagasins koma hvort sem er starfsmenn bæjarins, nefndarmenn eða bæjarfulltrú- ar hafa allir það sjónarmið að ná farsælli lausn með hagsmuni bæjarbúa að leiðar- ljósi. Það verkefni sem skiptir mestu máli og er forsenda annarra verkefna er fjár- hagsáætlunagerðin, þar sem við kjörnir fulltrúar tökum að okkur að deila út fjár- munum ykkar. Ég aðhyllist þá skoðun að sveitarfélagið ætti alltaf að keppast við að taka sem minnst af peningum frá skatt- greiðendum. Fjármunirnir þurfa að duga til þess að hægt sé að halda úti lögbundinni þjónustu með sóma og að hægt sé að sinna öðrum verkefnum sem við kjörnir fulltrú- ar teljum að gagnist samfélaginu okkar og yrðu ekki að veruleika öðruvísi en með aðstoð bæjarsjóðs. Samfélagslegur auður Mosfellsbæjar Mosfellsbær er ekki bara falleg- ur bær heldur einnig góður bær. Það er samfélagslegur auður okkar Mosfellinga sem skapar hér þann bæjarbrag sem mér er annt um. Samfé- lagslegur auður fellst t.d. í því ómetanlega sjálfboðastarfi sem heldur uppi íþrótta- og æskulýðsfélögum okkar, foreldrafélög- in sem gera skólasamfélagið enn betra og lista og menningarlíf sem gerir samfélagið okkar skemmtilegra. Þá er ekki síður mik- ilvægt að við sem íbúar fylgjumst með um- hverfi okkar, lítum eftir húsi nágrannann, bregðumst við barnsgráti úti á götu nú eða tínum upp ruslið sem einhverjum láðist að setja í ruslatunnunna. Við bæjarfulltrúar getum gert ýmislegt til að gera gott sveit- arfélag enn betra en á endanum er það hvert og eitt okkar með okkar hversdags- legu gjörðum sem skapar hið raunverulega samfélag. Til hamingju með afmælið Mosfellingur Bæjarblaðið okkar fagnar nú 10 ára af- mæli á sama ári og Mosfellsbær fagnar 25 ára afmæli. Bæjarblaðið Mosfellingur og aðstandendur þess eiga þakkir skyldar fyrir gott starf í þágu Mosfellsbæjar. Það að hafa hér miðil sem færir okkur fréttir af Mosfellsbæ og Mosfellingum er skemmti- legt en ekki er blaðið síður mikilvægur vett- vangur upplýsinga og lýðræðislegra skoð- anaskipta. Bryndís Haralds, forseti bæjarstjórnar Bæjarstjórn Mosfellsbæjar VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja Skrifstofu­húsnæði á leigu­ í Kjarna 1. hæð (við torgið). Um 100 fm. rými sem hægt er að leigja í heilu­ lagi eða í smærri einingu­m. Nánari u­pplýsingar gefu­r Stefán Ómar Jónsson í síma 525 6700. Í september á hverjur ári er einn dagur tileinkaður menningarminj- um í Evrópu. Dagurinn er kallað- ur Menningarminjadagur Evrópu (The European Heritage Day). Ís- lendingar hafa tekið þátt í menn- ingarminjadeginum frá árinu 1998. Á hverju ári er skilgreint ákveðið þema fyrir menningarminjadag- inn í hverju landi fyrir sig. Þemað að þessu sinni er kirkjustaðir og kirkjugarðar. Það er Fornleifavernd ríkisins sem heldur utan um menningarminjadaginn á Íslandi. Heimildir herma að kirkja og kirkjugarð- ur hafi verið á Reykjum í Mosfellsveit í um 600 ár. Elsta heimild um kirkju á Reykjum er máldagi Þorláks biskups Þórhallssonar. Kirkjan var tileinkuð sælum Þorláki og var eign ábúandans á Reykjum. Máldaginn var skráður árið 1180. Kirkjan átti þá m.a. fjögur altarisklæði, þrjár bjöllur, tvo kerta- stjaka, tvær munnlaugar, tvo dúka, þrjá bik- ara og eina kú. Kirkjunnar er getið í fleiri máldögum, þar á meðal í máldaga Vilkins biskups frá árinu 1397. Í Vilkinsmáldaga kemur m.a. fram að Þorlákskirkja að Reykj- um átti þá jörðina Úlfarsfell. Fjallað er um Reyki í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns. Þar kemur fram að árið 1704 var jörðin kirkjujörð og að þar var þá „heima- manna gröftur og embættað þá fólk er til altaris“. Kirkjan að Reykjum var lögð niður með konungsbréfi 17. maí 1765. Þrátt fyrir að kirkja hafi staðið á Reykjum svo lengi sem raun ber vitni ber mönnum í dag ekki saman um hvar kirkjan stóð. Ábú- endur á Reykjum og í nágrenninu, bæði núlifandi og liðnir, hafa bent á staði sem þeim hefur þótt líklegastir sem kirkjustæði. Telja sumir að kirkjan hafi staðið þar sem núverandi íbúðarhús á Reykjum stendur. Aðrir hafa sagt að hún muni hafa staðið rétt fyrir austan og sunnan íbúðarhúsið. Og þá eru sumir þeirrar skoðunar að kirkjan hafi staðið upp á hól austan við íbúðarhúsið. Hafi kirkja staðið á hólnum hafi hún sómt sér vel á bæjarstæði Reykjabæjarins og sést víða að. Til er ljósmynd af hólnum, íbúð- arhúsinu sem þá stóð á Reykjum og hlöðu. Hlaðan var tekin í notkun um 1930 svo að myndin er tekin eftir það. Á myndinni má vel greina garð sem hlaðinn hefur verið uppi á hólnum. Í seinni heimsstyrjöld- inni settist mikill fjöldi hermanna að í Mosfellssveit og fjöldi mann- virkja var byggður. Meðal þeirra var kaldavatnsgeymir og lítill kofi úr múrsteinum sem hvort tveggja var reist efst á umræddum hól. Geymirinn er stein- steyptur og mikið mannvirki. Geymirinn er ferhyrndur, um 10 x 10 m, og um 2 m hár. Hann er að mestu niðurgrafinn en efsti hluti hans stendur þó upp úr. Stór hola hefur verið grafin þar sem vatnsgeymir- inn var byggður og að byggingunni lokinni hefur jarðvegi verið ýtt upp að geyminum. Töluvert jarðrask hefur því verið samfara byggingu geymisins og hefur það raskað minjum sem þarna voru. Í landslaginu sér þó enn móta fyrir garði austan og sunnan við vatnstankinn. Í sumar ákvað Fornleifavernd ríkisins í samvinnu við ábúendur á Reykjum að grafa könnunarskurð til að reyna að kom- ast að því hvort kirkjan og kirkjugarðurinn voru staðsett á hólnum. Rannsóknin leiddi í ljós að garðurinn sem sést á áðurnefndri ljósmynd hefur verið hlaðinn úr grjóti að mestu. Undir honum fundust leifar eldri torfhlaðins garðs sem að öllum líkindum er frá því fyrir 1500. Engar vísbendingar um greftrun fundust innan garðsins. Eng- ar sagnir eru heldur um að komið hafi verið niður á rústir kirkju né að manna- bein hafi komið í ljós þegar vatnstankur- inn var byggður. Telja verður líklegt að ef vatnstankurinn hefur verið grafinn niður í kirkjugarð hafi fjöldi mannabeina fundist á staðnum og að það hafi vakið svo mikla athygli að frásagnir af því hefðu varðveist. Ráðgatan um staðsetningu kirkjunnar á Reykjum er því enn óleyst en vonandi fæst svar við henni á endanum. Kristinn Magnússon Fornleifafræðingur

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.